Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Álykta gegn lokun Borgarskjalasafnsins: „Lykilstofnun þegar kemur að varðveislu opinberra skjala“

Borgarbókasafn Reykjavíkur
Borg­ar­bóka­safn Reykja­víkur

Stjórn Félags héraðs­skjalavarða á Íslandi kom saman til fundar í gær og í kjölfarið var eftir­farandi ályktun um málefni Borgar­skjalasafns Reykja­víkur samþykkt samhljóða af stjórninni:

Stjórn Félags héraðs­skjalavarða á Íslandi lýsir yfir áhyggjum sínum vegna þeirrar tillögu borgar­stjóra að loka Borgar­skjalasafni Reykja­víkur.

Borgar­skjala­safnið á sér langa og merka sögu og er lykil­stofnun þegar kemur að varð­veislu opinberra skjala Reykja­víkurborgar, stofnana borgarinnar og fyrir­tækja. Þó lög heimili að slík skjöl séu varðveitt á Þjóð­skjalasafni Íslands eru þau betur komin á sérhæfðu safni sem varðveitir, miðlar og veitir aðgang að þeim í samræmi við þarfir, væntingar og metnað borgarinnar til þjónustu við íbúa og skilvirkni stjórn­sýslunnar. 

Þá eru ótalin þau fjölmörgu einka­skjalasöfn sem varðveitt eru í Borgar­skjalasafni, en varsla þeirra til framtíðar, sem og áfram­haldandi söfnun slíkra skjala, er sett í algjört uppnám með þessari tillögu.

Stjórn Félags héraðs­skjalavarða á Íslandi telur einnig ástæðu til að efast um að tillaga borgar­stjóra leiði af sér neina verulega fjárhags­lega hagræðingu þar sem Reykja­víkurborg, stofnanir borgarinnar og fyrirtæki munu eftir sem áður bera ábyrgð á og greiða kostnað af frágangi og varð­veislu skjala sinna í Þjóð­skjalasafni Íslands. Skorað er á Reykja­víkurborg að opinbera þær fjárhags­legu forsendur sem tillagan byggir á svo að fram megi fara opin og hrein­skiptin umræða um þær með aðkomu sérfræðinga á sviði skjala­vörslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim