Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fast skotið á Bjarna Ben í beinni: „Hækkar hann opinber gjöld eins og enginn sé morgundagurinn“

Heimir, Diljá og Bjarni. Myndin er samsett.
Heimir, Diljá og Bjarni. Myndin er sam­sett.

Heimir Karlsson skaut föstum skotum á formann þing­mannsins Diljár Mistar í beinni útsendingu í morgun.

Þau Diljá Mist Einars­dóttir þingmaður Sjálfstæðis­flokks og Eyjólfur Ármannsson þingmaður flokkur fólksins voru gestir í útvarps­þættinum Bylgjan í Bítið í morgun. Þar voru þau komin til að ræða um lágmarks­laun og skerðingar.

Talaði Eyjólfur meðal annars um að það verði að nota skatt­kerfið til að bæta kjör hinna lægst settu sem og hækka lægstu launin án þess þó að fyrir­tækin fari á hausinn og treysti verkalýðs­félögunum til þess. Diljá Mist sagðist vera sammála Eyjólfi, að í velmegunar­landinu Íslandi væri það smánar­blettur að hér fyrir­finnist fátækt. Vildi hún þó meina að það séu aðeins í undan­tekningar­tilfellum, þau séu þó of mörg. Hún sagði að ríkis­stjórnin hefði verið að nota skatt­kerfið til að hjálpa fátæku fólki. „Auðvitað eigum við að nota skatt­kerfið til að hjálpa, og þegar ég segi skatt­kerfið, þá meina ég að létta álögum á fólki og ég sakna þess að heyra ekki þann málflutning, til dæmis frá Eyjólfi kollega mínum.“

Það var á þessum tíma­punkti sem Heimi Karlssyni, einum af þátta­stjórnendum Bítisins virtist blöskra. „Bíddu, bíddu, lækka álögur?“ „Já, bara lækka skatta hreinlega á þá lægst settu,“ svaraði Diljá Mist en Heimir hélt áfram: „Já, má ég aðeins lesa úr Mogganum í dag? Tólf mánaða verðbólga hefur hækkað á ný og mælist nú 9,9 prósent. Og það er að mörgu leiti í boði hins opinbera,“ sagði Heimir og með hækkandi rómi og hélt áfram: „með hækkandi gjöldum og hækkandi bíla­sköttum og svo framvegis. Og hvert sem þú lítur, til hægri eða til vinstri, upp eða niður þá eru gjöld að hækka opinber út um allt og þetta er nú í boði þíns formannsins, verði þér að góðu!“

Diljá Mist reyndi að malda í móinn og sagði að lengi hefði verð­bólgan verið innflutt og „sameiginlegt verkefni hjá okkur öllum.“ Seinna í viðtalinu berst talið aftur að skatta­málum en hlustandi þáttarins sendi inn línu þar sem hann hélt því fram að hægt væri að sækja pening til ríkasta fólksins og fyrir­tækja með því að hækka skatta. „Ég er auðvitað ekki hrifin af því að hækka skatta,“ svaraði Diljá Mist og bætti við að ríka fólkið geti einfald­lega flutt sig á milli landa eins og hafi sýnt sig í „skatta­hækkunar­æfingum vinstri stjórnarinnar“ eftir hrun. „En hvað með skatta­æfingar formannsins?“ svaraði Heimir Karlsson að bragði og bætti við: „Hvað segirðu, Bjarni segir með hægri hendinni að hann ætli ekki að hækka tekju­skatta en með vinstri hækkar hann opinber gjöld eins og enginn sé morgun­dagurinn. Hvað er það annað en skatta­hækkanir?“ Eyjólfur steig þarna inn í og sagði að ríkis­stjórnin væri bara að bæta olíu á eldinn með þessum hækkunum. „Ekki láta mig vera að verja hækkanir á gjöldum því það er auðvitað erfitt en þó ætla ég að segja það að þessi gjöld sem voru hækkuð hafa ekki fylgt verðlagi undan­farin ár í hækkunum og þarna var einfald­lega verið að leiðrétta það. En það er ekki þar með sagt að ég sé hrifin af því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim