Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Segir spillingu lifa góðu lífi hér: „Íslensk spilling minni og ómerkilegri en útlensk spilling“

Atli Þór Fanndal
Atli Þór Fanndal

Atli Þór Fanndal segir í grein sinni að „íslensk yfirvöld töldu ástæðu­laust að birta Samning Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu í stjórnar­tíðindum fyrr en rúmum áratug eftir full­gildingu hans. Þetta kemur fram í grein Bjarna Már Magnússonar, prófessors við lagadeild Bifrastar sem birtist í Morgun­blaðinu í dag. Samningurinn var fyrst birtur 26. Ágúst árið 2022.“

Atli Þór, sem er framkvæmda­stjóri Íslands­deildar Transparency International, bætir við að „þessi töf takmarkar að öllum líkindum getu saksóknara til að sækja spillingarmál þótt enn sé hægt að gefa út ákæru í samræmi við íslensk lög. Það sem ekki kemur fram í grein Bjarna er að tæpri viku áður en úttektar­nefnd fíkniefna- og afbrotamála­skrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNODC) var á leið til Reykja­víkur til að meta vinnu við innleiðingu samningsins af hálfu Íslands varð uppi fótur og fit hjá framkvæmda­valdinu. Það yrði óbærilegt að þamba kaffi og borða kleinur með úttektar­nefndinni ef samningurinn er ekki einu sinni formlega birtur.“

Bætir við:

„Yfirvöld tilkynntu úttektar­nefnd UNODC ekki um málið en engar áhyggjur, Íslands­deild Transparency hefur þegar tekið að sér að spilla gleðinni og tilkynnt UNODC. Fyrst og fremst er um að ræða enn eitt dæmið um hvaða hagsmunir ráða för hér á landi. Þrátt fyrir ábendingar GRECO og OECD áratugum saman er baráttan gegn spillingu aldrei í forgangi. Þrátt fyrir bankahrun og gráa lista FATF er baráttan gegn spillingu aldrei ofarlega í huga. Þrátt fyrir einka­væðingu, vantraust og klúður við framkvæmd kosninga má ekki setja neinn kraft í að sauma fyrir spillingar­áhættur.“

Segir að „þegar hins vegar kemur að því að halda andlitinu má alveg leggja eitthvað á sig. Það var í lok ársins 2019 sem Andrés Ingi Jónsson, þá þingmaður VG en nú Pírata, lagði fyrir­spurn fyrir þingið vegna brota­lamar við birtingu alþjóða­samninga. Í svari þáverandi utan­ríkis­ráðherra kemur fram að um 300 alþjóða­samningar bíði líklega birtingar en áhersla sé lögð á að birta mikilvæga samninga. „Síðastliðinn áratug hefur dregið úr birtingu þjóðréttar­samninga í C-deild Stjórnar­tíðinda. Koma þar til nokkrar ástæður, en eftir efnahags­hrun var dregið verulega úr fjármunum til þessara verkefna og forgangs­röðun birtinga endur­skoðuð þannig að lögð var áhersla á að birta samninga þar sem birting væri nauðsynleg forsenda réttar­áhrifa,“ segir í svarinu.

Helsti milliríkja­samningur alþjóðlegrar baráttu gegn spillingu náði því ekki í gegnum nálarauga forgangs­röðunar framkvæmdar­valdsins og beið með öðrum léttvægum málefnum í rúman áratug.“

Atli Þór bendir á að „á Íslandi skortir heild­stæða opinbera stefnu um baráttu gegn spillingu. Samhæfð áætlun og strategía er ekki til. Sérhæfð stofnun sem rannsakar pólitíska spillingu er ekki til. Utan­umhald um hagsmuna­skráningu er í molum. Vísbendingar um spillingar­áhættur eru hunsaðar, ábendingar og jafnvel játningar um útgáfu tilefnis­lausra reikninga til Alþingis eru án áfleiðinga og áfram má telja.“

Hann nefnir að endingu að „ábendingar frá erlendum ríkjum um þátttöku íslenskra aðila í mútum eru settar ofan í skúffu og ekki rann­sakaðar. Það er jú engin spilling á Íslandi eða ef hún er til þá er íslensk spilling augljós­lega miklu minni og ómerkilegri en útlensk spilling ekki satt? Það er enginn óþekktur kerfis­galli eins og skrif­stofa Alþingis orðaði það í nýlegu svari vegna líkkistu­innflutnings dómsmála­ráðherra. Markmiðið er að sjá til þess að ekkert virki þegar upp kemst um spillingu. Sú pólitíska ákvörðun að setja samning SÞ gegn spillingu aftast í búnkan er auðvitað í samræmi við annað. Það er nefnilega stefnan að dekra við Spillingu en skella svo sökinni á systur hennar fúsk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim