Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Reykjavíkurborg eflir menningarlífið

Draga úr þörf fyrir eftirlit af hálfu leyfis­veitanda

Markmiðið með breytingunni er að efla menningar- og samfélagslíf í Reykjavík.
Mark­miðið með breyt­ing­unni er að efla menn­ingar- og sam­fé­lags­líf í Reykja­vík. Mynd: Unsplash/Evelyn Paris

Breytt gjaldskrá afnota­leyfa og eftirlits hjá Reykja­víkurborg hefur tekið gildi. Breytingin felur meðal annars í sér heimild til að veita afslátt af gjöldum vegna ákveðinna viðburða á borgar­landi.

Breytingin var samþykkt á fundi borgar­ráðs en markmiðið með breytingunni er að efla menningar- og samfélagslíf í Reykjavík.

Samkvæmt gjaldskránni, sem skipt er upp í fimm flokka, eftir umfangi afnota og eðli þeirra, er nú heimilt að veita allt að 50% afslátt af afnota­leyfis­gjaldi í tilteknum tilfellum. Breytingin nær til umfangs­flokka 1a, 2 og 5 og á við um viðburði sem haldnir eru af óhagnaðar­drifnum félögum, svo sem íþrótta­félögum, og eru opnir almenningi.

Forsenda þess að afsláttur verði veittur er að fyrir liggi samkomulag um eftirlit, frágang og viðbrögð af hálfu viðburðar­haldara. Markmið með þessum breytingum er að draga úr þörf fyrir eftirlit af hálfu leyfis­veitanda og tryggja að afnot borgar­lands fari fram með öruggum og ábyrgum hætti.

Einfaldara ferli fyrir gjaldfrjálsa smærri viðburði og minniháttar afnot 

Undir umfangs­flokk 5 sem er gjald­frjáls flokkur falla smærri verkefni sem hafa óveruleg áhrif á borgar­landið og krefjast takmarkaðs undir­búnings og eftirlits af hálfu leyfis­veitanda. Undir þennan flokk falla minni viðburðir á borð við hlaup, hjólreiða­keppnir og tónleika, haldna af einstaklingum, félaga­samtökum eða öðrum aðilum. Einnig geta minni­háttar viðhalds- og framkvæmda­verkefni, sem hafa lítil áhrif á umferð eða aðgengi almennings, fallið undir þennan flokk.

Með þessari flokkun er leitast við að einfalda umsóknar­ferli og tryggja að gjaldtaka og eftirlit séu í samræmi við raun­verulegt umfang og áhrif afnotanna.

Borgarland landsvæði sem tilheyrir Reykjavíkurborg

Afnota­leyfi veita tíma­bundna heimild til að nota borgar­land fyrir marg­vísleg verkefni, svo sem viðburði, framkvæmdir eða rof á yfirborði. Markmið leyfanna er að tryggja öryggi vegfarenda, upplýsa íbúa og gesti um afnotin og stuðla að góðri umgengni um borgar­landið. Jafnframt er afnota­leyfum ætlað að vernda verðmæti eigna Reykja­víkurborgar með því að koma í veg fyrir óþarfa slit eða skemmdir á yfirborði og undirlagi sem geta rýrt gæði og verðmæti borgar­umhverfisins.

Borgar­land er samheiti yfir allt það landsvæði sem tilheyrir Reykja­víkurborg. Þar undir falla meðal annars götur, gangstéttir, stígar, torg og önnur opin svæði sem almenningur nýtir daglega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim