Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Trausti rekur eina af síðustu videoleigunum: „Eitthvað hef ég verið að gera rétt allan þennan tíma“

Veipið bjargaði videoleigunni.
Veipið bjarg­aði vid­eo­leig­unni. Mynd: Albert Örn Eyþórsson

Frá árinu 1980 hefur Trausti Reykdal rekið videoleigu á Eskifirði en það var fyrsta leigan á Austur­landi. Og enn stendur leigan opin.

Trausti býður ekki aðeins spólur og DVD-diska til leigu heldur er einnig hægt að fá ýmsar gjafa­vörur og tóbaks­vörur í versluninni.

„Það er eiginlega ekki spurning að ef ekki hefði komið til tóbaks­vörur eins og veipið, þá væri ég þegar búinn að loka búðinni,“ segir eigandi líklega allra síðustu vídeó­leigu á landinu öllu; Trausti Reykdal á Eskifirði í viðtali í nýjasta tölublaði Austur­gluggans. „Það er enn fólk sem kemur og leigir sér spólu eða disk, en auðvitað er það tiltölu­lega fámennur hópur,” bætir hann við.

Leigan hans Trausta stendur við aðalgötu bæjarins og merkt með skilti sem á stendur Videoleiga Eski­fjarðar en sú merking trekkir að. „Það munaði nú litlu á að skiltið hefði verið fjarlægt hér síðastliðið sumar þegar hér var farið í endur­bætur á þaki hússins. Svo náðist það einfald­lega ekki vegna þess að það er einungis hægt ef engin er bleyta eða úrkoma. Annars veit ég til þess að skiltið trekkir að fólk sem ekki þekkir til, þannig að kannski er betra að hafa það bara uppi áfram,” segir Trausti í viðtalinu.

Samhliða verslunar­rekstrinum starfar Trausti sem hárskeri og hefur gert það um árabil. Á hann þó nokkuð stóran hóp viðskipta­vina sem mætt hafa í klippingu til hans um áratuga­skeið. „Þar á ég góðan hóp sem kemur til mín og sumir hafa gert það árum og áratugum saman. Þar sömuleiðis er fólk að gera sér tölu­verðar ferðir til að koma til mín svo eitthvað hef ég verið að gera rétt allan þennan tíma.“

Lengri útgáfa birtist í Austur­glugganum sem kom út í vikunni. Hægt er að panta áskrift hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim