Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ráðherrarnir sem sögðu af sér – Lygar, lögbrot og skattsvik

Frá því að íslenska lýðveldið var stofnað hafa frekar fáir ráðherrar sagt af sér í embætti. Raunar eru þeir ekki nema sex talsins sem sögðu ýmist af sér eftir harða gagnrýni eða eftir hörð mótmæli. Flestir þeirra hrökkluðust úr starfi í hruninu eða eftir það og næstum allir vegna þess að þeir neyddust til þess. Mannlíf fer hér yfir afsagnir íslenskra ráðherra.Fyrsti ráðherrann til að segja af sér var Albert Guðmundsson, þáverandi iðnaðar­ráðherra, og það gerði hann vegna hneykslis­mála tengdum Hafskips­málinu árið 1987. Hann hafði þáð greiðslur frá fyrir­tækinu sem hann taldi ekki fram til skatts. Albert var gagn­rýndur harðlega um nokkurt skeið áður en hann sagði af sér 24. mars 1987. Hann varð þá fyrsti ráðherra í lýðveldis­sögunni til að segja af sér ráðherra­dómi.Skömmu eftir afsögn sína tilkynnti Albert um þing­framboð undir merkjum Borgara­flokksins og vann stærsta kosninga­sigur nýs framboðs. Það met varð ekki jafnað fyrr en í síðustu þing­kosningum. Albert varð sendi­herra í París áður en kjör­tímabilið var úti.

Sumir eiga aftur­kvæmt

Guðmundur Árni Stef­ánsson sagði af sér sem heilbrigðis­ráðherra. Hann hafði þá sætt mikilli gagnrýni vegna embættis­færslu sinnar í starfi vegna embættis­loka trygginga­yfirlæknis. Guðmundur Árni sat á þingi fram á þessa öld en varð sendi­herra þegar hann hætti á þingi.

Guð­mundur Árni Stef­áns­son er snú­inn aftur í pólítík­ina.

Guðmundur Árni sagði af sér ráðherra­embættinu í nóvember 1994. Hann var harðlega gagn­rýndur fyrir pólitískar ákvarðanir sem leiddu til þess að hann sagði af sér embætti. „Já, ég hefði getað gert hlutina betur. En ég var sá fyrsti sem tók ábyrgð á gerðum mínum. Þetta var erfiður tími en ég átta mig á því að ég gerði rétt; pólitík snýst ekki bara um eigið egó heldur líka hina stóru mynd,” sagði Guðmundur Árni um afsögn sína.

Guðmundur Árni tók síðast virkan þátt í pólitík árið 2005 en á árinu sigr­aði hann með yfir­burðum í flokks­vali Samfykingarinnar um að leiða flokkinn í Hafnar­firði í komandi sveita­stjórnar­kosningum. Síðar var hann svo kjörinn nýr vara­formaður Samfylkingarinnar eftir að engin mótframboð bárust á lands­fundi flokksins.

Björgvin G. Sigurðsson var viðskipta­ráðherra þegar banka­kerfið íslenska hrundi á haust­dögum 2008. Hann sagði af sér undir lok janúar 2009, degi áður en ríkis­stjórnin sprakk. Honum hafði verið haldið utan við hringiðuna þegar rætt var um aðgerðir til að bjarga Glitni þrátt fyrir að vera ráðherra bankamála.

Björgvin sagðist hafa viljað segja af sér strax við hrunið en verið talinn á að halda áfram til að viðhalda þeim stöðug­leika í stjórn landsins sem hægt væri. Á lokadegi í embætti rak Björgvin stjórn og forstjóra Fjármála­eftirlitsins og baðst svo lausnar.

Lekamálið og Wintris

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir.

Næsti ráð­herra sem þving­ast til að segja af sér á Íslandi er Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, inn­an­rík­is­ráð­herra í stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar. Þetta ger­ist í því ­máli ­sem kall­ast „Leka­mál­ið“ og sagði hún af sér í nóvember árið 2014. Þá varð ráðuneyti hennar uppvíst að ólöglegum leka á upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos til Morg­un­blaðs­ins.

Aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu, Gísli Freyr Val­dórs­son, neitaði í fyrstu en ját­aði síðan að hafa lekið upp­lýs­ing­unum (neit­aði fyrst) um Tony Omos og Hanna Birna sjálf sagði einnig ósatt í mál­inu. Eftir mikla umfjöllun fjöl­miðla sagði hún loksins af sér sem innan­ríkis­ráðherra, þann 21. nóv­em­ber 2014.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.

Fimmti ráð­herr­ann í stjórn­mála­sögu lýð­veld­is­ins til að segja ó­vilj­ug­ur af sér er svo Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, vorið 2016. Hann varð þá fyrsti forsætis­ráðherra landsins til að segja af sér vegna hneykslis­mála eftir uppljóstranir í Panama­skjölunum um félagið Wintris. Sigmundur sagði af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra eftir að hafa verið afhjúp­aður sem ósann­inda­maður í Kastljós­þætti. Þar þrætti Sigmundur fyrir Wintris-félagið og gekk út úr viðtali.

Sig­mundur braut í ­sjálfu ­sér­ ekki lög, en hann sagði ósatt. Eftir Kastljós­þáttinn héldu þúsundir mótmælenda á Austur­völl en Sigmundur Davíð hugðist í fyrstu sitja sem fastast. Á endanum hrökklaðist á hann þó úr embætti, fyrst ætlaði hann að víkja tíma­bundið en dró það svo til baka. 

Sigmundur Davíð gekk síðar úr Framsóknar­flokknum og stofnaði Miðflokkinn sem setti Íslandsmet í fylgi nýs flokks, fékk sömu prósentu og Borgara­flokkur Alberts 30 árum áður.

Braut lög

Sigríður Á. Andersen.

Sigríður Andersen, fyrr­verandi dómsmála­ráðherra, varð svo sjötti ráðherrann sem sagði af sér í embætti, eftir að hafa sætt harðri gagnrýni fyrir störf sín. Þegar kom að því að skipa fyrstu dómarana í Lands­rétti, nýju milli­dómsstigi, vék hún frá mati nefndar sem meta átti hæfni umsækjenda. Þetta sætti mikilli gagnrýni og harðvítugar deilur voru um málið á Alþingi. Umsækjendurnir fjórir sem Sigríður tilnefndi ekki þrátt fyrir að þeir væru metnir meðal fimmtán hæfustu unnu allir dómsmál gegn ríkinu.

Sigríður stóð samt af sér vantrausts­tillögu á þingi. Þegar dómur Mann­réttinda­dómstóls Evrópu var birtur sagðist Sigríður enga ástæðu hafa til að segja af sér. Rétt rúmum sólar­hring síðar tilkynnti Sigríður að hún stigi til hliðar.

Aðrar afsagnir íslenskra ráðherra en fjallað er um hér að ofan: 

1923 sagði Magnús Jónsson af sér embætti fjármála­ráðherra eftir að hafa verið gagn­rýndur á Alþingi.

1932 sagði Magnús Guðmundsson dómsmála­ráðherra af sér eftir að Hermann Jónasson hafði dæmt hann sekan um l-gbrot, Hæstiréttur sýknaði Magnús og tók hann þá aftur við embætti.

Þá má nefna að ráðherrar hafa sagt af sér af öðrum ástæðu, t.d. heilsufars­ástæðum: Halldór Ásgrímsson, Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir. Þar að auki hafa nokkrir ráðherrar sagt af sér af öðrum ástæðum. Til að mynda Ögmundur Jónasson sem hætti sem heilbrigðis­ráðherra vegna óánægju með stefnu ríkis­stjórnarinnar í Icesave og Björn Bjarnason hætti sem menntamála­ráðherra til að leiða lista Sjálfstæðis­flokksins í borgar­stjórnar­kosningum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis