Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Send heim með rangt barn af fæðingardeildinni – Var svo beðin um að sækja eigið barn og skila hinu!

Að rugla saman börnum á fæðinga­deild eru mistök sem gerast víst ekki aðeins í bíómyndum. Sá einstæði atburður átti sér stað í Reykjavík þann 5.mars 1985 er höfð voru skipti á nýfæddum börnum á fæðingar­deild Land­spítalans. Endaði málið á forsíðu DV degi eftir að upp komst um mistökin og þótti málið, af augljósum ástæðum, mikið hneyksli.

Það var þann 28. febrúar þegar Dönsk hjón, sem búsett voru í nágrenni höfuð­borgarinnar, eignuðust barn. Hjónin dvöldu á fæðingar­deildinni í nokkra daga en þann 4.mars fær móðirin barn sitt til að leggja það á brjóst. Móðirin fékk strax þá tilfinningu að ruglingur hefði orðið og nefndi það við starfs­fólk spítalans.

Segir í frétt DV að sussað hefði verið á konuna og henni tjáð að slíkt gæti hreinlega ekki komið til greina. Á þeim tíma voru börn jafnan merkt með armbandi þar sem nafn og númer móður kom fram en var barn dönsku konunnar án armbands þegar hún tók við því þann 4.mars.

Konan var á tveggja manna stofu en hin konan, á sömu stofu, skildi ekkert í þessum vanga­veltum móðurinnar. Degi síðar var danska konan send heim með barnið „sitt” en var hún enn ekki orðin sátt við það að þetta væri hennar barn. Starfs­fólkið hunsaði athugasemdirnar og sendu hana heim.

Ekki leið á löngu eftir að konan var komin heim þar til hún fékk símtal frá fæðingar­deildinni og henni tjáð að hræðileg mistök hefðu átt sér stað:

,,Hún var beðin um að koma með barnið sem hún hafði fengið með sér heim og taka aftur sitt eigið barn! Kom í ljós þegar konan, sem var á sömu stofu og danska konan, fór að athuga betur hvað stóð á armbandi hennar barns að það var „vitlaust” barn… ,” segir að lokum í frétt DV um málið.

Baksýnis­spegill þessi birtist áður á mannlif.is þann 14. september 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim