Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Arnar Þór hjá Sölva Tryggva: „Það er rosalega sterkur undirtónn fasisma í gangi í samfélaginu núna“

Sölvi verður ekki ákærður
Sölvi verður ekki ákærður

Arnar Þór Jónsson vara­þingmaður segir sterkan undirtón fasisma í samfélaginu og að við verðum að vera á varðbergi gagnvart samruna stór­fyrirtækja og stjórn­valda. Arnar talar í Podcasti Sölva Tryggva­sonar um þá þróun að stór­fyrirtæki séu að verða stærri og stærri og hvernig það endar á að verða lýðræðinu stór­hættulegt:

„Í viðskiptum er þessi þróun líka í gangi. Undir merkjum samkeppni fækkar stöðugt fyrir­tækjum og þau stóru verða stærri og stærri og í raun verður meiri og meiri fákeppni. Það eru fleiri og fleiri svið þar sem eitt, tvö eða þrjú fyrirtæki ráða nánast öllu og í staðinn fyrir að áherslan sé á verðmæta­sköpun er áherslan á samruna og yfirtökur svo að topparnir geti greitt sjálfum sér sem mestan arð. Þessi fyrirtæki eru oft alþjóðleg og þessi glóbalismi sem er stundum talað um er í raun þessi markaðs­hyggja á sterum sem hirðir ekkert um hagsmuni vinnandi fólks. Svo eru þessir risar í raun orðnir hættu­legir lýðræðinu af því að þeir vilja bara þagga niður í fólki sem er ekki sátt við þessa þróun og vill breytingar. Yfirmenn þessarra fyrir­tækja eru svo farnir að nota svipað tungumál og embættis­menn og það eru merki um ákveðinn samruna milli risa­fyrirtækja og hins opinbera. Það er eitt það hættulegasta sem gerist og ein alvarlegasta mynd­birting fasisma þegar stór­fyrirtæki og pólitíska valdakefið sameinast og talar sama máli gagnvart almenningi. Nú eru í gangi margar ráðstefnur og fleira þar sem er verið að taka ákvarðanir um að verja milljörðum af skattfé borg­aranna í verkefni sem eru beinteingd alþjóð­legum stór­fyrirtækjum.“

Arnar, segir að í svart hvít heimsmynd sé á uppleið í bæði hægri og vinstri hliðinni í stjórn­málum. Það sé hættuleg þróun sem við verðum að vera vakandi fyrir:

„Það er rosalega sterkur undirtónn fasisma í gangi í samfélaginu núna. Það er ákveðin hóphyggja í gangi sem er með mjög lítið þol fyrir efa og andstæðum skoðunum. Það er engin stemmning fyrir því að þú sem einstaklingur leyfir þér að vera sjálf­stæður og efast um það sem hópurinn er að hugsa. Það má finna þessa þróun bæði á hægri og vinstri vængnum og hlutunum er stýrt upp mjög svart hvítum og ekki mikið um samtöl þar sem blæbrigðin eru rædd. Það er alið svo mikið á ótta á þeim tímum sem við lifum núna og með því að hræra í pottum óttans er fólk fengið inn í fylkingar. Við sjáum þetta bæði á vettvangi stjórn­málanna og líka í fjöl­miðlunum. Einn fjöl­miðill boðar eina víddina og hinn bara eitthvað alveg öfugt. Ég vil hafa trú á fólki og einstaklingum og að við getum talað okkur saman inn í niður­stöðu með því að rökræða ólíkar skoðanir. Þannig getum við lifað saman með ákveðið rými sem einstaklingar, en samt í ákveðinni sátt.“

Arnar er á því að verkefni nútímans sé að ná aftur á þann stað að grunnur valdsins sé hjá þegnunum, en ekki valdhöfum og stofnunum:

„Viðfangs­efnið núna er í mínum huga fyrst og fremst að fólkið minni hið opinbera og stjórn­málamenn stöðugt á að grunnur valdsins er hjá borgurunum. Allt ríkisvald kemur frá borgurunum, sem gefa ákveðnum aðilum umboð til að fara með valdið um ákveðinn tíma. Þróunin bæði alþjóð­lega og á Íslandi núna er sú að það er sífellt meira verið að færa valdið frá einstaklingum yfir til valdhafa eða stofnana, sem jafnvel búa ekki einu sinni í sama landi. Þannig er í raun verið að aftengja eðlilega lýðræðis­lega vald­dreifingu. Fyrir mér verðum við að vera mjög vakandi yfir þessu núna, enda segir sagan okkur að það er full ástæða til þess. Maður heyrir dáldið mikið þessa hugmynd núna hjá ungu fólki að við höfum ekki frjálsan vilja sem einstaklingar. Með þeim rökum erum við ekki einu sinni siðferðis­verur sem höfum alltaf val og berum ábyrgð. Ef fólk trúir því að við séum bara hormón og hvatir erum við í mjög veikri stöðu gagnvart yfir­völdum.“

Arnar Þór segir áhugavert að á sama tíma og guðlast hafi verið gert leyfilegt með því að afnema það úr hegningar­lögum séu að verða til annars konar trúar­brögð, þar sem þeir sem eru ósammála séu eins og trúvillingar sem stundi nútíma guðlast:

„Við lifum núna á tímum þar sem má guðlasta, en það var ekki fyrr búið að heimila það með lögum að það verður til önnur hugmynda­fræði sem vill setjast í hásæti heilag­leikans sem má ekki gagnrýna. Það má til dæmis guðlasta, en það má ekki draga í efa loftslags­málin, þá ertu trúvillingur og fleira í þeim dúr. Nú er orðið til nýtt guðlast og rétt­trúnaðurinn ber öll merki kirkjunnar, nema án fyrirgefningar og umburðar­lyndis. Mann­skepnan virðist alltaf þurfa að trúa á eitthvað og hafa eitthvað til tilbeiðslu og þá er eins gott að við veljum eitthvað gott. Eitthvað sem heldur í skefjum okkar verstu tilhneigingum til ofbeldis og valda­græðgi.“

https://www.youtube.com/watch?v=uhX1oJZuXHM

Þáttinn með Arnari og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálgast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim