Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ásmundur Einar: „Hvorki í mínu valdi né aðstoðarmanna að lofa einstökum félögum háum fjárhæðum“

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra

Mennta- og barnamála­ráðherra, Ásmundur Einar Daðason, segir í samtali við Vísi að það sé ekki rétt að aðstoðar­maður hans hafi lofað íþrótta­félaginu ÍBV hundrað milljóna króna styrk út af tekju­bresti í heims­faraldrinum.

Hann segir það hvorki hlutverk hans né aðstoðar­manna hans að lofa einstökum íþrótta­félögum stórum fjárhæðum; það sé fjár­laganefnd sem fari með úthlutunar­vald í mála­flokknum.

Kemur fram að greint var frá því í gær, að Haraldur Pálsson framkvæmda­stjóri ÍBV, hefði sent fjár­laga­nefndinni erindi þar sem Haraldur óskaði eftir að nefndin tryggði að ríkið greiddi ÍBV 60 milljóna króna eftir­stöðvar af hundrað milljóna króna styrk; hélt Haraldur því enn fram að aðstoðar­maður Ásmundar Einars hafi „staðfest að félagið fengi 100 milljónir króna úr sjóðnum bæði í samtölum og í smáskilaboðum.“

Ásmundur Einar sagði í samtali við Vísi að fjár­laganefnd hafi samþykkt fjár­veitingu til ÍBV:

„Það var þannig að skila­boðin sem samþykkt voru á Alþingi kölluðu á það að við færum í samtal við fleiri íþrótta­félög; úr varð miklu stærri úthlutun sem er nú búið að samþykkja fjár­veitingar til upp á hátt í hálfan milljarð, sem þetta rennur inn í. Og er til allra íþrótta­félaga og þar með ÍBV.“

Hann er spurður um orð aðstoðar­manns hans:

„Eins og ég segi, að fjár­laganefnd samþykkti ákveðnar fjárhæðir þarna og það var með þeim skilyrðum að við ættum að skoða þetta í víðara samhengi. Það gerðum við og unnum eftir því. En hins vegar skil ég vel stöðu ÍBV sem voru búin að undirbúa þjóðhátíð og allt slikt, þannig að við munum reyna að vinna það líka.“

Hann segir það ekki rétt að aðstoðar­maður hans sé að lofa einhverju upp í ermina á sér:

„Það er bara ekki rétt. Það er fjár­veitinga­valdið, það er fjár­laganefnd á Alþingi sem fer með fjár­veitingar. Það var gert í þessu tilfelli, það var sérstak­lega tekið fram að þetta væri til ÍBV og annarra félaga sem væru í sambærilegri stöðu.“

Ásmundur Einar kannast ekki við að aðstoðar­maður hans hafi lofað peningum til ÍBV:

„Ég kannast ekki við það. Það er fjár­laganefnd sem lagði þetta til, ákveðnar fjár­veitingar og stuðning með þessum hætti. Það höfum við unnið enda er það hvorki í mínu valdi né aðstoðar­manna að lofa einstökum félögum háum fjárhæðum. En það er hins vegar líka rétt að ÍBV varð fyrir miklu tjóni þegar þjóðhátíð var slaufað í Covid-faraldri. Og ástæða þess að brugðist var við af hálfu fjár­laganefndar og ríkis­valdsins var meðal annars sú. En það eru fleiri íþrótta­félög í þessari stöðu og við erum að vinna með það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis