Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi

Ekki hefur komið fram hvers vegna hann ferð­að­ist til Rúss­lands

Vladimír Pútín forseti Rússlands
Vladimír Pútín for­seti Rúss­lands Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: AFP

Stjórn­andi hjá kvik­mynd­aris­anum Disney hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi í Rúss­landi eftir að hafa verið fund­inn með fíkni­efni við kom­una til lands­ins fyrr á þessu ári. Frá þessu greina rúss­neskir rík­is­fjöl­miðlar.

Maðurinn, sem rúss­neskir fjöl­miðlar nefna Jugal Daterao, er sagður hafa verið stöðv­aður við toll­skoðun á Sher­em­etyevo-flug­velli í Moskvu í jan­úar síð­ast­liðnum. Við leit hafi fund­ist gúmmí­bangsar sem inni­hélt fíkni­efni.

Samkvæmt frétta­stof­unni TASS var Daterao á leið til Rúss­lands frá Katar. Nokkrir rúss­neskir fjöl­miðlar segja hann vera ind­verskan rík­is­borg­ara. Ekki hefur komið fram hvers vegna hann ferð­að­ist til Rúss­lands.

Í dóms­mál­inu hélt Daterao því fram að efnið hefði verið lög­lega ávísað honum í Banda­ríkj­unum vegna heilsu­far­s­vanda­mála eftir heila­að­gerð. Þrátt fyrir það var hann fund­inn sekur um fíkni­efna­smygl og dreif­ingu fíkni­efna sam­kvæmt nið­ur­stöðu dóm­stóls í Moskvu-hér­aði.

Dómurinn hljóðar upp á tveggja ára og sex mán­aða fang­elsi í refsi­vist­ar­ný­lendu auk sektar upp á 30 þús­und rúblur, jafn­virði um 420 banda­ríkja­dala.

Ekki hefur borist opin­ber yfir­lýs­ing frá Disney vegna máls­ins.

Samkvæmt LinkedIn-síðu Daterao hefur hann starfað hjá The Walt Disney Company frá árinu 2019 sem stjórn­andi afþrey­ing­ar­verk­efna. Á Facebook-síðu hans kemur fram að hann búi í New Jersey í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­ver­andi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúx­us­ferða­tösku

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu