Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sonja segir Hjálpræðisherskonur hafa verið grimmar: „Svo rak hún tunguna upp í munninn á mér“

Sonja Ingva­dóttir var ein þeirra stúlkna sem vistaðar voru á stúlkna­heimilinu Bjargi á árunum 1965 til 1967. Hún var 14 ára gömul þegar hún var send á heimilið og er meðal þeirra sem hefur sakað forsvars­menn og starfs­konur heimilisins um harðræði og ofbeldi.

Sonja var ein þeirra sem stóð að kæru á hendur Bjargi árið 1967. Á endanum var málið láta niður falla því ekki þóttu nægar sannanir fyrir hendi til þess að höfða opinbert mál. Bjarg varð seinna eitt þeirra vist­heimila sem ríkið greiddi sanngirnis­bætur vegna og þótti sennilegt að stúlkurnar sem þar voru vistaðar hefðu þurft að þola óforsvaranlega meðferð þeirra sem þar stjórnuðu og störfuðu.

Eftir­farandi er brot úr viðtali við Sonju sem birtist í heild sinni í nýjasta tölublaði Mannlífs.

Lífið á Bjargi og Hjálpræðisherinn

Á Bjargi störfuðu aðallega konur frá Hjálpræðis­hernum, sem voru gæslu­konur á heimilinu. Sonja lýsir þeim meðal annars sem óheiðarlegum og grimmum.

„Þær voru líka langt frá því að vera gáfaðar. En þú ert heldur ekki sérlega smart ef þú heldur að þú komist til himna með því að ganga í einkennis­búningi og skrækja sálma úti á götum.“

Sonja segist sjálf ekki hafa verið beitt miklu líkamlegu ofbeldi, því hún hafi verið hlýðin. Hún hafi snemma séð hvað hún þurfti að gera til þess að lifa af. Auk þess hafi hún verið góður námsmaður, sem hafi hentað forsvars­mönnum Bjargs vel.

„Þær þorðu ekki að hreyfa mig, en ég sá hvernig þær fóru með Marion Grey. Ég sá þær draga hana á hárinu. Þær reyndu að stela barninu hennar. Þær eyðilögðu líf hennar líka. Við vorum allar eyði­lagðar þarna. Ég held að það hafi bara verið ein sem kom vel út. En sú kynntist líka góðum manni, sem ég held að hafi hjálpað henni að byggja sig upp.

Gæslu­konurnar voru konur sem áttu aldrei að vera nálægt börnum. Hjálpræðis­herinn á ekki að vera nálægt börnum.“

„Við vorum allar eyði­lagðar þarna“

Sonja segir að á Bjargi hafi stúlkurnar þurft að fara í messur hjá Hjálpræðis­hernum að minnsta kosti einu sinni í viku, á sunnu­dögum. „Ég neitaði því og sagðist heldur vilja vera heima. Ég sagði: „Ég er búddisti og það er trúfrelsi á Íslandi.“

„Þá sendum við þig í Kópavog,“ sagði forstöðu­konan. Ég varð kristin eins og skot.“

Þarna vísar Sonja til Upptöku­heimilisins í Kópavogi, heimilisins sem hún hóf vist sína á eftir að hún var sótt með lögreglu­bílnum; staðarins með glugga­lausa herberginu. Þangað voru stúlkurnar reglulega sendar í einangrun.

Sonja lærði því fljótt að hún þyrfti að gera nákvæmlega það sem henni var sagt, svo hún yrði ekki send á þann hræðilega stað aftur.

„Ég sá þær beita hinar líkamlegu ofbeldi. En ég var hlýðin – nema munnlega. Ég tók þær með orðum.“

Anna Ona

Forstöðu­konan á Bjargi var hin norska Anna Ona-Hansen og bæði Sonja og aðrar konur sem dvöldu á Bjargi hafa lýst ofbeldi og harðræði af hennar hálfu. Sumar þeirra hafa sagt frá kynferðis­ofbeldi.

„Á hverju kvöldi þurftum við að fara úr nærbuxunum. Við þurftum að vera naktar undir nátt­fötunum. Svo stóðu þær þarna með rauða fötu, sem við þurftum að setja nærbuxurnar okkar ofan í. Af því að við myndum ekki strjúka án nærfatnaðar, héldu þær,“ rifjar Sonja upp.

„Einu sinni hleyptu þær strákum upp á herbergin okkar – strákum frá Hjálpræðis­hernum. Þeir áttu að frelsa okkur; fimmtán, sextán ára gamlir strákar. Heldurðu að þeir séu ekki með hormóna þótt þeir séu í Hjálpræðis­hernum? Þeir fengu ekki leyfi til að snerta mig, guði sé lof. “

Sonja segir frá því að stúlkurnar hafi alltaf verið látnar sauma í um það bil klukku­tíma áður en þær fóru að sofa á hverju kvöldi. „Á meðan forstöðu­konan las einhverja rómantíska kvasí-bók fyrir okkur. Svo eitt kvöld fórum við upp og vorum að flissa yfir sögunni. Við þvoðum okkur, burstuðum tennur, fórum úr nærbuxunum og settum í fötuna. Svo kom forstöðu­konan upp og var búin að taka flétturnar úr hárinu. Hún opnaði dyrnar – það var dimmt inni í herberginu, en ljós á ganginum. Hún var í gulum nælonnáttkjól sem sást í gegnum. Hún kom inn, gekk til mín og ætlaði að kyssa mig á kinnina góða nótt. Svo rak hún tunguna upp í munninn á mér. Ég skrækti – og fékk mínus. Fyrsti kossinn minn var sem sagt frá forstöðu­konunni Önnu Onu. Svo gerði hún þetta við hinar stelpurnar líka, flissaði síðan og hljóp út.“

„Svo rak hún tung­una upp í munn­inn á mér“

Sonja segist þó halda að hún hafi þurft að þola minna líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi, vegna þess að litið hafi verið á hana sem gull­gæsina; með sínar góðu einkunnir átti hún að fara áfram í mennta­skóla og sýna hvers Bjarg var megnugt.

Viðtalið í heild sinni má lesa í nýjasta tölublaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram