Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Vilja skoða hvort leyfa eigi melatónín – Mikið um innflutning frá nágrannalöndum

Matvæla­stofnun hefur óskað eftir áliti Lyfja­stofnunar á því hvort melatónín skuli áfram flokkast sem lyf hérlendis. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Melatónín hefur fram að þessu verið flokkað sem lyf hér á landi og því bannað í matvælum og ekki fáanlegt sem fæðu­bótarefni. Efnið er hins vegar leyfilegt annarsstaðar í Evrópu og fæst löglega í formi fæðu­bótarefna. Færst hefur í aukana að lagt sé hald á efni sem innihalda melatónín hér á landi.

Melatónín er hormón sem hefur áhrif á svefn okkar. Það á þátt í að stilla af eðlislæga klukku okkar og stuðlar að því að okkur syfjar á heppilegum tíma á kvöldin og erum vakandi yfir daginn.

Hér á landi eru lyf sem innihalda melatónín lyfseðils­skyld. Slík lyf eru með markaðs­leyfi fyrir melatónín í 1 mg magni upp í 5 mg í dagskammti.

Víða um Evrópu, sem og í Banda­ríkjunum, er melatónín hins vegar notað í fæðu­bótarefni. Í Banda­ríkjunum er efnið fáanlegt í hærri dagskömmtum en hér á landi, allt frá 0,5 mg upp í 10 mg í dagskammti. Í þeim Evrópu­löndum þar sem efnið er fáanlegt sem fæðu­bótarefni er hægt að finna það í allt að 2 mg í dagskammti.

Sú staðreynd að melatónín sé löglega fáanlegt sem fæðu­bótarefni víða í löndum í kringum okkur gerir það að verkum að innflutningur á fæðu­bótarefnum sem innihalda melatónín hefur færst í aukana.

Í tilkynningu Matvæla­stofnunar segir að stofnunin hafi óskað eftir áliti Lyfja­stofnunar um það hvort melatónín skuli áfram flokkast sem lyf hér á landi. Samkvæmt matvæla­lögum ber Lyfja­stofnun að skera úr um þegar vafi leikur á því hvort einstök efna­sambönd teljist lyf.

„Endur­skoðun á skilgreiningu og setning hámarks dagskammts melatóníns í fæðu­bótarefni hér á landi er mikilvægt skref í því að tryggja öryggi neytenda í landinu og koma í veg fyrir ólögmæta hindrun á markaðs­setningu löglega fram­leidds melatóníns, sem fæðu­bótarefni,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram