Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Blindu hjónin fengu loksins að fljúga til Íslands: „Þetta mál er engan veginn búið“

Hjón sem eru blind og flug­félagið SAS hefur meinað ítrekað um flugfar eru loks komin til landsins – í þriðju tilraun.

Kemur fram á vef RÚV að kona sem var í sama flugi hafi verið hjónunum innan handar og dugði það til að þau fengu að fljúga hingað heim.

Er það tekið fram að hjónin ætla að leita réttar síns vegna málsins.

Eyþór Kamban Þrastarson, Emilía Pykarinou og ársgömul dóttir þeirra áttu flug frá grísku höfuð­borginni Aþenu til höfuð­borgar Danmerkur, Kaupmanna­hafnar, fyrir rúmri viku síðan, og þaðan áfram til Íslands.

Hjónin voru með bókaðan miða, en þeim var vísað frá í tvígang á föstudegi og sunnudegi.

Ástæðan sem þeim var gefin var sú að hjónin þyrftu að greiða fyrir fylgdar­mann; að öryggi væri ekki tryggt um borð:

„Flug­félagið krafðist þess að við værum í fylgd annarrar manneskju. Okkur tókst með herkjum að finna aðra íslenska konu sem að var að ferðast með þessu flugi í raun viku eftir að við áttum að ferðast, en sama leggnum með SAS frá Grikk­landi til Íslands,“ segir Eyþór.

Blindra­félagið sem og ræðis­maður Íslands í Grikk­landi hafa farið í málið til að fólkið fengi að fljúga burtu frá Grikk­landi með SAS:

„Þetta mál mun bara fara áfram. Þetta er engan veginn búið. Við erum engan veginn sátt við það að við höfum verið skikkuð til að finna manneskju til að fljúga með okkur og hvað þá að borga fyrir það. Við þurftum að vísu ekki að borga núna því að þessi manneskja var bara með sinn eigin miða og var að fara í sama flug,“ segir Eyþór og bendir á að 5 ára barn geti ferðast án fylgdar­manns.

Hann telur að það að hjónin ferðuðust með eins árs dóttur sína með sér hafi haft áhrif á ákvörðun flug­félagsins um að hleypa þeim ekki um borð, og aðspurður svarar Eyþór því hvort hann og kona hans treysti sér semsagt til að sjá um eins árs gamla barn:

„Já annars hefðum við ekki mætt út á flugvöll.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fanginn missti heimild til samfélagsþjónustu og fékk ekki að ljúka afplánun á Vernd.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis