Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur ætlar að treysta því að loforð haldi: „Við þekkjum þessa sögu“

Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Hörður Guð­brands­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur. Mynd: grindavik.is

Um það bil 200 starfs­menn útgerðarinnar Vísis eru félags­menn í Verkalýðs­félagi Grinda­víkur, samkvæmt formanni félagsins. Í ljósi frétta af yfir­vofandi kaupum Síldar­vinnslunnar á Vísi segist hann vilja vera bjartsýnn og treystir því að Vísir verði áfram í Grindavík, enda sé bærinn bæði vel stað­settur og vinnslan afar vel búin tæknilega. Hann segist þó muna Gugguna á Ísafirði og loforðin sem þar voru sett fram á sínum tíma.

Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðs­félags Grinda­víkur segir að flestir þeirra félags­manna sem starfi hjá Vísi vinni í fisk­vinnslunni. Aðspurður hvort væntanleg kaup Síldar­vinnslunnar á Vísi veki áhyggjur hjá verkalýðs­félaginu fyrir hönd félags­manna segir hann félagið ætla að treysta því að yfir­lýsingar um að útgerðin og vinnslan verði áfram í Grindavík standist.

„Fyrir utan að þeir átti sig á því hvað það er mikill mannauður í fyrir­tækinu í Grindavík. Það er náttúru­lega búið að vera að tæknivæða það mjög mikið. Það, plús stað­setningin, tel ég nú að sé til þess að meiri líkur en minni séu á því að þetta muni ekki vera til hins verra. Frekar að það verði uppbygging áfram,“ segir Hörður.

Hörður segist því treysta því að fyrir­komulagið verði áfram óbreytt eða breytist til hins betra. „Pétur hafði samband við okkur og bauð okkur á fund til þess að fara betur yfir þetta. Ég er reyndar í sumarfríi en við ætlum að reyna að hittast þegar við náum báðir saman.“ Pétur Hafsteinn Pálsson er framkvæmda­stjóri og einn eigenda Vísis, sem ráðgert er að muni halda áfram sem framkvæmda­stjóri fyrir­tækisins undir nýjum eigendum.

Hörður segir samtal því eiga sér stað um hina nýju stöðu á öllum póstum. „Þess vegna held ég að við verðum bara að treysta því að þetta gangi allt eftir. En auðvitað hefur maður séð alls konar í gegnum árin. Við þekkjum þessa sögu: Guggan er gul og verður gerð út frá Ísafirði. Það eru nokkrar svoleiðis.“

Enn hafa ekki margir félags­menn Verkalýðs­félags Grinda­víkur, sem starfa hjá Vísi, haft samband við félagið í tengslum við málið. „Nei, ekki mikið. Ég hef heyrt í einum eða tveimur en mér heyrist fólk ekkert vera sérstak­lega áhyggju­fullt, þannig. Það treystir því bara að þetta standi.“

Hörður nefnir kostina við stað­setningu Vísis í Grindavík. „Við erum náttúru­lega rosalega vel staðsett; stutt í flug­völlinn og stutt í útflutning frá Þorláks­höfn. Plús það að væntanlega verður einhver uppbygging í fiskeldi á svæðinu líka. Þannig að þetta styður við stað­setninguna. Þess vegna erum við kannski ekkert voðalega óróleg. Svo er búið að tæknivæða mjög mikið og mikil þekking í starfs­fólkinu í Grindavík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram