Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir fasteignasöluna fylgja lögum og reglum: „Hún vill hefna sín á okkur“

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

„Ég mun aldrei taka svona árás þegjandi, ég stend bara upp og segi þetta er bara rangt,“ sagði Guðmundur Andri Bergmann, framkvæmda­stjóri Procura home, í samtali við Mannlíf í morgun. Árásin sem Guðmundur talar um er færsla sem meðlimur Facebook-hóps setti inn á dögunum. Þar sagði hún frá viðskiptum sínum við fasteigna­söluna og varaði við viðskiptum við þau. Starfs­maður fasteigna­sölunnar svaraði færslunni í kommenta­kerfinu og sagði konuna fara með rangt mál en Mannlíf fjallaði um málið í gær. „Hér fer allt starf fram eitt hundrað og tíu prósent eftir lögum og reglum sem um þessa starfsemi gilda,“ sagði Guðmundur. Þá veltu margir því fyrir sér hvort um trúnaðar­brest hafi verið að ræða þegar starfs­maður fór yfir viðskipta­söguna í kommenta­kerfinu.

„Nei alls ekki. Allar upplýsingar sem þarna komu fram eru upplýsingar sem þú getur annaðhvort flett upp á netinu eða eru opinberar upplýsingar. Við upplýsum alltaf um tilboð í fasteignir, það er til hagsbóta bæði fyrir kaupendur og  seljendur og það er algjör­lega heimilt samkvæmt lögunum,“ sagði Guðmundur og vísaði til greinar sem hann skrifaði í gærkvöldi og birtist á vef Vísis.

„Allt sem hún(starfs­maðurinn) segir er satt og rétt. Allt sem að sú kona sem kom þarna fram með þessa ásakanir á okkur, þetta var ekki gagnrýni hún bara sagði: „Þið eigið ekki að eiga viðskipti við Procura vegna þess að A,B,C“. Allt sem að hún segir er annaðhvort algjör­lega ósatt eða algjör­lega viðsnúið frá því sem að átti sér stað. Þannig að okkur finnst fráleitt hvernig svona framferði á svona hópum gagnvart fólki, einstaklingum og fyrir­tækjum er orðið alveg galið. Það að einhver ein manneskja af fleiri hundruð ánægðum viðskipta­vinum komi svona fram með rangar upplýsingar af því að hún er reið yfir því að ég neitaði að endur­greiða henni gjald sem er skýrt kveðið á um í þeim samningi sem að hún undir­ritaði og komi svo fram með upp diktaða sögu um viðskiptin sem hún átti við procura. Því hún vill hefna sín á okkur vegna þess að við vildum ekki endur­greiða henni þetta gjald. Þetta  eru bara viðskipti eins og hvað annað. Við erum búin að uppfylla okkar hluta af samningi. Allar fasteigna­sölur sem ég veit um hafa þetta gjald í sínum verk­ferlum.“

Aðspurður hvort hann hafi fundið fyrir neikvæðum viðbrögðum frá öðrum fasteigna­sölum í þeirra garð segir hann svo vera. „Já, við finnum fyrir því af því að við erum rugga bátnum. Við erum að bjóða þessa þjónustu með allt öðrum hætti en aðrir fasteigna­salar. Við erum að fara miklu lengra í stafrænni þjónustu heldur en hinir og við erum að bjóða miklu betri þjónustu en hinir og við erum að bjóða hana á lægra verði.“ Guðmundur telur að neikvæð viðbrögð annarra fasteigna­sala megi rekja til samkeppni á markaði.
„Vegna þess að við erum að taka af þeim viðskipti, það er bara þess vegna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim