Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sigmundur ætlar að byrja með podcast: „Ég kannast ekki við að skoðanir mínar séu stórundarlegar“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrr­verandi forsætis­ráðherra, ætlar að byrja með hlaðvarp eða podcast. Þetta segir hann í færslu á Facebook þar sem hann jafnframt sver af sér fordóma gagnvart hinsegin fólki. Margir hafa sakað hann nýverið um að reyna að flytja til Íslands haturs­orðræðu í garð trans­fólks frá Bretlandi og Banda­ríkjunum.

Bjarni Snæbjörnsson er sá nýjast sem sakar Sigmund um þetta. Í viðtali við Frétta­blaðið í dag segir Bjarni: „Svo er til dæmis Sigmundur Davíð sem nýtir sér þessa fordóma til þess að ná inn atkvæðum með stór­undarlegum skoðunum sínum á trans málefnum. Þetta getur ekki viðgengist. Það getur verið mjög hættulegt að gera ekki neitt, sitja hjá og láta sig málin ekki varða og fóðra fordómana.“

Sigmundur svarar þessu, líkt og fyrr segir, á Facebook og þvertekur fyrir að hafa stór­undarlegar skoðanir. „Ég sé á vefnum frettabladid.is að ég hef komist inn í fyrirsögn helgar­viðtals við Bjarna Snæbjörnsson leikara um Hinsegin daga. Í viðtalinu segir hann: „Svo er til dæmis Sigmundur Davíð, sem nýtir sér þessa fordóma til þess að ná inn atkvæðum með stór­undarlegum skoðunum sínum á trans­málefnum.” Ég kannast ekki við að skoðanir mínar á málefninu séu stór­undarlegar, hvað þá fordóma­fullar (en reyndar var ég ekki sakaður um það að þessu sinni, ekki beint),“ skrifar Sigmundur.

Sigmundur segist ræða þessa mál því honum sé umhugað um jafnrétti allra. „Þetta er nefnt í samhengi við skotárás íslamista á London pub í Osló sem vill svo til að átti sér stað skömmu eftir að ég var þar og þegar þetta er skrifað er ég staddur í næstu götu. Mér er umhugað um að allir einstaklingar teljist jafn­réttháir og þess vegna finnst mér áhyggju­efni ef baráttu fyrir mann­réttindum er snúið á hvolf, t.d. með því að blanda saman hryðju­verkum og spurningum um hvort rétt sé að þeir sem fæðast karlkyns fái að keppa í kvenna­íþróttum,“ segir Sigmundur.

Að lokum bíður hann Bjarna að vera fyrsti viðmældi sinn í fyrr­nefndu podcasti. „Ég hef lengi hugsað mér að elta trendið (aldrei þessu vant) með því að búa til podcastþætti (hlaðvarp). Það væri heiður og ánægja ef Bjarni Snæbjörnsson væri til í að vera fyrsti viðmælandinn til að fræða mig og hlustendur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Parið var í hávaðarifildi að sögn lögreglu
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu konunnar um tvær milljónir króna í miskabætur þótt ökumaðurinn hefði sýnt af sér gáleysi.

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný