Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Dauðvona Erla gefst ekki upp gegn yfirvaldinu: „Á meðan það er leið þá fer ég hana“

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lögmaður og Erla Bolladóttir
Sigrún Ingi­björg Gísla­dóttir lög­maður og Erla Bolla­dóttir Mynd: BG

Erla Bolla­dóttir hélt blaðamanna­fund í dag þar sem hún fór yfir stöðu mála er varða synjun dómstóla um endur­upptöku á Hæstaréttar­dómi sem féll árið 1980 þar sem Erla var dæmd í þriggja ára fangelsi í Guðmundar- og Geirfinns­málinu.

Erla Bolla­dóttir

Á blaðamanna­fundinum greindi hún frá því að hún hefði verið greind með ólæknandi krabba­mein. Sagðist hún þrá ekkert heitara en að hún fái að sjá réttlætinu fullnægt í málinu. Þá sagði hún að það kæmi sterklega til greina að skjóta málinu til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu. „Á meðan það er leið þá fer ég hana,“ sagði Erla er hún var spurð út í næsta skref.

Nauðgað í fangelsinu

Á fundinum var hún meðal annars spurð út í meinta nauðgun lögreglu­manns gegn henni í Síðu­múla­fangelsi árið 1976 en þá var hún þar í haldi. Löngu síðar kærði Erla málið en var þá hið meinta brot fyrnt og látið niður falla árið 2013.

Erla lýsti heimsókn lögreglu­mannsins í klefa hennar á eftir­farandi hátt:

„Það næsta sem ég veit er að hann girðir niður um sig. Er búinn að setja á sig verju og bara gengur hreint til verks. Hann er stöðugt að hlusta eftir því að það sé engin að koma. Hann var kannski tíu mínútur eða korter þarna inni. Allt í einu rýkur hann upp, segir eitthvað, hvíslar eitthvað: „Ekki tala um þetta,“ og fer,“.

Missti tengslin við dóttur sína

Aðspurð um áhrifin sem málið hefur haft á hana í gegnum árin sagði Erla að áhrifin hafi verið gríðar­lega mikil. Og nefndi dæmi:

„Samband mitt við fyrsta barnið mitt leið fyrir þetta, og gerir enn í dag. Hún var orðin tveggja ára þegar ég fékk hana til baka. Ég þurfti að berjast með miklum látum, því að það átti ekki að láta mig fá hana aftur,“ sagði Erla en dóttir hennar var ellefu mánaða er Erla var fyrst handtekin. „Við náðum ekki að mynda þessi tengsl sem móðir og barn mynda, í öllu þessu.“

Þá hafi heiftin verið gríðarleg í samfélaginu gegn henni eftir að henni var sleppt ú fangelsi og var allt þar til heimildar­mynd Sigursteins Mássonar, Aðför að lögum var sýnd. Þá hafi almenningur farið að spá meira í málinu. „Ég gat verið að labba og einhver allt í einu þekkti mig og byrjaði að úthúða mér, hrækja á mig. Mér var alls staðar sagt að hér væri ég ekki velkomin, fólk eins og ég. Að dauða­dómurinn ætti að vera í gildi fyrir fólk eins og okkur,“ sagði Erla á fundinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana