Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Vanda og steintröllin í Katar

Vanda Sigurgeirsdóttir er formaður KSÍ
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir er for­maður KSÍ

Ferðalag toppanna hjá Knattspyrnu­sambands Íslands til Katar er lýsandi fyrir þann undirlægju­hátt sem er ríkjandi í garð þeirra fanta sem ráða ríkjum í þessu ríki fordómanna. Yfirvöld í Katar hafa grímu­laust látið i ljós andúð sína á samkyn­hneigðum og FIFA, Alþjóða­knattspyrnu­sambandið, tekur undir með þeim. Hugmyndir knattspyrnu­manna um að bera armband til stuðnings hinsegin­fólki voru slegnar út af borðinu og þeim hótað refsingu með gulu spjaldi ef af þessu yrði. Forsvars­menn FIFA eru enn einu sinni að gera upp á bak. Saga sambandsins er stráð spillingar­málum sem vakið hafa ógeð víða um heims­byggðina.

Ástæðu þess að örríkið Katar fékk keppnina má rekja til spillingar þar sem mútur koma við sögu. Nýir forsvars­menn FÍFA eru litlu skárri. Þeir heiðra skálkinn með því að samþykkja í raun ofsóknirnar gegn samkyn­hneigðum. Samkvæmt tilskipun Katara þá mega samkyn­hneigðir vera í landinu en þeir mega ekki faðmast eða láta vel að hverju öðru. Þeir verða að vera ósýni­legir. Stein­tröllin í Katar vaða uppi með ævaforna fordóma sem lýðræðis­ríki hafa fyrir löngu kveðið niður að mestu. Þau draga með sér þjóðir sem ættu að geta staðið í lappirnar gegn miðalda­sjóna­miðunum en gera það ekki. Þeirra á meðal eru Íslendingar.

Vanda Sigur­geirsdóttir, formaður KSÍ, lagði leið sína til Katar og gaf þannig öfga­fólkinu klapp á bakið. Sama er að segja um þá starfs­menn Ríkis­útvarpsins sem heiðra skálkana í Katar með því að mæta í fullkomnu tilgangs­leysi. Allt þetta fólk ætti að skammast sín fyrir að ýta undir ómennsku stjórn­valda smáríkinu með nærveru sinni.

Íslenska Knattspyrnu­sambandið er raunar frægt af endemum. Þar var gerð hallar­bylting þegar spillt forysta var látin víkja og Vanda kom sem riddari á hvítum hesti til að siðvæða og hreinsa út ófögnuðinn. Nú er staðan sú að hún hefur brugðist vonum fólksins. Lands­liðskarlar eru verð­launaðir  á hátíðar­stundu en konurnar ekki. Vanda lætur svo hafa sig í þá óhæfu að fara til Katar þar sem fordómarnir ríkja og spóka sig.

Ríkis­útvarpið er á sama báti. Í stað þess að sitja heima og mótmæla þannig, væflast þeir um og taka viðtöl hvert við annað. Ríkis­sjónvarpið fer til Katar í óþurftar­ferð með tilheyrandi kostnaði og tekur viðtal við Vöndu sem beygir af og kvartar undan vondum fjöl­miðlum. Saman­súrrað bandalag um að lyfta öfga­liðinu í Katar á stall. Þetta er ógeðslegt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim