Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Klikkaður kjúklingaréttur – fljótlegur og góður

Frábær hug­mynd að kvöld­mat. Þessari upp­skrift er líka auð­velt að breyta til að bjarga græn­meti í kæli­skúff­unni sem ann­ars gæti endað í rusl­inu.

Sesam-kjúklingur á pönnu – 20 mín.
fyrir 4

3 dl basmati-hrís­grjón
1 tsk. salt
1 tsk. nýmal­aður svartur pipar
½ dl sesam-olía
4 cm af engi­fer­rót, afhýdd og skorin í þunnar sneiðar
8 vor­laukar, skornir í sneiðar
4 hvít­lauks­geirar, skrældir og flattir með flötu áhaldi
½ tsk. chili-flögur
u.þ.b. 700 g kjúklinga­læri eða bringur, skorin í 4 cm stóra bita
1 dl ristaðar jarð­hnetur
3 msk. mirin
2 msk. sojasósa
4 döðlur, sneiddar
100 g snjó­baunir, heilar eða skornar í bita
1 límóna, skorin í sneiðar

Byrjið á að sjóða hrís­grjónin sam­kvæmt leið­bein­ingum á pakkn­ingu. Hitið helm­ing­inn af sesam-olí­unni á pönnu, bætið engi­fer, vor­lauk, hvít­lauk og chili-flögum á pönn­una og steikið í 4 mín, eða þar til hvít­lauk­ur­inn gyllist. Hellið afgang­inum af sesam-olí­unni út á pönn­una og bætið kjúklingnum og jarð­hnet­unum saman við.

Steikið og snúið kjúklingnum reglu­lega þar til hann gyllist á hlið­unum, u.þ.b. 5 mín. Bætið mirin út á pönn­una ásamt 3 msk. af vatni, soja-sósu og döðlum og eldið þar til kjúkling­ur­inn hefur eld­ast í gegn og sósan þykknað, u.þ.b. 5 mín. Bætið snjó­baunum út á pönn­una og veltið upp úr sós­unni.

Berið fram með hrís­grjónum og límón­u­sneiðum.

Auðvelt er að breyta upp­skrift­inni til að bjarga græn­meti í kæli­skúff­unni sem ann­ars gæti endað í rusl­inu, brokkolí, gul­rætur og rauð paprika koma t.d. vel til greina. Ef kjúklinga­bringur eru not­aðar í stað læra er best að stytta eld­un­ar­tím­ann svo að bit­arnir verði ekki of þurrir.

Texti / Bergþóra Jóns­dóttir og Nanna Teits­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni