Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Egill Sæbjörnsson: „Tími er bara hugmynd og það eina sem gerist er að hlutir hreyfast um“

Eftir fjögurra mánaða þunglyndi, kulnum, covid, þráhyggju og myrkur er hlaðvarps­þátturinn Þvotta­húsið snúinn aftur. Það má með sönnu segja að bræðurnir Gunnar og Davíð Wiium hafi lagst undir feld af gefnum forsendum og snúið tvíefldir til baka en með nýjar stefnur og áherslur sem verða stöðugt kynntar aftur og aftur eftir því sem þær breytast.

Nýjasti gestur bræðranna er enginn annar en vísinda­maðurinn Egill Sæbjörnsson sem hefur verið búsettur í Berlín í ein tuttugu ár þar sem hann hefur starfað við sín vísinda­störf sem tvinnuð er í opnu flæði list­sköpunar. Egill hefur komið til þeirra bræðra áður í Þvotta­húsið en hann kom í þátt númer 34 sem tónlistar og lista­maðurinn Egill S. og svo í þátt númer 95 sem Egill S. hinn óáræðanlegi.

Egill með Wiium bræðrum

Nú er hins vegar allt annað upp á teningnum. Egill er svo langt frá því að vera óáræðanlegur í þetta skiptið, enda eru engum vettlingartökum beitt í þættinum þar sem þeir kryfja mál sem snýr að grundvallar­hugmyndum mannsins um sjálfan sig, tilgang sinn og örlög. Hver erum við og hvert erum við að fara, hvaðan erum við að koma og átti það sér stað einhverjum byrjun og er það einhver endir?Gunnar byrjaði þáttinn með vanga­veltum sínum tengdum áralangri þráhyggju hans fyrir svart­holum og minntist á kenninguna „the big crunch theory“ sem Gunnar skilur þannig að sjálfur mikli hvellur hafi í raun ekki verið neitt annað en afsprengi svarthols og því gefnar forsendur fyrir því að heimurinn sem við þekkjum sé aðeins lítill angi í mögulega óendanlegri jöfnu sem einmitt á sér engan enda né upphaf. Kenningu þessa segir Gunnar að sé líklega búið að afsanna því þennsla alheims virðist vera að aukast en ekki hægja á sér sem annars myndi einkenna heim sem drægist saman í einingar­punkt alls efnis í alheiminum. Sökum þessarar hrað­aukningar þennslu alheims segir Gunnar þá að sumir vísinda­menn séu nú farnir að hallast að annarri kenningu sem hefur verið kölluð „The big freeze“ en þar þennst alheimurinn svo hrikalega að bil milli efnis­einda einfald­lega verður það mikið að tengsl rofna og allt stirðnar í lokin í einskonar uber-alkul að eilífu sem einnig felur í sér möguleikan á upphafs og enda­loksleysis. Egill tekur undir þetta og segist einmitt hafa komist að þessari niður­stöðu í sínum rann­sóknum.

Egill skrifaði og leik­stýrði heimildar­myndinni From Magma to Mankind fyrir tveimur árum þar sem hann útskýrir kenningu sína að maðurinn komi frá hrauni úr iðrum jarðar. Þar vill hann meina að uppruni mannsins liggi og að við þurfum einfald­lega að horfast í augu við að forfeður okkar hafi verið fljótandi hraun-drullu­pollar. Hann vill meina að við þurfum að fara að hætta að hugsa um líf sem eitthvað sem eigi sér andstöðu í dauðu efni eins og grjóti eða hrauni. Hann segir spurninguna hvort að þá sé líf á Mars eins og David Bowie söng um í margfrægu popplagi, vera fáranlega því auðvitað er líf á Mars, í hverju einasta sandkorni á Mars og alls staðar annars staðar sé heilt lífkerfi sem á sér ekkert upphaf og engan endi.

Egill með jónu

Í þættinum ræddu þeir einnig um sorgina og sektar­kenndina sem fylgir þegar við missum frá okkur gæludýr og spurningin um hvort sálin sé á stöðugu flakki og taki sér bólfestu í nýju formi eða hvort sálin verði bara að mold og trjám og ánamöðkum eins og kisan sem Gunnar þáttar­stjórnandi þurfti að grafa í garðinum hjá sér fyrir tveim vikum. Kisan var með brjósta­krabba­mein og það greindist ekki fyrr en það var of seint, sem Gunnar vildi meina að framkalli mikla sektar­kennd ofan í sorgina sem fylgir því að missa gæludýr. Spurningin um hvort hann hefði getað gert eitthvað til að koma í veg fyrir að kisan dó er spurning sem hann hefur spurt sig að daglega síðan að hún lést skyndi­lega kaldan laugardags­eftirmiðdag.Egill fór í lokin yfir efni sem hann er búinn að vera að vinna að síðustu ár sem myndi kannski flokkast sem möguleg útgáfa af fram­tíðinni. Heimur, vídd eða ástand þar sem mikið af breytum, sem við förum eftir í dag, hafa horfið, bráðnað eða umbreyst verulega. Heimurinn ber heitið ZIM og bað Gunnar Egill um að fara yfir einkenni þessa heims og Egill varð að ósk hans. Egill vill meina að í ZIM séu engir þrívíddar ásar. Hann vill meina að í ZIM sé tíminn liðinn og því tímaleysi, tungumál eru kynlaus og hugmynda­fræði um lifandi og dautt hefur liðið undir lok, hún er einfald­lega ekki lengur til staðar. „Þetta er basically þannig að tími er bara hugmynd og það eina sem gerist í raun er það að dót hreyfist um,“ sagði Egill spekings­legur á svip. Lýsingin á ZIM er ekki bara áhugaverð heldur ber hún einnig í sér von inn í heim sem virðist oft á tíðum vera á barmi glötunar.Það er alveg klárt að Egill er frumkvöðla­maður og braut­ryðjandi á sviðum lista og vísinda. Hugur hans er opinn og eins og hann sjálfur tók skýrt fram í lok þáttarins, þá eru allar hans kenningar settar fram með algjörum fyrirvara sem gerir hann að vísindarmanni fram­tíðarinnar, auðmjúkum vísinda­manni.Þennan upplífgandi og nærgætna þátt má sjá í heild sinni á spil­aranum hér fyrir neðan ásamt að hlaðvarp Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streymis­veitum á jörðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt