Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Bræðslan 2024 tekur á sig mynd – Gildran tryllir lýðinn ásamt Aroni Can, GDNR og fleirum

Línur eru farnar að skýr­ast varð­andi Bræðsl­una 2024 en búið er að til­kynna hvaða tón­list­ar­menn muni troða upp á hinni vin­sælu tón­list­ar­há­tíð á Borg­ar­firði eystri.

Aust­ur­frétt segir frá því að nú þegar sé búið að kunn­gjöra hvaða lista­menn munir troða upp á Bræðsl­unni sem fram fer á Borg­ar­firði eystri þann 27. júlí næst­kom­andi, þó svo að ekki sé úti­lokað að ein­hver bæt­ist í hóp­inn.

Lista­menn­irnir sem koma munu fram á hátíð­inni eru af dýr­ari kant­inum en það eru þau Aron Can, GDRN, Hildur, Kælan Mikla auk Guð­mundar Magna Ásgeirs­sonar sjálfs og hljóm­sveit hans Á móti sól. Eitt band er eftir í upp­taln­ing­unni en það er af rán­dýru gerð­inni. Gamla góða Gildran mætir á svæðið til að trylla rokk­þyrsta gesti Bræðsl­unnar.

Guð­mundur Magni Ásgeirs­son, einn af skipu­leggj­endum hátíð­ar­innar segir í sam­tali við Aust­ur­frétt að þetta sé lík­lega end­an­legur listi tón­list­ar­manna á aðal­kvöldi Bræðsl­unnar en hann við­ur­kennir fús­lega að veik­leiki for­sprakka Bræðslunna hafi í gegnum tíð­ina verið sá að vilja alltaf bæta við einum eða fleiri lista­mönnum við dag­skránna þegar nær dregur.

„Þetta er auð­vitað fyrir utan þessa „off-venue“ við­burði sem fram fara dag­ana fyrir aðal­kvöldið en þeir verða kynntir fljót­lega. Að þessu sinni ætlum við að breyta aðeins til varð­andi miða­söl­una. Keyptir miðar verða sendir í snjall­síma kaup­enda og þeir svo skann­aðir til að fá aðgang að tón­leika­stöð­unum. Þetta auð­veldar ýmis­legt bæði fyrir gesti og ekki síður okkur. Nú getum við til dæmis látið fólk beint vita af við­burðum sem verða til fyr­ir­vara­lítið eða öðru því sem máli skiptir meðan fólk er hér. Þetta er gert í sam­starfi við fyr­ir­tækið Glaze sem ágætur vinur okkar Jónas Sig­urðs­son stofn­aði ásamt fleirum,“ segir Magni við Aust­ur­frétt.

Miða­salan fyrir hátíð­ina 2024 hefst eftir mán­að­ar­mótin strax þann 3. apríl að sögn Magna og sá dagur val­inn því það sé afmæl­is­dagur föður Bræðsl­unnar og Magna, Ásgeirs Arn­gríms­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Guðmundur Ingi Kristinsson sagði heildareignir tryggingafélaganna hafa numið 360 milljörðum króna í febrúar og kallaði eftir uppgjöri bótasjóða.
Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Innlent

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027