Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Íhugar að taka efni sitt af Spotify: „Áður fyrr gat maður selt diska til að ná upp í kostnað“

Hilmar Garðarsson
Hilmar Garð­ars­son

Tón­list­ar­mað­ur­inn Hilmar Garð­ars­son íhugar að taka plötur sínar af Spotify streym­is­sveit­unni.

Hilmar Garð­ars­son gefur út sína þriðju plötu eftir nokkrar vikur en veltir fyrir sér hvort hann eigi að sleppa því að setja hana á Spotify, því eftir að hafa greitt árgjald til að halda fyrri plötum sínum tveimur á streym­isveit­unni, kemur hann út í mínus.

„Platan mín Under The Influence er komin út. Á henni er ég að taka lög eftir aðra höf­unda. Hún kemur á streymi­veitur eftir 2 til 3 vikur en ég býð upp á nið­ur­hal í fullum gæðum á 2000 kr. Endilega hafið sam­band og ég sendi ykkur link. Mig langar að vekja athygli ykkar á streymi­veit­unum en 2017 setti ég plöt­una White Lotus sem var nýkomin út og plöt­una Pleased to Leave You á allar helstu streymi­veitur. Nokkrum árum síðar bætti ég við lög­unum Aleinn Á Ný og Haustlag. Lögin hafa verið spiluð 6291 sinnum mest á Spotify en ein­hver góð­hjart­aður ein­stak­lingur hefur keypt aðra hvora plöt­una á Apple music á 9 usd. Heildar greiðsla á 7 ára tíma­bili til mín fyrir þetta er 33.28 usd en árgjaldið sem ég borga fyrir það að vera á streymi­veit­unum er 39.99 usd, á 7 árum er það 279.93usd eða tap uppá 246.65 usd auk þess bæt­ast við 108 usd þar sem ég er að taka lög eftir aðra veit ekki hvort það er greitt einu sinni eða árlega.“ Þannig hefst Facebook-færsla Hilmars en hann tekur fram að hann sé ekki að „væla“, tím­arnir séu bara breyttir.

„Áður fyrr gat maður selt diska til að ná uppí kostnað en tím­arnir hafa breyst, vissu­lega er hægt að pressa vinyl en það er mjög dýrt langur bið­tími og lít­ill mark­aður en ef að ég fengi nógu marga þá er það ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að gera það. En ég tek það fram að ég er ekki að væla ég veit að tím­arnir hafa breyst en ég er ekki til­bú­inn til þess að borga með mér til þess að mús­íkin mín sé aðgengi­leg, ég sá heild­ar­hlustun og heild­ar­greiðslu síð­ast­liðið 7 ár áðan þegar að ég hlóð upp plöt­unni og sló þetta mig að sjá þetta, þar sem ég hef ekki pælt mikið í þessu.“

Að lokum seg­ist Hilmar ætla að hugsa málið og jafn­vel taka allt hans efni af streym­isveitum selja nið­ur­hal til áhuga­samra.

„En svo kostar að gera plötu bæði pen­inga og vinnu. Þannig að ég ætla að hugsa málið aðeins og hugs­an­lega að taka allt mitt efni af streymi­veitum og selja nið­ur­hal fyrir þá sem hafa áhuga t.d með því að gera vef­síðu. En nú er ég búinn að vekja athygli á þessu en með því að segja upp Spotify og ger­ast áskrif­andi af Tidal þá eruð þið strax að gera lista­mann­inum greiða þar sem Tidal borgar artistum tölu­vert meira heldur en Spotify. En nú er ég búinn að vekja athygli á þessu. En að lokum langar mig að þakka Menn­ing­ar­stofu Fjarða­byggðar sem styrkti þetta verk­efni um 150 þús­und, ég er þeim óend­an­lega þakk­látur fyrir það.“

Hér fyrir neðan má hlusta á smá­skíf­una Aleinn á ný sem Hilmar gaf út 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027