Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ivu kippt úr fræðsluverkefni vegna meintra skoðana:„Tel á mér brotið og ætla að leita réttar míns“

Iva Marín
Iva Marín Mynd: YouTube-skjáskot

Iva Marín Adrichem, söngkona og laganemi ætlar að leita réttar síns en henni var kippt út úr fræðslu­verkefninu Gott aðgengi í ferða­þjónustu, sem er á vegum Ferðamála­stofu.

Verkefnið var unnið í samstarfi við Sjálfs­björg lands­samband hreyfi­hamlaðra og Öryrkja­bandalag Íslands. Eftir að hún hafði komið fram í myndbandi fræðslu­verk­efnisins barst henni tölvu­póstur frá ferðamála­stjóra þar sem henni er tjáð að hún verði tekin út úr mynd­bandinu og annar fenginn í hennar stað. Ástæðan sé sú að athuga­semdir höfðu borist ÖÍ og Sjálfs­björg vegna opinberra skoðana hennar gegn trans­fólki sem hún segist ekki kannast við. Telur Ivu að með þessu hafi verið brotið á hennar rétti og mun hún því leita réttar síns.

Iva sendi frá sér eftir­farandi yfir­lýsingu fyrir stundu:

„Meðfylgjandi skjáskot sýnir Facebook skilaboð sem settur ferðamála­stjóri sendi mér á mánudag í síðastliðinni viku. Á þennan samskipta­máta er mér tilkynnt af forstöðu­manni opinberrar stofnunar, að vegna skoðana minna hefur verið ákveðið að ég verði klippt út úr kynningar­myndbandi sem ég kom fram í fyrir Ferðamála­stofu og var frumsýnt í haust. Einnig var mér greint frá því að mynd­bandið yrði endurgert og annar blindur einstaklingur fenginn til verksins í minn stað. 

Umrætt myndband er liður í fræðslu­verkefninu Gott aðgengi í ferða­þjónustu, sem Ferðamála­stofa vann í samstarfi við Sjálfs­björg lands­samband hreyfi­hamlaðra og Öryrkja­bandalag Íslands. Í símtali mínu við Ferðamála­stjóra kom fram að kvartanir um þátttöku mína hafi þegar borist eftir frum­sýningu mynd­bandsins síðastliðið haust og að nýtt myndband sé komið í fram­leiðslu. Þó var ég ekki upplýst um málið fyrr og greinilegt að ég fái ekki tækifæri til að andmæla þeirri ákvörðun að endurgera mynd­bandið vegna skoðana minna. Eftir samtal við ferðamála­stjóra er ljóst að honum er hvorki kunnugt um hverjir gerðu athuga­semdir við hlutverk mitt í mynd­bandinu, né hvaða skoðana minna eða ummæla þær athuga­semdir taka til efnislega. Af Facebook skila­boðunum frá ferðamála­stjóra má hins vegar leiða að mér hafi verið gerðar upp skoðanir sem ég gengst ekki við að hafa.

Burtséð frá því, þá eru samkvæmt stjórnar­skrá allir frjálsir skoðanna sinna og sannfæringar á Íslandi. Þar er jafnframt að finna jafnræðis­regluna, megin­reglu stjórnsýslu­réttarins sem stjórn­völdum, þar á meðal Ferðamála­stofu, ber skylda til að virða. Í henni felst að allir séu jafnir fyrir lögum og njóti mann­réttinda, án tillits til tiltekinna þátta, þar á meðal skoðana. Því gerast Ferðamála­stofa, Sjálfs­björg og ÖBÍ augljós­lega brotleg við megin­stoðir réttar­ríkisins með ákvörðun sinni um að skerða rétt minn til atvinnu­þátttöku vegna pólitískra skoðana, auk þess að valda mér fjárhags­legu tjóni, mannorðs­skaða og andlegum miska. Sérstak­lega er ámælis­vert af Ferðamála­stofu, sem lögum samkvæmt flokkast undir stjórn­vald, að taka slíka ákvörðun byggða á nafn­lausum athuga­semdum, án þess að hafa rætt við alla málsaðila eða kynnt sér forsendur og sannleiks­gildi athugasemd­anna efnislega. 

Einnig skýtur skökku við að samtök sem beita sér fyrir réttindum fatlaðs fólks geti ekki virt mann­réttinda­ákvæði stjórnar­skrár í eigin starfi. Hér hefur ÖBÍ sýnt í verki að samtökin starfi ekki í þágu alls fatlaðs fólks þar sem þau eru reiðubúin að mismuna einstaklingum á grund­velli opinberra skoðana. Er gott aðgengi aðeins ætlað þeim sem uppfylla skilyrði ofan­greindra aðila um æskilegar skoðanir? 

Ég tel á mér brotið og ætla að leita réttar míns. Að sama skapi varða mann­réttindi okkur öll og því á málið fullt erindi fyrir sjónir almennings. Við sem samfélag þurfum að eiga samtal um þessa stefnu í átt til einnar leyfilegrar skoðunar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim