Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bendir á staðreyndir varðandi öryrkja og eldri borgara: „En vissulega bylur hæst í tómum tunnum!“

Björn Birgisson.
Björn Birg­is­son.

Björn Birgisson bendir á að það eru stórir hópar á landinu sem hafa það jafnvel enn verr en lágtekju­fólk.

Grindvíski samfélags­rýnirinn Björn Birgisson skrifaði færslu á Facebook þar sem hann spyr „Hvaða hópar í þjóð­félaginu hafa lægstu tekjurnar?“. Svar hans er að margir eldri borgarar, öryrkjar og atvinnu­lausir eigi mun minna á milli handanna en láglaunafólk. Í lok færslunnar skýtur hann föstum skotum á Eflingu sem nú stendur í kjara­deilum við Samtök atvinnu­lífsins. Færsluna má lesa hér að neðan.

„Hvaða hópar í þjóð­félaginu hafa lægstu tekjurnar?

**********Óskertur elli­lífeyrir er 307.829 krónur á mánuði.Fjölmargir eldri borgarar eru með sára­litlar greiðslur úr lífeyris­sjóðum – jafnvel engar – einkum konur sem mikið hafa verið í hluta­störfum, eða verið að sinna stórum heimilum og ekki verið á vinnu­markaði.Óskertur elli­lífeyrir er enn tugþúsundum lægri en lágmarks­laun í landinu.**********Óskertur örorku­lífeyrir til einstaklings, sem fékk örorkumat 40 ára, er 301.029 krónur á mánuði.Lífeyris­réttindi öryrkja eru jafn misjöfn og þeir eru margir.Óskertur örorku­lífeyrir er enn tugþúsundum lægri en lágmarks­laun í landinu.Nær helmingur örorku­lífeyris­taka hefur lægri heildar­tekjur en sem nemur lágmarks­launum í landinu.**********Atvinnu­leysis­bætur eru 313.729 krónur á mánuði.**********Lágmarks­laun í landinu eru 378.500 krónur á mánuði.**********Til að gefa lesendum hugmynd um fjöldann sem þessi færsla tekur til þá eru öryrkjar í landinu um 20 þúsund talsins og eldri borgarar eru um 50 þúsund, samtals telja því þessir láglaunahópar um 70 þúsund manns.**********Til saman­burðar má nefna að talað er um að á kjörskrá Eflingar gagnvart SA samningum séu ríflega 20 þúsund manns og því fer fjarri að það fólk sé eitthvað nærri eldri borgurum og öryrkjum á botninum í launum.En vissulega bylur hæst í tómum tunnum!“

Færslan hefur vakið þó nokkra athygli en sitt sýnist hverjum.

Örn nokkur skrifaði athugasemd: „Þegar húsaleigu er komin yfir 240.000 fyrir 2 herbergja íbúð í Reykjavík er erfitt að lifa á launum eða bótum undir 500.000.-“

Þessu svaraði Björn: „þegar okrað er á fólki er gott að forða sér. Velja sér ekki búsetu þar sem okrið er mest. Það er nefnilega ekki hægt að senda vinnu­veitendum sínum okur­reikningana til greiðslu, en það er alltaf möguleiki að flytja!“

Sonja nokkur er ósátt við færslu Björns:

„Alltaf slæmt þegar fólk í slæmri stöðu reynir að draga þá sem eru í aðeins skárri stöðu niður til sín – vænlegra til árangurs er að styðja þá sem er næstir í röðinni frá botninum upp á við og sigla svo í kjölfarið.“

Þessu svaraði Björn um hæl: „sparaðu þvættinginn, hér er eingöngu verið að benda á stað­reyndir og engin tilraun gerð til að draga þjóð­félagshópa upp eða niður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim