Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Krefst aðgerða vegna stöðu láglaunafólks og húsnæðisvanda

„Ég bið hana um að viðurkenna hátt og snjallt að vinnu­aflið fram­leiðir verðmætin“

Kristrún Frostadóttir
Kristrún Frosta­dóttir Sólveig Anna krefur for­sæt­is­ráð­herra um aðgerðir í þágu lálauna­fólks Mynd: Víkingur

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, hvetur Kristrúnu Frosta­dóttur forsætis­ráðherra til að grípa til raun­verulegra aðgerða til að bæta stöðu verka- og láglaunafólks. Í færslu á Facebook segir hún að ástandið á húsnæðis­markaði sé óviðunandi og að ríkið verði að axla ábyrgð.

„Ég bið forsætis­ráðherra að grípa til raun­verulegra aðgerða til að lina efnahagsleg vandamál verka og láglaunafólks sem er fast á gróða­væddum leigu­markaði,“ skrifar hún.

Sólveig Anna bendir á að nærri 4.000 manns séu nú á biðlista hjá Bjargi íbúða­félagi í þeirri von að losna undan gróða­drifnum leigu­markaði. Hún segir íslenska yfirstétt hafa, í kjölfar banka­hrunsins, breytt húsnæði almennings í fjár­festingar­kost fyrir sig og hagnast stórlega á því.

Hún gagnrýnir jafnframt stjórn­völd fyrir að hafa árum saman leyft þessu kerfi að þróast, með aðgerða­leysi eða beinum aðgerðum, og að það hafi skapað djúpa stétt­skiptingu og efnahagsleg vandamál sem erfist milli kynslóða.

„Ég bið hana um að viðurkenna hátt og snjallt að vinnu­aflið fram­leiðir verðmætin og heldur með vinnu sinni umönnunar­kerfum þjóð­félagsins starf­hæfum,“ segir Sólveig Anna, sem gagnrýnir jafnframt stjórn­málamenn fyrir að líta fram hjá þörfum verka- og láglaunafólks.

Hún segir stétt­skiptingu og misskiptingu vera samfélagslegt eitur og að forsætis­ráðherra ætti að hafa mun meiri áhyggjur af þeim vanda­málum sem slíkt skapar heldur en af „tón og orðum þingmanna“ en við færsluna birtir Sólveig Anna skjáskot af frétt RÚV þar sem sagt er frá því að Kristrún hafi beðið þingmenn um að gæta orða sinna á þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Peningar

Kröfu­hafar Skagans 3X boðaðir á fund

Félagið var úrskurðað gjaldþrota í júlí 2024. Kröfuhafar geta nú kynnt sér tillögu að úthlutun úr þrotabúinu.
  • Kaup­máttur jókst um 5,8 prósent frá upphafi kjara­samninga­lotunnar

  • Skiptum lokið á þrotabúi Talays

  • Elís segist hafa tapað 100 milljónum í viðskiptum við fjárfesta

  • Prett­yboitjokkó stofnar fyrirtæki með fyrrum lands­liðsmanni

  • Landsliðs­konur í ný störf