Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Hjördís Dögg: ,,Ég er húsmóðir dauðans“

Hjördís Dögg Grímars­dóttir heitir konan á bak við hina vinsælu heimasíðu mömmur.is þar sem hægt er að fá skemmtilegar hugmyndir fyrir veisluna. Mömmur.is má einnig finna á Instagram og Facebook undir sama nafni. Hjördís er mikill sælkeri og ætlar hún að deila með okkur sínum uppháldsmat.

Alltaf jafn bragðgóður

Uppáhalds­réttur Hjördísar er barbeque kjúklinga­réttur sem er oft á boðstólum á heimili hennar. ,,Það má segja að hann slái alltaf í gegn og er alltaf jafn bragð­góður.  Oftar en ekki ber ég hann fram með hrís­grjónum og heima­bökuðu hvítlauks­brauði“ segir Hjördís.

Gaman að halda matarboð

Hjördís er kokkurinn sem eldar af ástríðu, einfaldan en bragð­góðan mat. Hún segir okkur að ,,henni finnst mjög gaman að halda matarboð og leggi upp úr því að allt líti vel út á veislu­borðinu. Ég hef gaman að því að nostra við kjötið eða það sem ég er að elda með hinum ýmsu krydd­jurtum og olíu. Hvít­laukur kemur oft við sögu í elda­mennskunni ásamt smjöri. Meðlætið skiptir líka miklu máli og finnst mér skemmtilegt að baka brauð og bera fram með matnum. Eftir­rétturinn toppar síðan allt en frönsku súkkulaði­kaka setur punktinn yfir i-ið „.

Sjávarréttir ekki í uppáhaldi

Pinna­matur hittir líka oftar en ekki í mark.  Kjúklinga­spjót með hvítlauks­sósu koma alltaf vel út, það er alltaf gaman að bjóða fólki upp á brauð­teninga eða tortillarúllur.  Ég borða yfirleitt ekki morgunmat. Fæ mér léttan hádegismat eins og skyr, jógúrt eða súpu. Í kaffi­tímanum fæ ég mér  brauð­sneið eða eitthvað gómsætt sætabrauð.  Kvöld­maturinn getur verið allavega en vinsælt hjá okkur fjöl­skyldunni er að borða kjúkling, en sjávar­réttir eru því miður ekki mitt uppáhald.

Eldamennskan þótti heldur of metnaðarfull

,,Ég byrjaði ung að elda og leika mér í eldhúsinu. Var kannski heldur of metnaðar­full í byrjun og lagði mig fram við að vera með þriggja rétta máltíð fyrir okkur tvö sem vorum á heimilinu. Þar sem við vorum bara tvo á heimili þá var oft afgangur sem ég tók með mér í vinnuna.  Samstarfs­menn mínir kölluðu mig oft húsmóður dauðans, þar sem elda­mennskan þótti heldur of metnaðar­full.

Kjúklingaspjót með sinnepsmarineringu

UPPSKRIFT:

  • 800 g kjúklinga­kjöt
  • 2 dl blasamikedik
  • 1/2 dl olía
  • 50 ml appelsínu­safi
  • 4- 5 msk dijon hunangs­sinnep frá Maille
  • 4 stk hvítlauksrif
  • 2-3 msk hvítlauks­krydd frá potta­göldrum
  • 2 tsk pipar
  • 2 msk papriku­krydd

AÐFERÐ:

  • Helltu blasamikediki í skál ásamt olíu, appelsínu­safa, hvítlauk og sinnepi.
  • Hrærðu öllu vel saman.
  • Kryddaðu kjúklinginn með hvítlauks­kryddi, pipar og papriku­kryddi.
  • Helltu mareneringunni yfir kjúklinginn, veltu honum vel upp úr henni.
  • Settu lok yfir ílátið eða annað sem hentar og leyfðu kjúklingunum að marenerast í nokkrar klukku­stundir.
  • Eldaðu kjúklinginn við 180°C gráða hita í um 25-3o mínutur eða þar til hann er tilbúinn.
  • Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er grill­pinnum stungið í hann.
  • Borið fram með hvítlauks­sósu.

Lestu allt um málið og meira til í brakandi fersku helgar­blaði Mannlífs hér eða flettu blaðinu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto