Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Segir hægt að byggja 4 leikskóla fyrir fjárveitingu til Hauka: „Peningarnir virðast vaxa á trjánum“

Viðar Halldórsson formaður FH.
Viðar Hall­dórs­son for­maður FH.

Formaður Fimleika­félags Hafnar­fjarðar, Viðar Halldórsson, hefur ritað harðort bréf til bæjar­fulltrúa í Hafnar­firði, sem þessi misserin eru að fara að taka ákvörðun um að reisa knattspyrnu­höll á svæði Hauka við Ásvelli.

Sjálfir hafa FH-ingar á síðustu árum reist nokkur hús í Kapla­krika, með aðkomu bæjarins; Viðar segir hins vegar framkvæmdina á Ásvöllum of dýra:

„Undan­farin ár hefur verið mikil og þörf umræða um aðstöðu knattpyrnunnar í Hafnar­firði til æfinga og keppni yfir vetrar­mánuðina. Íþrótta­fulltrúinn í Hafnar­firði skilaði vandaðri þarfa­greiningu til bæjar­yfirvalda og í fram­haldinu fórum við við FH-ingar fram á að byggt yrði knatthús í fullri stærð hér í Kapla­krika sem féll vel að niður­stöðu þarfa­greiningar íþrótta­fulltrúans,“ ritar Viðar í opnu bréfi.

Bætir við:

„Umræður og ferli byggingar Skessunnar ætti að vera öllum ljóst en í stuttu máli óskuðum við FH-ingar eftir ódýru og hagkvæmu húsi sem við sjálf byggðum í samvinnu við Hafnar­fjarðarbæ. Bæjar­yfirvöld vildu hafa umsjón með og framkvæma verkið, buðu verkið út á grunni hönnunar og teikninga Fimleika­félagsins, lægsta tilboð ríflega 1.1 milljarður króna, sem að mati bæjar­yfirvalda var of hátt. Í fram­haldinu var gert samkomulag milli Fimleika­félagsins og Hafnar­fjarðar­bæjar um byggingu Skessunnar sem hljóðaði upp á 790 milljónir króna.“

Viðar segir að nú eigi að setja tæpa fimm milljarða í að byggja hús fyrir Hauka, peninga sem betur mætti nýta í byggingu grunn­skóla og leikskóla:

„Í dag virðast bæjar­yfirvöld vera á loka­metrum við ákvarðana­töku um byggingu nýs knatthúss á Ásvöllum sem að lágmarki mun kosta 4.5 milljarða, byggja einn fótbolta­völl fyrir ámóta upphæð og kostar að byggja góðan grunn­skóla eða fjóra leikskóla.“

Viðar segir að „árlegur rekstrar- og fjármagns­kostnaður knatthúss af þeirri gerð sem væntingar eru um að reisa á Ásvöllum er ca 322.000.000, kr. (rekstur 98, afskriftir 112 og vextir 112) sem gerir ca. 144.000 kr. pr. notaðan klukku­tíma. Sambærilegar upphæðir vegna Skessunnar (uppreiknað stofn­virði 1.1 milljarður kr.) eru 108.000.000,- pr.ár (rekstur 53, afskriftir 28 og vextir 28) sem gerir ca. 37.000 kr. pr. notaðan tíma.“

Að mati Viðars er Hafnar­fjarðarbær að kasta peningum út um gluggann með umræddri framkvæmd:

„Hvernig réttlæta núverandi bæjar­yfirvöld þessar gríðalega háu upphæðir sem í okkar huga er verið að kasta út um gluggann nú í upphafi sem stofn­kostnaður og síðan í áratugi hundruði milljóna á ársgrundvelli í rekstur og fjármagns­kostnað?. Óhóflega há upphæð sem bæjar­yfirvöld hér í Hafnar­firði veita í eina einstaka framkvæmd eins og hér er á döfinni mun vitanlega hafa áhrif á framlög í aðrar nauðsynlegar framkvæmdir annarra íþrótta­félaga hér í bæ en ykkur bæjar­fulltrúum ætti að vera ljóst að t.d. Dans­íþrótta­félagið, Bretta­félagið, Hnefaleika­félagið, Golf­klúbburinn Setberg og Bjarkirnar eru í mikilli þörf á betri aðstöðu og jafnvel á hrakhólum með aðstöðu.“

Viðar er klár á að peningarnir sem eiga að fara til Hauka vegna hússins umtalaða myndu nýtast samfélaginu í Hafnar­firði vel:

„Fyrir þá milljarða sem myndu sparast við að byggja hús sambærilegt Skessunni á Ásvöllum væri hægt að stórbæta aðstöðu fjölmargra annarra íþrótta­félaga í Hafnar­firði, bæjarbúum til mikilla hagsbóta. Fimleika­félagið hefur nú á síðustu mánuðum verið að skoða og velta upp þeirri stöðu sem við erum í og einnig hvernig við stöndum fjárhags­lega með það í huga að milljörðum sé dreift í önnur félög hér í bæ. Á sama tíma erum við í Fimleika­félaginu með eign í mann­virkjum sem nálgast tvo og hálfan milljarð. Svo til öll íþrótta­mannvirki í Hafnar­firði utan Kapla­krika eru í eigu Hafnar­fjarðar­bæjar.“

Hann bendir á að „við FH-ingar höfum verið að rembast í áratugi með eigin fjár­festingar, lántökur (langtímalán Fimleika­félagsins ca. 630 milljónir), fjármagns­kostnað og mikla vinnu til að ná sem hagkvæmustu verðum okkur og við héldum bæjar­félaginu til heilla. En til hvers, það virðist öllum vera sama, peningarnir virðast vaxa á trjánum og munum við því á næstu dögum óska eftir formlegum viðræðum við Hafnar­fjarðarbæ um að þeir kaupi okkar eignar­hlut í mann­virkjunum Í Kapla­krika.“

Bætir við:

„Við sem höfum staðið í stafni Fimleika­félagsins nú í áratugi teljum okkur hafa þá reynslu og þekkingu sem til þarf að meta og ef þarf að taka ákvarðanir félagi okkar og bæjar­félaginu til heilla. Nú eru liðin 17 ár frá því að okkar frábæra knatthús Risinn var tekinn í notkun, sjö ár frá opnun Dvergsins og þrjú ár frá opnun Skessunnar. Margir sem lítið hafa komið nálægt uppbyggingu og rekstri alvöru knattspyrnu­deilda myndu strax segja að upphituð hús er það sem við þurfum hér á landi en reynsla okkar segir annað. Kostir okkar húsa eru t.d. loftgæði verulega meiri, náttúruleg lýsing húsanna er mikill kostur og síðast en ekki síst eru hús okkar tólf­mánaða hús en upphituðu glæsi­hallirnar í Garðabæ, Kópavogi og Reykjavík eru einungis sjö mánaða knatthús. Hvað segjum við við því að það koma dagar sem kuldinn hér á suðvestur­horninu fer niður fyrir t.d. mínus fimm gráður? Jú, það gerist og mun áfram gerast en okkar reynsla er ósköp skýr; við höfum aldrei fellt niður æfingu vegna kulda í húsunum, æfingar hafa verið felldar niður alltaf öðru hvoru en þá er það um leið og skólum hefur verið lokað vegna ófærðar í Hafnar­firði.“

Viðar vill meina að besta knattspyrnu­fólk í heimi æfi oft í kulda:

„Bestu knattspyrnu­menn heimsins sem stunda sína atvinnu í Evrópu – margir þeirra verulega hátt launaðir, allt að þriggja milljarða árslaun – eru að stunda sínar æfingar hluta ársins í kaldari aðstæðum en við bjóðum upp á hér í Kapla­krika. Ekki kvarta þeir og ekki eru forystu­menn erlendu félaganna að hafa áhyggjur af aukinni meiðsla­hættu í kaldari húsum, eins og einn góður fyrr­verandi bæjar­stjóri hér á höfuð­borgar­svæðinu sagði í útvarps­viðtali og var þá um leið að reyna að réttlæta bruðlið,“ segir Viðar og bætir að lokum við:

„Fótbolti er og verður allra veðra íþrótt. Höldum því þannig og hlustum á þá sem raun­verulega þekkingu á reynslu hafa á þessum málum, í stað þess að lama framtíðar­uppbyggingu íþrótta­mannvirkja í Hafnar­firði með marg­földum óþarfa kostnaði í einn innanhúss knattspyrnu­völl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum