Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Litrík og skemmtileg heimili í nýja blaðinu

Þau eru ansi lit­rík og skemmti­leg heim­ilin sem við hjá Húsum og híbýlum heim­sóttum fyrir nýja blaðið okkar sem er komið í versl­anir. Stofur og borð­stofur eru í aðal­hlut­verki í þessu blaði ásamt inn­litum inn á íslensk heim­ili þar sem per­sónu­legur stíll ræður ríkjum.

Það er fal­leg íbúð þeirra Hebu Fjal­ars­dóttur og Birgis Har­alds­sonar sem prýðir for­síð­una að þessu sinni. Hlutir heim­il­is­ins eru valdir af kost­gæfni þar sem klass­ísk hönnun er í aðal­hlut­verki. Heba segir klass­íska, skand­in­av­íska og jap­anska hönnum í hvað mestu upp­á­haldi.

Allir hlutir og hús­gögn íbúð­ar­innar eiga sinn stað en henni þykir mik­il­vægt að ofhlaða ekki. „Ég er með væga fóbíu fyrir því að hafa drasl og mér finnst mjög róandi að hafa aðeins vel valda hluti. Mér finnst list og smá­hlutir síðan vera það sem gerir heim­ilið per­sónu­legt.“

Við kíkjum svo til Akur­eyrar og skoðum glæsi­legt fimm her­bergja hús í gamla innbæ Akur­eyrar. Þar býr Maja Eir Krist­ins­dóttir með eig­in­manni sínum og fjórum sonum þeirra. Húsið er á besta stað í bænum með stór­feng­legt útsýni yfir fjörð­inn. Þegar Maja er spurð út í þann stíl sem hún aðhyllist seg­ist hún vera „gömul í sér“ og lað­ast að antík­munum og því sem er gam­alt eða gam­al­dags.

Við skoðum einnig skemmti­legt heim­ili Júlíu Grön­valdt. Íbúðin er 58 fer­metrar að stærð, stað­sett í nýlegu hverfi í Lága­leit­inu. Íbúðin er lif­andi og stíll­inn frjáls­legur og seg­ist hún fyrst og fremst sækja í hluti og hús­gögn sem hafa karakter og sögu að segja.

Við heim­sækjum svo vöru­hönn­uð­inn Birtu Rós Brynj­ólfs­dóttur en heim­ili hennar er algjör ævin­týra­heimur. Birta er mik­ill safn­ari og áhuga­verðir hlutir sem flestir koma af nytja­mörk­uðum prýða hvern krók og kima heima hjá henni.

Birta giskar á að aðeins um 5% af þeim hlutum sem hún á hafi hún keypt nýja úti í búð, allt annað fékk hún gef­ins eða keypti notað á nytja­mörk­uðum. „Það er klár­lega umhverf­is­vænna að kaupa not­aða hluti, líka hag­stæð­ara.“

Stofur og borðstofur í fókus

Stofur og borð­stofur eru í aðal­hlut­verki í nýja blað­inu og við gefum les­endum góð ráð um hvernig megi fá sem mest út úr fer­metr­unum og skapa sér nota­legt afdrep í stof­unni.

Við fáum svo góð ráð frá sér­fræð­ingum, meðal ann­ars inn­an­húss­hönn­uð­inum Höllu Báru Gests­dóttur en hún er mik­ill snill­ingur í að fram­kalla nota­lega stemn­ingu. Inn­an­húss­arki­tekt­inn Katrín Ísfeld fræðir okkur einnig um þær stefnur og strauma sem hafa verið áber­andi und­an­farin miss­eri.

Við kíkjum svo á þær Guðnýju Haf­steins­dóttur og Höllu Ásgeirs­dóttur á vinnu­stofu þeirra Snú Snú en þær eru báðar með­limir í Leir­lista­fé­lagi Íslands, félagið fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir.

Svo kynn­umst við lista­tvíeyk­inu hjá Krot og Krass, þeim Birni Loka og Elsu Jóns­dóttur. Þau hafa verið að ryðja sér braut á sjón­ar­svið­inu und­an­farin ár með ein­stökum verkum sem þau miðla ýmist með vegg­list, mál­verkum eða skúlp­t­úr­gerð bæði hér­lendis og erlendis. Að þeirra sögn vinna þau á mörkum mynd­listar og hönn­unar.

Þetta og miklu meira í nýjasta Hús og híbýli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni