Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Elísabet í bata eftir að líkaminn reyndi að hafna nýranu: „Bæði röddin og augun voru brostin“

Elísabet Jökulsdóttir
Elísabet Jök­uls­dóttir Mynd: Facebook

Elísabet Jökuls­dóttir er öll að koma til eftir að hafa veikst illa en hún fékk nýverið grætt í sig nýra.

Rithöfundurinn og ljóð­skáldið ástsæla, Elísabet Kristín Jökuls­dóttir varð fyrir því á dögunum að líkaminn tók upp á því að reyna ítrekað að hafna nýranu sem hún fékk grætt í sig í byrjun janúar. Skrifaði hún nokkrar færslur á Facebook og leyfði þannig fólki að fylgjast með veikindunum. Gaf hún Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færslurnar, sem eru í raun eins og örsögur, enda Elísabet með betri pennum þjóðarinnar.

„Ég er búin að vera með skjaldböku­augu í mánuð, örugglega útaf nýrna­aðgerðinni, augun hafa orðið pínulítil og stingandi eða dauf og sorgmædd. Augnlokin hangið yfir einsog óveðursský. Sennilega útaf því að ég hef ekki vitað hvað tæki við og ekki verið tilbúin til að gleðjast almennilega fyrr en nú í fyrradag. Þá kom gleðin en þakklætið kom strax, mjúkt stóreygt þakklæti. En að öðru leyti hef ég verið með skjaldböku­augu.

*

Það var soldið sérkennilegt hvernig gleðin kom til sögunnar en það kom til mín kona í matsalnum sem spurði hvort ég væri komin með nýtt nýra, ég sagði já og þá sagðist konan vera hér vegna lifrar­ígræðslu, hún hefði fengið nýja lifur. Og þá varð ég svo glöð að gleðin streymdi um mig, þótt ég þekkti konuna ekki neitt. Ég óskaði henni til hamingju. Og þá hugsaði ég: Elísabet, þér er óhætt að vera glöð vegna nýrans og taka á móti þessu krafta­verki. Og þá skildi ég allt þetta fólk sem er að óska mér til hamingju. Margt fólk sem ég þekki ekki neitt en gleðst vegna mín,“ skrifaði Elísabet þegar hún var farin að verða veikburða.

En svo fór að halla undan fæti og Elísabet búin að vera á spítala í fjóra sólar­hringa:

„Búin að vera á spítala í fjóra sólar­hringa með sterk ofnæmis­bælingar lyf í æð og sýklalyf í hina æðina. Líkaminn hefur reynt að hafna nýranu og Garpur benti mér á að höfnun væri ekki fjarri lagi þegar þessi fjöl­skylda er annarsvegar En þetta er víst allt á batavegi og ég þigg góðar bænir. Þetta er svona bakslag í seglin.“

Góðar fréttir

Nokkrum dögum síðar var Elísabet með góðar fréttir en nýrna­gildið hafði lækkað og allt í rétta átt.

„Góðar fréttir.Það var bara í nótt sem hjólin fóru að snúast og batinn að gera vart við sig, nýrna­gildið (kreatínið) hefur lækkað og ákveðin tegund af hvítu blóð­kornunum hækkað. Ég er orðin mjög tæknileg í þessu öllu þótt ég hafi ekki skilið neitt í upphafi. Vona bara að batinn haldi áfram.Ég þakka ástsam­lega, þið eruð æði að senda mér bænir, hvatningu og hlý orð. Ómetanlegt og þrælvirka.“Í dag birti Elísabet svo enn betri fréttir.

„Jæja, ég er farin að líta betur út, bæði röddin og augun voru brostin, en nú er röddin komin og mér sýndust augun hafa fengið annan svip. Afsakið, ég ætla aðeins að gá. Jújú. Og ég er ekki eins stirð í hreyfingum, ég er bæði búin að vera í hjólastól og með göngu­grind en nú er farin að spranga um, varlega. Þetta hefur sannarlega verið stór aðgerð og tekið mikið á andlega og líkamlega og þegar fólk spyr mig: Er þetta ekki allt annað líf, finnirðu ekki breytingu á þér, … þá get ég sagt að minnsti vottur um breytingu hefur tekið sex vikur. Og það er semsagt í dag.“

Mannlíf sendir Elísabeti innilegar bata­kveðjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim