Lögregla í Japan hefur handtekið 36 ára starfsmann framhaldsskóla vegna gruns um að hafa drepið um 30 hamstra á hóteli í mars síðastliðnum. Maðurinn hafði áður verið handtekinn vegna annars máls þar sem hann er grunaður um að hafa drepið um 20 hamstra.
Maðurinn, sem starfar í Iwate-héraði í norðurhluta Japans, er sagður hafa framið verknaðinn ásamt tveimur konum í svokölluðum ástarhótelum, sem bjóða pörum upp á skammtímadvöl. Konurnar, 19 og 20 ára, hafa einnig verið handteknar.
Samkvæmt lögreglu var maðurinn handtekinn á mánudag vegna dráps á um 30 hömstrum í lok mars. Grunur leikur á að tvítuga konan hafi tekið þátt í verknaðinum.
Við rannsókn málsins lagði lögregla hald á farsíma mannsins. Þar fundust myndskeið sem sýndu drápin auk skilaboða milli hans og konunnar þar sem þau virðast hafa skipulagt verknaðinn.
Maðurinn hafði áður verið handtekinn í júlí vegna gruns um að hafa drepið um 20 hamstra í febrúar ásamt 19 ára konu.
Lögregla rannsakar nú hvort maðurinn kunni að hafa framið fleiri sambærileg brot gegn dýrum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir