Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sólveig Anna með eldræðu á Facebook: „Gera á ríkissáttasemjara að einræðisherra vinnumarkaðarins“

Halldór Benjamín og Sólveig Anna. Myndin er samsett.
Halldór Benjamín og Sólveig Anna. Myndin er sam­sett.

Sólveig Anna Jóns­dóttir skrifaði eldræðu á Facebook-vegg sinn þar sem hún fer yfir stöðuna og lýsir henni eins og hún sér hana. Segir hún að gera eigi ríkis­sátta­semjara að einræðis­herra.

Verkalýðs­leiðtoginn Sólveig Anna Jóns­dóttir fer mikinn í nýlegri færslu á Facebook en má með sanni segja kalla hana eldræðu. Þar segir hún frá því að hún hafi hlýtt á málflutning í tveimur dómsmálum, annars vegar í svokölluðu innsetningar­máli ríkis­sátta­semjara gegn Eflingu og hins v egar í máli Samtaka atvinnu­lífsins gegn Eflingu. Segir Sólveig Anna það hafa verið bæði áhugavert og lærdóms­ríkt. Að hennar mati á nú að gera ríkis­sátta­semjara að einræðis­herra vinnu­markaðarins „de facto“.

„Í gær hlýddi ég á málflutning í tveimur dómsmálum, annarsvegar í svokölluðu innsetningar­máli ríkis­sátta­semjara gegn Eflingu og hinsvegar í máli SA gegn Eflingu. Var það bæði áhugavert og lærdóms­ríkt. Hin raun­verulega og óumdeilanlega staða sem upp er komin lýstist upp með eins skýrum hætti og hægt er að hugsa sér:

Sett hefur verið af stað tilraun af hálfu SA og ríkis­sátta­semjara um að gera formönnum verkalýðs­félaga og samninga­nefndum ófært að sinna sínu grundvallar­hlutverki sem er að leiða kjara­samninga­gerð til lykta. Gera á ríkis­sátta­semjara de facto að einræðis­herra vinnu­markaðarins, þess bæran að svipta forystu verkalýðs­félags og samninga­nefnd lýðræðis­legu umboði meðlima félaganna ef að hann svo lystir. Gera á geðþóttamat eins embættis­manns æðra rétti verka­fólks til að semja um laun fyrir unna vinnu, æðra stjórnar­skrár-vörðum rétti til að leggja niður störf til að þrýsta á um ásættanleg kjör. Æðra grundvallar­mann­réttindum okkar sem frjálsra borgara í lýðræðis­ríki. Breyta á miðlunar­tillögu í óumræðanlegt og óhnekkjanlegt valdboð frá stjórn­valdi sem standa á utan við eðlilega stjórn­sýslu í lýðræðis­samfélagi, ó-áskoranlegt og ósnertanlegt. Setja á upp kerfi þar sem að um leið og formanni verkalýðs­félags er afhent tilbúin og undir­rituð miðlunar­tillaga ríkis­sátta­semjara, án nokkurs samtals eða þess að ráðgast sé á nokkrum tíma­punkti um þá fyrir­ætlan hins háa herra, missir formaður þau völd sem að honum hafa verið falin af félögum sínum og er samstundis kominn undir friðar­skyldu vegna þess að í heimi valda­stéttarinnar á nú miðlunartillga eins embættis­manns að hafa nákvæmlega sama lagalega gildi og kjara­samningur undir­ritaður af formanni verkalýðs­félags og samninga­nefnd.“

Í miðri færslunni segir Sólveig Anna að „í ljósi þess hve sturlað ástandi er“ birti hún ljósmynd til að hressa sjálfa sig og vonandi aðra við. Lýsir hún myndinni á eftir­farandi hátt: „Hér má sjá Eflingar-félaga sem starfa hjá Samskipum, Olíu­dreifingu og Skeljungi ásamt alræmdri og umdeildri forystu Efingar gera það sem Halldór Benjamín framkvæmda­stjóri kallar að „telja og velja“ en það þýðir að vera kunnáttu­samleg og útsjónarsöm.“

Efl­ing­ar­fólk.

„Aðdáunar­verðir eigin­leikar hjá efnahagslegri og pólitískri valda­stétt en óbærilega svívirðilegir ef að þeir birtast hjá verka og láglaunafólk og tilefni til mikilla perlu-kreistinga og ilmsalta-innöndunnar. Við eigum bara að lufsast um, ófær um að hugsa og þar af leiðandi ófær um að vinna. Aðeins fær um að slíta okkur út við endalausa vinnu, aðeins fær um undir­gefni og ó-sjálfs­virðingu. Og guð hjálpi okkur ef að við dirfumst að eignast svokallaða „forystu“; þá erum við samstundis sek um glæpi sem siðmenntað og fágað mennta­fólk gerist aldrei sekt um, líkt og persónu­dýrkun og eitthvað sem kallast stigveldis­stjórnun. „Guð minn góður, ég næ ekki andanum, segiði þernunni að koma með ilmsöltin strax!““

Þá segir verkalýðs­foringinn skeleggi að „Ástæður tryllingsins hjá fólkinu efst í forréttinda­turninum og þeim sem óþreytandi eru í prílinu til að komast þangað og ganga í eina sæng með auðvaldinu eru þessar: Eflingar-félagar kunna ekki aðeins að telja og velja, þeir þekkja líka mátt samstöðunnar. Þeir vita einnig að þeir eru algjör­lega ómissandi í allri verðmæta­framleiðslu þjóð­félagsins. Þeir vita að ástæða þess að verkafólk fyrri alda öðlaðist á endanum, eftir að hafa fært stórkostlegar fórnir, þau mann­réttindi að mega semja sjálf um laun fyrir unna vinnu, að geta lagt niður störf til að vinna að framgangi sinna mikilvægu krafna, er að vinna vinnu­aflsins er grundvallar­atriði allra grundvallar­atriða kapítal­ískrar verðmætasköpunnar.“

Segir hún að sú staðreynd ali af sér það sem kalla megi sterka samnings­stöðu. „Og af þeirri vitneskju fæðist dirfskan, eldmóðurinn og baráttu­gleðin. Þetta hatar yfir­stéttin meira en nokkuð annað og hefur alltaf gert.“

Lokaorð Sólveigar minnir helst á frægar ræður úr epískum kvik­myndum, slíkur er eldmóðurinn. „Við munum ekki láta ofríki, einræðis­tilburði og and-lýðræðis­lega óra marg­milljón-króna fólksins stoppa okkur. Það mun aldrei gerast. Þrátt fyrir að það sé erfitt að horfast í augu við klikkaða forherðinguna. Eflingar-fólk þekkir erfið­leika. Þeir hafa mótað okkur og viðhorf okkar til tilverunnar. Við vitum að ekkert kemur til okkar ókeypis eða án erfiðis. Ekki neitt. Og þessvegna munum við ekki gefast upp í baráttu okkar fyrir efnahags­legu réttlæti.

Sjáumst í barátt­unni.Áfram Efling, alla leið!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim