Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hveiti- og sykurlaust kex

Það er lítið mál að útbúa ýmis­konar kex úr hnetum og fræjum og sleppa þar með hveiti og sykri. Þetta nær­ing­ar­ríka kex er stút­fullt af holl­ustu og er til­val­inn val­kostur við brauð þegar skera á niður kol­vetni í matar­æð­inu.

|
|

Fíkju- og val­hnetu­kex
u.þ.b. 25 stk.

Hafra­mjöl telst varla til kol­vetna­snauðs fæðis en það er glút­en­laust, gríð­ar­lega nær­ing­ar­ríkt og hollt fyrir okkur. Hafra­mjöl er talið lækka hætt­una á að fá áunna syk­ur­sýki, lækka kól­esteról, draga úr hættu á hjarta­sjúk­dómum og hjálpa til við þyngd­ar­stjórnun. Það er því góður val­kostur fyrir þá sem vilja sleppa hveiti.

3 dl hafra­mjöl
40 g mjúkt smjör
2 greinar ferskt rós­marín, laufin smátt söxuð (eins má nota 2 tsk. af þurrk­uðu rósamar­íni)
2 msk. hörfræ
½ tsk. salt
3-4 dropar stevía
½ dl rjómi
8 gráfíkjur, skornar smátt
40 g val­hnetur, smátt saxaðar
1 egg

Setjið hafra­mjöl í mat­vinnslu­vél og látið hana ganga þar til það er orðið að fínu mjöli. Bætið smjöri, rós­mar­íni, hörfræjum, salti, stevíu og rjóma saman við og látið ganga í stutta stund. Setjið gráfíkjur, val­hnetur og egg saman við og blandið vel. Látið deigið á bök­un­ar­pappír og mótið lengju sem er u.þ.b. 4 cm í þver­mál. Vefjið rúll­una inn í bök­un­ar­papp­ír­inn og setjið í kæli í a.m.k. 1 klst.

Stillið ofn á 175°C. Skerið rúll­una í u.þ.b. 1 cm þykkar sneiðar og raðið þeim á bök­un­ar­papp­írs­klædda ofn­plötu. Bakið í u.þ.b. 20 mín. Látið kólna.

Sítrónu­kex
u.þ.b. 25 stk.

100 g möndlu­mjöl
50 g kókos­mjöl
2 msk. birkifræ
½ tsk. salt
2 msk. kókos­olía
2 msk. hun­ang
safi og börkur af ½ sítrónu

Stillið ofn á 175°C. Blandið saman möndlu­mjöli, kókos­mjöli, birkifræjum og salti. Hitið kókosolíu, hun­ang, sítrónusafa og sítrónu­börk var­lega saman í potti og blandið saman við þurr­efnin. Fletjið deigið þunnt út á milli tveggja arka af bök­un­ar­pappír. Takið efri örk­ina var­lega af og skerið í bita með pít­su­kera. Bakið í 8-10 mín. Látið kólna alveg.

Texti / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir
Umsjón / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni