Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Börnin sem fæddust í sjúkrabílunum – „Þetta gerðist svo hratt – svo var þetta bara búið“

Þau eru fjölmörg íslensku börnin sem hafa legið svo á að komast í heiminn að þau fæddust í sjúkra­bílnum á leiðinni á spítalann. Fyrsta barn þessa árs fædd­ist til að mynda í sjúkra­bíl á leið frá Dal­vík til Ak­ur­eyr­ar klukk­an 00:23 á nýársnótt og var það stúlku­barn sem vó 14 merkur.

Foreldrar ungu stúlkunnar, þau Elfa Sif Kristjáns­dóttir og Ásgeir Frímannson, búsett á Ólafs­firði, voru í sjötugsafmæli á Siglu­firði þegar móðirin missti legvatnið. Hringt var á sjúkrabíl og barnið fæddist í bílnum á miðri leið, í sveitinni milli Dalvíkur og Akureyrar.

Elfa Sif Krist­jáns­dóttir og stúlkan hennar í sjúkra­bílnum á nýársnótt síð­ast­liðna.

Þau Elfa Sif og Ásgeir ræddu fæðinguna við RÚV í upphafi ársins. „Þetta var alls ekki skipulagt svona. Alls ekki. Það var bara þarna um tíuleytið sem að ég missti vatnið og bara nokkrum mínútum seinna voru sjúkra­flutninga­mennirnir mættir og við náðum í ljós­móðurina á Dalvík keyrðum aðeins áfram en þurftum svo að stoppa og hún fæddist þarna 23 mínútur yfir tólf á afleggjaranum hjá Kálfs­skinni. Þetta var svona óvenjulegt gamlárs­kvöld fyrir manni,“ sögðu foreldrarnir ungu.

Í brekkunni á Sauðárkróki – Desember 2017

Það var þann 4. desember á árið 2017 sem lítil dama skaust bókstaf­lega í heiminn í Hverfis­brekkunni á Sauðár­króki.

Klukkan var 6:54 þegar útkallið kom, fyrsti forgangur, barn á leiðinni.

Það voru sjúkra­flutninga­mennirnir Yngvi Yngvason og Sigur­björn Björnsson sem mættu á heimili þeirra Ólafar Aspar Sverris­dóttur og Snorra Geirs Snorra­sonar, sem áttu von á sínu þriðja stúlku­barni.

Ólöf vaknaði um klukkan fimm um morguninn með mikla verki og ákvað að fara í sturtu í von um að það myndi slaka á verkjunum, án árangurs. Sagðist hún þó hreinlega ekki hafa verið viss um að hún væri komin svo langt því henni fannst verkirnir ekki vera nógu reglu­legir. „Þegar foreldrar mínir komu til að taka eldri stelpurnar fór ég að gera mér grein fyrir því að ég þyrfti að fara rembast svo ég sagðist ekki vera fara á Akureyri.“

– Auglýsing –

Engin ljósmóðir var á vakt á Sauðár­króki og því náðist ekki í hana, sem Ólöf sagði hafa flækt stöðuna, auk þess að valda stressi og óvissu. Á endanum bað Ólöf móður sína að keyra heim til ljós­móðurinnar og ná í hana.

Ólöf heldur á döm­unni sem lá svo mikið á að kom­ast í heim­inn, Snorri heldur á Emblu Nótt og á milli þeirra er elsta systirin í hópnum, Emilía Rós.

Ákveðið var að fara á Heilbrigðis­stofnun Sauðár­króks (HSN) og taka stöðuna þar, í stað þess að bruna beint til Akureyrar á fæðingar­deildina, þar sem legvatnið var ekki farið.

„Ekki vorum við komnir langt þegar vatnið fór og Sibbi kallar: „Það er að koma!“, sagði Yngvi í viðtali við Feyki, héraðs­fréttablað Norður­lands vestra skömmu eftir þessa eftir­minnilegu vakt. Og það var mikið rétt. Barnið var svo sannarlega að koma og fæddist það í sjúkra­bílnum í Hverfis­brekkunni.

– Auglýsing –

Yngvi sagði hrærður frá því að þau öll hefðu verið í hálfgerðu sjokki yfir hve hröð atburða­rásin var. „Við fórum að annast barnið sem fór stuttu seinna að gráta, þvílíkur léttir! Í þann mund mæta ljósmóðir og læknir og var yndisleg stúlka fædd 21 mínútu eftir að útkallið barst.“

Að sögn Ólafar var dóttir hennar ansi slöpp þegar hún mætti í heiminn „en sjúkra­flutninga­menn, læknir og ljósmóðir stóðu sig frábærlega að koma dömunni almennilega í gang eftir allan hama­ganginn.“ Hún sagði að þarna hafi alls ekki verið um drauma­stöðu að ræða og henni hafi þótt erfitt að vera ekki með fagmanneskju sér til aðstoðar.

Í dag er stúlkan litla sem var að flýta sér svo í heiminn, hún Erika Mist, orðin fimm ára og er að sögn föður síns hraust og flott stelpa. „Henni virðist ekki hafa verið meint af þó hún hafi komið með hraði í heiminn,“ sagði Snorri léttur í bragði í samtali við Mannlíf. Snorri er afar þakklátur sjúkra­flutninga­mönnunum og ljós­móðurinni sem hann segir að hafi staðið sig frábærlega þennan örlaga­ríka morgun.

Erika Mist er nú orðin stóra systir, en lítill bróðir kom í heiminn í mars í fyrra. Honum lá ekki jafn mikið á og systur sinni, en fæddist samt á Sauðár­króki þó engin fæðinga­deild sé þar. „Við vorum lögð af stað til Akureyrar en þá var ófært svo við þurftum að snúa við og hann fæddist hér á HSN,“ segir Snorri og bætir við „það tók þó pínu lengri tíma heldur en með systur hans.“

Í bílasalnum á slökkvistöðinni – September 2020

Slökkvilið höfuð­borgar­svæðisins fékk heldur óvænta heimsókn að kvöldi í september­mánuði árið 2022 þegar boð barst frá ljósmóður á Land­spítala um að von væri á barns­hafandi konu sem væri í þann mund að eignast barn.

Foreldrarnir voru á leið á fæðingar­deild Land­spítalans en sáu ekki fram á að komast á leiðar­enda í tæka tíð þar til barnið kæmi í heiminn. Því beindi ljósmóðir, sem þau voru í síma­sambandi við, foreldrunum að slökkvistöð Slökkviliðs höfuð­borgar­svæðisins í Skógar­hlíð, og gerði slökkviliðs­mönnum viðvart um komu þeirra. Þeir tóku á móti foreldrunum í bílasal slökkvistöðvarinnar og fluttu konuna úr heimilis­bílnum yfir á sjúkra­börur og áleiðis inn í sjúkrabíl.

Litla stúlkan kom í heim­inn á slökkvi­stöð­inni í Skóga­hlíð. Mynd / Slökkvlið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Þegar í sjúkra­bílinn var komið dró heldur en ekki til tíðinda því réttum tveimur mínútum eftir komuna þangað fæddist myndar­stúlka á slaginu 20:00. Sjúkra­bíllinn stóð þá ennþá inni í bíla­salnum.

Á Laugarásvegki og í Grindavík – September 2016/Apríl 2002

Næturvakt slökkviliðsins á höfuð­borgar­svæðinu hafði í nægu að snúast eina dimma nótt í september 2016 en sjúkra­flutninga­menn tóku á móti tveimur börnum seint um kvöldið og um nótt. Samkvæmt varð­stjóra hjá slökkviliðinu var tekið á móti barni við Laugarásveg um nóttina. Foreldrarnir voru ekki komnir inn í sjúkra­bílinn þegar barnið ákvað að nú væri tímabært að koma í heiminn.

Lítill drengur fæddist í apríl 2002 í sjúkrabíl á leiðinni frá Grindavík til Heilbrigðis­stofnunar Suðurnesja. Tveir sjúkra­flutninga­menn og læknir voru í bílnum og aðstoðuðu móður við fæðinguna.

„Barnið fæddist svo einhver­staðar á leiðinni,“ sagði talsmaður sjúkra­flutnings­mannanna í samtali við Víkur­fréttir. Bifreiðin var ekki stöðvuð, heldur haldið áfram á Heilbrigðis­stofnun þar sem fjölmennt lið tók á móti móður og nýfæddu barni.

Þetta var ekki í fyrsta skipti sem barn fæðist í sjúkrabíl frá Grindavík en 12-13 árum áður fæddist barn í Grinda­víkurbílnum við álverið í Straumsvík.

Náðu ekki á Selfoss – Ágúst 2021

„Ég vissi að þetta gæti alveg gerst hratt, þar sem fæðingin hjá elsta barninu mínu gekk líka mjög hratt, en ég átti ekki alveg von á því að þetta myndi gerast svona hratt.“

Þetta sagði Karen Óskars­dóttir sem fæddi barn í sjúkrabíl á Skeiða­vegi í ágúst 2021. Karen og eigin­maður hennar, Jón Marteinn Finnbogason, búa í Skeiða- og Gnúp­verjahreppi og það tekur þau sirka fjörutíu mínútur að keyra á Selfoss. Þangað náðu þau ekki því litla stúlkan kom í heiminn í sjúkra­bílnum á leiðinni, 13 merkur.

„Systir mín hringdi í mig rétt fyrir tíu um kvöldið og spurði hvort hún geti sofið rólega um nóttina. Ég var búin að vera með einhverja samdrætti yfir daginn en ég bjóst ekkert við að vera fara af stað. Ég sagði henni að það væri ekkert að gerast og skellti á hana,“ segir Karen.

Jón Marteinn og Karen með litlu stúlk­una. Mynd / Aðsend

„Tuttugu mínútum síðar hringdi ég í hana og sagði henni að verkirnir væru að versna og að við ætluðum að leggja af stað á Selfoss. Þegar við erum að leggja af stað, um klukkan hálf ellefu, finn ég að verkirnir eru harðna og það verður alltaf styttra á milli,“ segir Karen.

Ákveðið var að klára fæðinguna í sjúkra­bílnum við Skál­holts­afleggjarann þar sem barnið var við það að fæðast. „Sex mínútur fyrir miðnætti var hún fædd. Allt gekk vel og allt fór vel. Ég var í góðum höndum með tvær ljósmæður við hlið mér og þrjá sjúkra­flutninga­menn. Mér leið ekkert illa, leið bara eins og ég væri á spítalanum,“ sagði Karen og bætti við:

„En þetta gekk allt svo hratt yfir að maður gat ekki mikið verið að spá í því að fara í aðra stellingu. Þetta gerðist svo hratt – svo var þetta bara búið.“

Snjóruðningstæki á undan sjúkrabílnum – Mars 2013

„Þetta mun lík­lega seint gleym­ast“ sagði Guðberg­ur Rafn Ægisson í mars­mánuði 2013 er Guðrún Sigríður Geirs­dóttir eignaðist son þeirra í sjúkra­bílnum á leiðinni á Sjúkra­húsið á Akureyri. Þau eru íbúar á Húsavík og var mikil ófærð á Víkur­skarði þessa nótt.

Þar að auki sátu tvær stór­ar bif­reiðar fast­ar á veg­in­um og því var ekki hægt að ryðja hann. Gripið var til þess ráðs að senda snjó­ruðnings­tæki á und­an sjúkra­bíln­um til að ryðja gömlu leiðina yfir Dals­mynni í Fnjóska­dal.

Guðrún og Guð­bergur með litla dreng­inn í mars 2013.

Í samtali við Morgun­blaði sagði Guðberg­ur að hon­um hafi vissu­lega ekki staðið á sama í þess­um óþægi­legu aðstæðum. „Við sáum ekk­ert hvar við vor­um vegna blind­hríðar. Við þurft­um oft að stoppa bíl­inn vegna þess að við sáum ekki á milli stika. Við vor­um bara ein­hvers­staðar í Dals­mynn­inu þegar barnið fædd­ist. Maður sá að þetta gekk vel og þá hugsaði maður ekk­ert mikið um að maður væri stadd­ur út í óbyggðum.“

Fjölgaði um einn í sjúkra­bílnum – 16. ágúst 2019 og 2. janúar 2020

Farþegum fjölgaði um einn í sjúkrabíl Bruna­varna Suðurnesja á ellefta tímanum að kvöldi 16. ágúst 2019. Sjúkra­flutninga­menn óku þá með þungaða konu frá fæðingar­deild Heilbrigðis­stofnunar Suðurnesja áleiðis til fæðingar­deildar Land­spítalans.

Eitthvað lá barninu á að komast í heiminn og fæddi móðirin það inni í sjúkra­bílnum á Reykja­nesbrautinni. Ljósmóðir var með í för, og sagði varð­stjóri Bruna­varna Suðurnesja að móður og barni hafi heilsast vel eftir bílferðina.

Sjúkra­flutninga­menn tóku á móti dreng inni í sjúkrabíl fyrir utan Land­spítalann í Reykjavík um þrjúleytið að degi til, 4. janúar 2020. Um klukkan hálfþrjú hafi slökkviliði borist tilkynning um konu sem komin væri í hríðir og að stutt væri á milli þeirra.

Tekin hafi verið ákvörðun um að senda konuna á Land­spítalann með sjúkrabíl en ekki hafi verið komist lengra en svo að drengurinn hafi fæðst inni í bílnum, á bílastæði fæðingar­deildarinnar, þar sem sjúkra­flutninga­menn tóku á móti honum.

Fæddist í bílskýli sjúkrabílanna – Október 2011

Í október 2011 fæddist barn í sjúkrabíl frá Grundar­firði. Sjúkra­flutninga­menn voru kallaðir út um hádegisbil til að flytja konu á fæðinga­deild HVE á Akranesi.

Anna með litlu stúlk­una sína.

Barninu lá hins vegar svo á að komast í heiminn að það gat ekki beðið þar til sjúkra­bíllinn komst alla leið á Akranes. Þegar nálgast var Borgarnes var konan, Anna Gorzelska, komin að fæðingu og brugðu sjúkra­flutninga­menn og ljósmóðir sem var með í för á það ráð að renna að heilsu­gæslu­stöðinni í Borgarnesi. Farið var í bílskýli sjúkra­bíla, þar sem Anna fæddi 14,5 marka stúlku.

„Við sáum það strax þegar við lögðum af stað frá Grundar­firði að við myndum jafnvel ekki ná alla leið. Fæðingin gekk mjög hratt fyrir sig en þetta er annað barn þeirra hjóna. Þegar við vorum síðan komin að Langá á Mýrum ákváðum við að gera barnið að Borgnesingi og stoppuðum þar. Aðal­atriðið er að allt gekk ljómandi vel og þetta var yndis­legur dagur,” sagði Hildur Sæmunds­dóttir ljósmóðir í samtali við Skessu­horn.

Ein í einangrun – Febrúar 2022

Aðfara­nótt þriðjudags í febrúar á þessu ári tók Berglind Anna Bjarna­dóttir sjálf á móti fjórða barni sínu og fyrstu dótturinni. Hún var þá í Covid-19 einangrun heima fyrir með þremur ungum sonum sínum.

Þetta var síðasta dagur einangrunarinnar og var eigin­maðurinn, Róbert Bjarni Bjarnason flug­stjóri, utan heimilisins til að forðast smit. Enn voru áætlaðar þrjár vikur í komudag dótturinnar og fram að þessu hafði Berglind ávallt gengið fulla meðgöngu.

„Ég vaknaði að ganga fimm um morguninn og hélt ég væri að pissa á mig.,“ sagði Berglind í samtali við Frétta­blaðið, en hún varð aldrei ótta­slegin í hamagangnum heima fyrir.

Fjöl­skyldan heim­komin með tvö yngstu börnin; Henrik og Ólavíu Rós, í fang­inu og stoltir stóru bræð­urnir Matthías og Bjarni.

„Ég veit það ekki, þetta eru svo margar tilfinningar. En þegar þetta gerist svona hratt eins og í mínu tilfelli þá hristist hreinlega allur líkaminn. Þetta er nátt­úrlega rosa „power“ á stuttum tíma. Ég átti alveg von á að hafa neyðar­línuna í beinni á meðan á þessu stæði en svo var ekki.“

Dren­girnir þrír sváfu í sínum herbergjum um nóttina en Bjarni, sá elsti, vaknaði rétt áður en litla systir kom í heiminn og varð vitni að hinum stóra viðburði.

„Ég næ nú kannski ekki að vera alveg hljóðlát í þessum miklu verkjum og á meðan ég er að hringja um allt, svo hann vaknar við lætin. Ég var í miðri hríð þegar ég var að reyna að koma heimilis­fanginu til skila og reyndi að segja það eins skýrt og ég gat. Næst þegar ég leit á símann var bara búið að skella á svo ég vissi ekkert hvort það hefði tekist. Mér varð þá litið í spegil við hlið mér og sá þá hausinn kominn út og áttaði mig á því að við næstu hríð þyrfti ég að grípa hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja