Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Una svarar kjaftasögum um óléttu: „Það má vel hlæja að þessu“

Una Sig­hvats­dóttir, sér­fræð­ingur hjá for­seta­emb­ætt­inu svarar sögu­sögnum um óléttu í nýrr Facebook-færslu.

Una, sem stödd er á grísku eyj­unni Santor­ini um þessar mundir, skrif­aði færslu á Facebook þar sem hún rifjar upp fyrri kynni sín af eyj­unni fögru. „Þegar ég var 18 ára heim­sótti ég Santor­ini í hálfan dag, í skipu­legri skoð­un­ar­ferð með útskrift­ar­ár­gang­inum mínum úr MR. Ég man eftir að hafa ranglað um hvít­mál­aðar göt­urnar og efast um hvort ég yrði nokkurn tíma mann­eskja sem hefði tök eða ráð á að dvelja á slíkum stað á eigin vegum í fram­tíð­inni. Rúmum 20 árum síðar hélt ég í gær upp á 39 ára afmælið mitt hér á Santor­ini, einmitt með þeim hætti sem mér finnst skemmti­leg­ast: Tvö­faldri köfun í krist­al­tærum sjó. Daginn áður gekk ég 10 km með­fram gíg­barm­inum á þess­ari ægi­fögru eld­fjalla­eyju og gapti yfir útsýn­inu. Vá hvað það er fal­legt hérna, bæði ofan­sjávar og neðan. Í dag ætl­aði ég í kayakróður að skoða nokkra hella en haf­straumar hamla því, svo þess í stað neyð­ist ég til að slappa bara af á sund­lauga­bakk­anum og njóta þess að lesa afmælis­kveðjur!“

Þá minn­ist Una á kjafta­sögur sem hún segir að ókunn­ugt fólk sé að segja um hana. Þær snú­ist um að hún sé ólétt, hún sem er búin að ákveða að eign­ast ekki börn.

„Hið liðna afmæl­isár ramm­að­ist ann­ars svo­lítið kald­hæðn­is­lega inn. Það hófst með því fyrir ári síðan að ég ákvað að hætta við að gefa sjálfri mér egg­heimtu- og fryst­ingu í 38 ára afmæl­is­gjöf. Komst að þeirri nið­ur­stöðu (meðal ann­ars eftir vand­lega íhugun á Indlandi, eins klisju­kennt og það nú er) að mig lang­aði ein­fald­lega ekki til þess, þótt algrímið oti því linnu­laust að barn­lausum konum á mínum aldri að fjár­festa í slíku. Það er bara svo margt annað sem mig langar frekar að verja tíma mínum og pen­ingum í. En svo þegar 39 ára afmælið nálg­að­ist bár­ust mér þær sögur frá ókunn­ugu fólki utan úr bæ að ég væri orðin ólétt. Sem ég er alls ekki og geri sumsé ekki ráð fyrir að verða nokkurn tíma. En það má vel hlæja að þessu. Það geri ég alla­vega hér á Santor­ini og sendi hlýja kveðju úr Eyjahafi til ykkar allra sem hugs­uðu til mín á afmæl­inu. Takk fyrir mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Ráðherrann fyrrverandi segir að samstarf við Evrópuríki gæti verið hagkvæmara en að koma upp sambærilegu úrræði hér á landi.
Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Innlent

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027