Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir nóg komið af götum með karlanöfnum: „Elísabetarstígur yrði hið mesta prýði í Reykjavíkurborg“

Elísabet horfir vongóð á skiltið
Elísabet horfir von­góð á skiltið

Elísabet Jökuls­dóttir og stuðnings­fólk hennar hefur hafið undir­skriftar­söfnun fyrir nafni á nýjum stíg sem lægi á milli Sólvalla­götu og Hringbrautar. Nafnið er Elísabetar­stígur.

Til stendur að búa til stíg sem yrði á milli Sólvallar­götu og Hringbrautar en stígurinn á að heita Hoffmannsstígur, í höfuðið á Pétri Hoffmanni Salómonsson, sjómanns og lífskúnstner. Rithöfundurinn, skáldið og gleði­gjafinn Elísabet Kristín Jökuls­dóttir hefur hafið undir­skriftar­söfnun fyrir öðru nafni fyrir stíginn, nefnilega Elísabetar­stígur. Rithöfundurinn bjó í 30 ár á svæðinu og setti svip sinn á hverfið.

Eftir­farandi texti er frá undir­skriftar­síðunni:

Elísabetar­stígur yrði hið mesta prýði í Reykja­víkurborg. Nú er gert ráð fyrir stíg sem lægi milli Sólvalla­götu og Hringbrautar, hann þá myndi þá skera í sundur gömlu húsin við Fram­nesveg og risa­byggingu sem verið er að reisa á gamla Bykóreitnum. Mikil mótmæli urðu við þessa risa­byggingu sem þótti úr stíl við gamla og töfrandi bæjarmynd, ásamt því að skerða sólar­lagið.

Stíginn átti að kenna við Pétur Hoffmann og kalla hann Hoffmannsstíg. Nú er Hoffmann löngu farinn undir græna torfu og auk þess einn af hinum hundruðum karla sem götur hafa verið kallaðar eftir í áranna rás. 

Hoffmann var frægur fyrir að gramsa í fjörunni eftir allskyns dóti sem hann kallaði gull. Hvað um það; Hofmann var skrítinn og skemmtilegur karl. En hvað um skrítna og skemmtilega konu!? Elísabet Jökuls­dóttir hafði búið í sínu Töfrahúsi einsog nágrannar hennar kölluðu húsið hennar.

Hún átti það til að stilla allskonar hlutum útí gluggana, björgunar­hringjum, skilti þarsem á stóð Mundu töfrana, þjóðbúninga­dúkkum, gyðjum ogsvfrv. Hún klæddist síðum rósóttum kjól og dansaði kringum Ufsaklett þegar hann stóð á umferðar­eyju. Á meðan hún bauð fólki í kaffi á steininum. Kveikti ljós í klettinum á áramótum. Sinnti stundum börnum sem áttu bágt í hverfinu. Börn komu og bönkuðu uppá og spurðu: Hver býr hér, mikið er þetta fallegt hús.

Og þannig urðu ævintýrin til hvert af öðru. En þarna bjó Elísabet í þrjátíu ár ásamt sonum sínum, gefum henni orðið: 

„Í húsinu skrifaði ég 26 bækur, í húsinu skrifaði ég leikrit í 30 ár, það var sama leikritið: Mundu töfrana. Ég fór í áfengis­meðferð og fékk nýtt líf, ég fór á geðdeild og fékk nýjan skilning á lífinu, ég fór í forseta­framboð og fékk skilning á sjálfri mér og þjóðinni. Ól upp strákana mína og eldaði óteljandi kjötsúpur en þeir færðu óteljandi pizzur inní húsið. Svo lék lúðra­sveit á tröppunum.

Þannig að Stígurinn minnir á Elísabetu, strákana hennar og alla íbúa hverfisins.

Þetta er einfald­lega nútímaleg hugmynd sem opnar nútímalegar víddir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt