Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sigursteinn Másson er með Covid og varar við nýjum afbrigðum: „Mikil hætta á ferðum“

Sigursteinn Másson
Sig­ur­steinn Másson

Sigursteinn Másson, kvikmynda­gerðarmaður, fram­leiðandi og handrits­höfundur með meiru, er með Covid-19 í fyrsta sinn og vill vara fólk við hinum nýju afbrigðum kórónu­veirunnar sem nú greinast í síauknum mæli víða um heim. Þau virðast bæði bráð­smitandi og ónæmari gegn bólu­setningum og fyrri sýkingum en önnur afbrigði sem á undan komu.

Sigursteinn er nú á sjötta degi veikinda sinna og segist hafa farið í gegnum „allt hlað­borðið af einkennum“, fyrir utan þó að missa bragð- og lyktar­skyn.

„Þetta er ævintýra­ferð,“ segir hann þegar blaða­maður spyr hvernig heilsan sé. Hann segist hafa haldið og vonað að hann hafi verið kominn í var hjarð­ónæmis, þar sem hann hafi ekki smitast af veirunni áður. Það hafi því miður ekki verið raunin. „Þessi veira hefur þróast þannig núna að hún er að sjá svona rækilega við sjálfri sér.“

Sigursteinn segir að talað hafi verið um Omicron sem vægt afbrigði, enda hafi fyrstu afbrigðin sem komu frá Suður-Afríku verið það. „En það sem hefur verið að gerast núna í vor, sérstak­lega svo núna í júní og byrjun júlí, er að þessi B4 og B5 afbrigði eru bara alveg búin að taka yfir. Einkenni þeirra eru meira eins og Alfa- og Delta-afbrigðin, sem var upphafið að þessu öllu saman á Íslandi og í heiminum. Það versta við þetta, sem maður les núna, er að þetta myndar ekki ónæmi gegn sjálfu sér eins og öll fyrri afbrigði hafa gert. Sumar grein­arnar sem ég hef verið að lesa núna í morgun segja að allt bendi til þess að fólk geti þess vegna verið að smitast af þessum tegundum af Omicron á mánaðar­fresti. Þá erum við í verulega vondum málum.“

Undan­farið hafa fréttir borist af fjölgandi smitum Covid-19, til að mynda í Bretlandi og Banda­ríkjunum. Smitum hefur einnig fjölgað talsvert hér á landi. Hin nýju afbrigði Omicron, BA.4 og BA.5, virðast keyra undan­farna aukningu áfram, en afbrigðin bera nú ábyrgð á yfir helmingi nýrra smita í Englandi. Á vef CNN í júní birtist frétt sem sagði nýju afbrigðin tvö virðist sleppa fram hjá vörnum bæði fyrri smita og bólu­setninga. Samkvæmt frétt NBC frá 7. júlí eru afbrigðin þau lang­algengustu í nýjum smitum Covid-19 í Banda­ríkjunum og virðast meira smitandi en fyrri afbrigði. Samtals bera afbrigðin ábyrgð á um 70 prósentum nýrra tilfella í Banda­ríkjunum.

Ýmist í ökkla eða eyra

„Í ljósi þessa, af því að þetta er alveg ný staða, finnst mér skorta umræðu um þetta – ég furða mig í rauninni á því að hafa hvergi séð þetta í fjöl­miðlum öðruvísi en að virkilega leita að þessu. Það er ýmist í ökkla eða eyra í þessu. Þetta var alveg fullmikið á sínum tíma; það var ekki hægt að opna fjölmiðla öðruvísi en að allt væri vaðandi í þessu. En núna, þegar við erum í þessari stöðu, þá finnst mér mjög merkilegt að það skuli ekki vera miklu meiri umfjöllun. Maður sér auðvitað að rann­sóknirnar eru frekar svona á byrjunar­stigi. Þau hafa verið að rannsaka hamstra og eitthvað, til þess að reyna að skoða saman­burðinn á þessu og öðrum afbrigðum. En það sem kemur í ljós er að einkennin af þessu eru alvarlegri en af fyrri afbrigðum Omicron, það góða við það var að það fór ekki í lungun. Þess vegna hefur það ekki drepið fólk eins mikið og fyrri afbrigðin. En þetta getur farið í lungun. Þetta er búið að taka yfir öll hin afbrigðin og það hefur bara gerst á nokkrum dögum. Þannig að ég er bara hissa á því að það skuli þá ekki allavega vera umræða um það, að fólk sé þá ekki að láta eins og enginn sé morgun­dagurinn.“

Honum þykir það andrúms­loft alltumlykjandi, að allt sé í lagi og ekkert hafi í skorist. „Við þurfum að fara varlega og þetta er ný staða. Ég skil ekki hvers vegna sóttvarna­læknir er ekki að koma opinber­lega fram með þetta.“

Sigursteinn segist ekki í nokkrum vafa um að hann sé með annað þessara nýju afbrigða, líklega BA.5, miðað við þau einkenni sem hann hefur haft. Honum finnst mikilvægt að fólk sé meðvitað um þessa nýju stöðu, þar sem smitum hafi fjölgað gríðar­lega síðustu daga vegna afbrigð­anna.

„Ég myndi aldrei fara að mæla með einhverjum ströngum aðgerðum af því að ég var heldur aldrei hrifinn af slíkri aðferða­fræði. En þess þá heldur, held ég þá að fólk þurfi að gæta sín áður en komið er í algjört óefni með þetta. Það gæti gerst mjög hratt. Miðað við það að þeir eru að tala um að þetta smitist 30 til 40 prósent meira en önnur Omicron-afbrigði og þau hafa smitast miklu meira en öll fyrri afbrigðin. Þegar við erum komin með afbrigði sem hegða sér á margan hátt og valda einkennum eins og Alfa og Delta, en miklu meira smitandi en þau, og mynda ekki ónæmi gegn sjálfum sér, þá geta bara orðið raðveikindi út úr þessu.“

Hefur áhyggjur af samkomum á næstunni

Hann segist telja mikilvægt að farið verði yfir stöðuna og það hvernig best sé að hegða sér. „Áður en við förum inn í verslunar­manna­helgina og þetta sem er fram undan.“

„Ég er bara leikmaður að fara í gegnum þetta núna og upplifa þetta, en ég sit nátt­úrlega hérna í kófinu og hef ekkert annað að gera en að lesa bæði fræði­greinar og umfjöllun erlendra fjölmiðla um þetta. Ég sé bara á síðustu dögum að það eru að koma fram upplýsingar sem hljóta að kalla á, ekki einhverjar strangar aðgerðir, en að almenningur sé hvattur til þess að fara gætilega. Ég heyri af partíum heima og svo eru veikindi í kjölfarið og fólk bara einhvern veginn lætur sig hafa það. En það er bara tímspursmál hvenær þetta springur í andlitið á okkur ef við ætlum ekki að gæta okkar.“

Grímurnar minnst íþyngjandi

Sigursteinn er staddur á Spáni í fríi. Hann segir reglur þar ekki miklar, en það sé þó grímu­skylda á vissum stöðum.

„Hér þarf maður að vera með andlits­grímu í lestunum og auðvitað í flugvélum. Í apótekum þarf maður að vera með grímu og á sjúkra­húsum er grímu­skylda. Þannig að þetta er bara eins og heima, nema að þessi grímu­skylda er til staðar.

Ég held að það væri alveg hægt að íhuga það heima, því það er auðvitað vægasta formið á þessari frelsis­skerðingu sem við höfum þurft að fara í gegnum að mínu mati, það er þessi grímu­skylda. Og ein sú áhrifa­mesta. Þá er maður ekki að frussa framan í fólk. Þannig á þetta að geta verið, ef hver og einn er varkár.

Það sem er nátt­úrlega verst í þessu eru fyllerís­samkomurnar, þar sem hverfa náttúru­lega öll mörk. Núna vona ég að ég sé ekki að mála skrattann á vegginn, en ef ég skil þessar frétta- og vísinda­greinar rétt, þá er hér bara mikil hætta á ferðum.“

Hann nefnir sömuleiðis viðkvæma hópa samfélagsins. „Ég á eftir að klára þetta, en móðir mín… Ef einkennin sem ég er að fara í gegnum er það sem fólk má almennt eiga von á með þessi nýju afbrigði, og ef þetta verður jafn útbreitt smit og hætta er á, þá býð ég ekki í það.“

Hann segir okkur virkilega verða að fara að læra að lifa með ástandinu eins og það er.

„Þetta kallar á breyttan lífsmáta. Á að við gerum hlutina öðruvísi og gætilegar. Að við sýnum hvert öðru meiri nærgætni.“

Horfum fram á nýja tíma

Sigursteinn segir okkur horfa fram á nýja tíma. „Veiran virðist vera búin að sjá leið. Öfugt við það sem maður hélt, að Omicron-afbrigðið myndi verða til þess að við myndum loksins ná hjarð­ónæmi og losna við þetta – þetta myndi bara hverfa inn í sumarið – þá er hún bara búin að finna enn eina leiðina. Kannski vissu Kínverjarnir eitthvað sem við erum að komast að núna, og voru þess vegna með sínar dragonísku og hörðu aðgerðir, og eru með enn þá fram á þennan dag. Það er allavega ljóst að hún er að leika á okkur enn í dag. Þetta er lúmskur skratti, en við verðum að bera virðingu fyrir henni af því að þetta er einhver vera sem er ansi mikið að kenna okkur lexíu,“ segir Sigursteinn.

„En það er undir okkur hverjum og einum komið hvort við látum þetta setja okkur á einhvern svona stað eins og við vorum á, með tilheyrandi ömurð, leiðindum og erfið­leikum, eða hvort við lærum einhvern veginn í alvörunni að lifa með þessu. Skilja hvað þetta er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Viðbragðsaðilar voru sendir á vettvang
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá