Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Dóra gefur upplifanir í gjafir: „Ég hef útbúið gjafabréf á barnapössun “

Dóra Svavars­dóttir, neytandi vikunnar, er matreiðslu­meistari og kennari. Hún er núna að endur­skipuleggja lífið eftir veikindi. Það skiptir hana meiru máli núna að miðla og segja frá því sem skiptir máli í stóra samhenginu. Hún ræðir heims­málin við köttinn sinn hann Teknó, þegar þau spígspora um Vestur­bæinn, milli þess sem hún kennir matreiðslu­námskeið og sinnir verkefnum fyrir Slow Food Reykjavík samtökin.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Innkaupa­listar eru lykil­atriði og athuga hvað er til áður en farið er í búð. Nýta allt sem er til og reyna að forðast matarsóun. Nota frystinn og kaupa frysti­vöru og muna eftir því líka að nota úr frystinum. Vera passlega kærulaus gagnvart dagsetningum og nota baunir og grænmeti sem uppi­stöðuna í matnum og krydda með kjöt og fisk.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég nota allan mat upp til agna. Umbúðir reyni ég að nota aftur og aftur. Ég geri við föt og reyni að láta þau endast. Það er í góðu lagi að elda mikið af mat ef þú ert með plan fyrir afganginn. En ef hann endar í ruslinu nokkrum dögum seinna, þá þarf að athuga hvað sé að gerast.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Gjafir eru mest upplifanir, fara í lautar­ferð, göngur, matarboð o.fl. í þeim dúr. Ég hef útbúið gjafabréf á tíma, t.d. barna­pössun, mjaltir og ýmislegt fleira. Ég reyni að velja innlenda fram­leiðslu bæði í mat og fatnaði. Ég reyni að passa að föt séu úr gæða efnum sem endast vel og lengi.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Húfur og hattar eru mínir veik­leikar. Á aldrei nóg, en svipast um eftir notuðum. Svo er gaman að fara út að borða, ég lít svo á að þar sé ég að sinna minni skyldu við að efla hagvöxt.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já gríðar­lega miklu máli. Við stöndum frammi ógnar stórri vá sem loftslags­málin eru. En það góða er að við getum gert alveg fullt sem einstaklingar til að leggja okkar á vogar­skálarnar. Bara með því að minnka matarsóun, minnka kjöt­neyslu, minnkað útblástur frá bílum með skynsamlegri akstri.

Ég held að það sé gríðar­lega mikilvægt að við sem einstaklingar tökum ábyrgð á
okkar neyslu, styðjumst við Rin 6 á ensku: Rethink, Reduce, Reuse, Refuse, Repair
og Recycle. Fyrsta skrefið er alltaf að endur­hugsa til hvers við þurfum eitthvað. Á ég
kannski eitthvað annað sem hægt er að nota í staðin. Eins líka ef það er eitthvað sem
ég er hætt að nota að koma því áfram til einhvers sem þarf á því að halda. Þetta þarf
ekki að vera eitthvað meinlæta líf, heldur spennandi tækifæri til að reyna á sköpun
og hugmynda­auðgi. Ég er að kenna námskeið sem ég kalla Matur og Loftslags­breytingar. Eins kem ég með fyrir­lestra í stofnanir og fyrirtæki undir heitinu Hamfara­hlýnun í hádegismat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim