Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Frásögn barþjóns af kynferðislegri áreitni á þorrablóti: „Ómerkilegt atvik sem kannski má læra af“

Íslenskur sælkeramatur
Íslenskur sæl­kera­matur Mynd: whatson.is

„Saga af kynferðislegri áreitni á barnum: ómerkilegt atvik sem kannski má læra af.

Þorra­blótið var alveg frábært! Ég vil bara byrja á því að taka fram að ég deili þessu alls ekki til þess að kasta nokkurri rýrð á þennan geggjaða viðburð. Það er bara þannig að þegar margir koma saman eru yfirleitt einhverjir sem haga sér eins og fávitar. Þjóðhátíð í Eyjum hefur t.d. mikið fengið að kenna á þessu í gegnum tíðina, en er engu að síður alveg frábær hátíð sem ég styð heilshugar.“ Svo hljóðar færsla sem kona nokkur utan af landi skrifaði á Facebook nýverið. Vill hún ekki koma fram undir nafni en gaf leyfi á birtingu færslunnar.

Í færslunni segir hún frá kynferðis­legu áreitni sem hún varð fyrir um síðustu helgi en þá vann hún sem barþjónn á þorra­blóti á lands­byggðinni. Tekur hún fram í færslunni að hún sé ekki að reyna að „kasta rýrð á karlkynið“ með skrifunum, heldur vilji hún með frásögninni vekja fólk, þá sérstak­lega karlmenn til umhugsunar um að þessi hegðun á sér stað í kringum þá, þó þeir haldi kannski að svo sé ekki. Veltir hún fyrir sér ástæðunni fyrir þessari afleitu hegðun mannsins og kemst í raun að niður­stöðu en hún er ekki sú að hann hafi verið að „grínast“ eða reyna við sig.

„Svo vil ég líka taka fram að ég er ekki að reyna að kasta rýrð á karlkynið með þessum skrifum heldur. Ég skil alveg að margir karlmenn hafi áhyggjur af því að lenda í að vera sakaðir um eitthvað misjafnt í samskiptum sínum við konur og ég er heldur ekki þeim megin að mér finnist að þeir sem hafa brotið af sér kynferðis­lega gagnvart annarri manneskju eigi bara ekki að eiga aftur­kvæmt í mannlegt samfélag. Öll erum við breysk, klúðrum einhverju í samskiptum okkar við fólk og þeir sem sjá að sér og reyna að bæta sig eiga að fá það tekið til greina að mínu mati, allt í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Mig langar hins vegar að deila þessu til þess að vekja vitund um það hjá fólki, já og sérstak­lega karl­mönnum sem þekkja mig og halda að þetta sé ekki að gerast í kringum þá, því konurnar vita þetta jú flestar nú þegar.“

Og þá hófst frásögnin af þorra­blótinu.

„Þegar ég var að vinna á barnum á þorra­blótinu kom til mín maður og tók að spyrja mig nærgöngulla og með öllu óviðeigandi kynferðislegra spurninga. Það sem hann sagði finnst mér ekki birtingar­hæft, svo ég fer ekki nánar út í það. Ég þóttist ekki skilja hvað hann væri að spyrja um og bað hann um að útskýra nánar. Þegar maður er 42 ára er maður búinn að viða að sér ýmsum aðferðum til að díla við svona­lagað, og þessi aðferð virkar yfirleitt mjög vel. Hann varð auðvitað bara mjög pirraður á mér og sneri sér að næstu konu og byrjaði að gera það sama við hana.Var þessi gaur ekki bara að reyna við mig? Neibb. Hann sýndi mér engan áhuga, þannig séð, og gerði ekkert sem gæti opnað á einhverskonar eðlileg samskipti okkar á milli, kynferðisleg eða annars­konar. Það að karlmenn reyni við mig truflar mig ekki neitt. Ég er á því að karlmenn eigi að reyna við konur ef þeir hafa áhuga á því og við aðstæður þar sem það á við, þannig verður jú nýtt fólk meðal annars til, en þetta var ekki það.Var hann þá ekki bara svona mikill klaufi í samskiptum? Neibb. Tiltölu­lega vel máli farinn og að því er virtist frekar sjálfs­öruggur gaur.Var þetta daður? Nei, alls ekki. Daður er mikið fínlegri list en þetta, meint allt öðruvísi og er skemmtilegt fyrir báða aðila. Ef þú ert að daðra við einhvern sem ekki tekur undir, þá er það ekki lengur daður.

Var hann þá ekki bara að grínast? Æi…það var þá allavega rosalega lélegt grín, og hvorki hann né ég hlógum…Þó grunar mig að ef hann ætti að svara þessum skrifum mínum, þá myndi línan „geturðu ekki tekið gríni?“ líklega koma upp. En jú, ég nefnilega get alveg tekið gríni.

Hvað var hann þá að gera? Hann var að reyna að slá mig út af laginu. Hann var að reyna að ná einhverskonar völdum yfir mér, þó að það væri bara í smá stund og á svona ómerki­legan hátt. Hann var að reyna að láta mér líða illa. Um það snýst málið.Það tókst nú ekki hjá honum. Mér leið bara ágætlega og fannst hann bara asnalegur. Ég skemmti mér konunglega það sem eftir var næturinnar og þetta hefur sama sem engin áhrif á mig, en það þýðir ekki að það sé bara í góðu lagi að haga sér svona. Fólk er afskaplega misviðkvæmt fyrir svona og ef þetta hefði verið einhver önnur kona gæti þetta hafa farið mjög illa í hana.Ástæðan fyrir því að ég deili þessu er að ég er að vonast vekja fólk aðeins til umhugsunar. Ég held líka að það sé mikilvægt að fólk viti að þó að kona sé gift tveggja barna móðir í ábyrgðar­stöðu, þá getur hún samt lent í svona­lögðu, þó að ég sé vissulega ekki jafn berskjölduð og ég var þegar ég var yngri, óreyndari og vann t.d. þjónustu­störf. Það skal þó tekið fram að ég var þarna vissulega í hlutverki barþjóns.Kynferðislegt ofbeldi og kynferðisleg áreitni snýst oft alls ekki um kynlíf og lélega stjórn fólks á kynhvöt sinni, heldur miklu frekar það að ná völdum yfir annarri manneskju. Þetta var algjör­lega lýsandi dæmi um það, og samt nógu léttvægt til þess að flest fólk ætti að geta lesið um það án þess að fríka út, en vonandi hefur nú engum fundist þetta of óþægileg lesning.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim