Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Aldís leikkona er ævintýragjarn vegankokkur: „Ég taldi mig alltaf vera hæfileikalausa“

Ljósmyndari: Guðrún Svava Kristinsdóttir fyrir Kötlu
Ljós­mynd­ari: Guðrún Svava Krist­ins­dóttir fyrir Kötlu

Leikkonan Aldís Amah Hamilton ætlar að gleðja okkur þessa vikuna sem Matgæðingur Mannlífs með ljúffengum vegan rétt. Aldís segist að jafnaði ekki vera mikill kokkur, en hún fór nýlega að elda af einhverri þekkingu.

„Ég taldi mig alltaf vera hæfileika­lausa með öllu í eldhúsinu og gerði þess vegna bara súpur (og nóg af þeim til að endast vikuna) í svo gott sem öll mál. Þessa dagana er ég mikið ævintýra­gjarnari þó það komi vissulega lægðir hjá mér, sérstak­lega þegar sköpunar­gleðin liggur í dvala. En ein lýsing á mér væri allavega vegan­kokkur! “

Aldísi finnst flest gott.

„Ef ég væri pínd þá væru linsu­baunir ekkert mjög ofarlega á lista hjá mér. En það fer samt líka eftir því hvernig þær eru matreiddar. Það er bara eitthvað við áferðina á þeim sem slær sjaldan í gegn hjá mér.“ Hún gerir eina kröfu og það er að það sé mikið bragð af matnum.

„Ég krydda allt meira frekar en minna, það er bara gullna reglan á mínu heimili.“

Aldís var við tökur á sjónvarps­þáttunum Svörtu Sandar í sumar, en þar myndaðist mjög góður hópur þar sem að þau voru úti á landi fyrstu sex vikur verk­efnisins.

„Sum okkar fóru lítið sem ekkert í bæinn á frídögum svo það urðu stundum svona „eldhúspartý“ í litlum skála þar sem listrænu deildirnar voru með aðstöðu. Eitt kvöldið er mér mjög minnis­stætt þegar einn leikarinn tók sig til og eldaði mexíkanska veislu fyrir þá sem voru á hótelinu. Kona hljóð­mannsins er frá Mexíkó og hún kom með sína reynslu í mixið. Úr varð algjör­lega sturluð matar­veisla sem entist langt fram á nótt og klárlega ein af uppáhalds­minningunum mínum úr þessu verkefni. Þó svo að ég hafi ekki gert handtak í eldhúsinu þann daginn. Kannski einmitt þess vegna? “

Aldís segir okkur frá góðum stundum með vinum og vanda­mönnum í eldhúsinu og að borða yfir síðustu hátíðir.

„Í fyrsta sinn tók ég mjög virkan þátt í elda­mennsku fjöl­skyldunnar og ég veit að það verður héðan af normið! Svo gerði ég mitt eigið páskaegg og fékk vinkonu með mér í konfekt­gerð til að fylla það. Það var algjör­lega dásamleg stund og mjög gefandi.“

Aldís segir okkur að eiginlega allar stundir sem innihalda elda­mennsku og þá sem hún elski séu sérstak­lega skemmtilegar.

Einn af uppáhalds­réttum Aldísar er svokölluð Sólskin­sósu-Tortillan sem þær mæðgur gerðu reglulega þegar hún var í námi.

„Ég borðaði hana grínlaust þrjú kvöld í röð í vikunni.“

Hver dagur er einstakur, segir Aldís, en hún er ekki í fastri vinnu­rútínu, svo þær „mæðgur eru duglegar að prófa nýja hluti og á hápunkti Covid vorum við með rútínu þar sem við elduðum vikulega nýjan rétt. Fun fact: eftir að ég lærði að elda hætti ég med det samme að gera súpur. Núna geri ég bara súpu ef ég er gjör­samlega í bullinu. Sem er sjaldan.“

Hér má svo finna uppskriftina að Tortillu með sólkinssósu fyrir 2 og segir Aldís að lokum „að þar sem ég er örugglega stutt frá því að borða yfir mig af þessum einfalda rétt hlýtur eitthvað að vera í hann varið. Þess vegna er tilvalið að deila honum, en hann er frábær mið-viku máltíð!“

Uppskrift

Tortillur með sólskinssósu fyrir 2.

Innihald:

  • Grænmeti (mest rótar­grænmeti)
  • Stór tortilla.
  • 1 dolla Sólskins­sósa frá Móður Náttúru
  • Vegan feta/ostur
  • “Indversk” krydd eða þín uppáhalds.

Aðferð:

Ofn hitaður upp í 200C

Það grænmeti sem þú finnur í ísskápnum skorið niður. Ég elska íslenskt brokkolí, blómkál, tómata og gulrætur. Líka zucchini, eggaldin, lauk, sætar kartöflur eða hvað sem er kominn tími á að borða. Grænmetið steikt upp úr ólífuólíu á pönnu.

Sósu hellt yfir þegar það er orðið mjúkt. Ég krydda allt aukalega og hendi þá dassi af t.d. cumin, reyktri papriku, túrmeriki, garam masala, hvítlauks­kryddi, næringar­geri… En ekkert af þessu er nauðsynlegt, sósan er snilld nú þegar!

(Fyrir meiri fyllingu bæti ég oft við kjúklinga­baunum eða nýrna­baunum. Þá kannski hálf dós, fer eftir magni af grænmeti og smekk fólks.)

Tortilla sett í stórt eldfast mót eða á ofnplötu. Þegar sósan og grænmetið er orðið vel djúsí set ég vegan ost á helming tortillunnar. Raða grænmetinu ofan á ostinn, set svo örlítið af osti eða vegan feta osti ofan á og loka. Tortillan er þá eins og hálfmáni og fer þannig inn í ofn.

Tekur um 10-15 mín og voila. Sett á disk með guacamole, salsa, vegan sýrðum rjóma og koríander ef þú finnur ekki sápubragð af því (stór­furðulegt gen í fólki).

Fáranlega auðveldur réttur og hægt að gera stóra skammta af sósu og grænmeti til að geyma í ísskáp eða frysta!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto