Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Orðrómur um andlát Trump fer eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum

„Ég er fullviss um að forseti Banda­ríkjanna sé í góðu formi, muni ljúka kjör­tímabilinu og gera frábæra hluti fyrir bandarísku þjóðina.“

Forsetamar
For­seta­mar Trump er með mar á hendi Mynd: CHIP SOMODEVILLA/Getty Images via AFP

Setningin „Trump er látinn“ hefur sprungið út á samfélags­miðlum þar sem gríðarleg umræða hefur skapast um nánast örugglega rangar sögu­sagnir.

Donald Trump hefur ekki sést opinber­lega í þrjá daga og fjarvera hans hefur orðið til þess að frasinn „Trump er látinn“ hefur tekið yfir bæði X og Facebook. Þetta kemur í kjölfar nýlegra vanga­veltna um heilsufar forsetans eftir að ljós­myndir birtust þar sem hann virtist vera með marblett á hendi. Orðrómar virðast einnig hafa fengið byr undir báða vængi vegna athugasemda frá vara­forseta Trumps, JD Vance, sem og Matt Groening, skapara The Simpsons.

Síðan Trump tók við embætti hefur það gerst nokkrum sinnum að hinn 79 ára gamli forseti hafi horfið tíma­bundið úr sviðs­ljósinu. Margir þeirra sem nú dreifa samsæris­kenningum á netinu benda á að engir opinberir viðburðir séu skráðir hjá Trump um helgina, en það er algjör­lega eðlilegt fyrir forseta. Þá hefur Trump sjálfur verið virkur á Truth Social síðan hann sást síðast opinber­lega.

Þann 27. ágúst var Vance spurður hvort hann væri tilbúinn að taka við stjórn landsins ef „hræðilegur harm­leikur“ ætti sér stað. Í viðtali við USA Today fullyrti hann að forsetinn væri í góðu formi, en viðurkenndi þó að ekkert mætti útiloka.

„Hann er síðasti maðurinn sem hringir á kvöldin og fyrsti maðurinn sem vaknar og hringir á morgnana,“ sagði Vance.

„Já, hræðilegir atburðir geta gerst. En ég er fullviss um að forseti Banda­ríkjanna sé í góðu formi, muni ljúka kjör­tímabilinu og gera frábæra hluti fyrir bandarísku þjóðina. Og ef, Guð forði því, að eitthvað hryllilegt gerist, þá get ég ekki hugsað mér betri starfs­þjálfun en þá sem ég hef fengið síðustu 200 dagana.“

Heilsu­áhyggjur Trumps hafa þó verið í brennidepli upp á síðkastið. Í júlí staðfesti Hvíta húsið að hann glímdi við sjúkdóm í bláæðum sem kallast langvinn bláæða­bilun (chronic venous insufficiency, CVI), sem veldur bjúg í fótum. Sjúk­dómurinn veldur auknum þrýstingi í æðum og getur leitt til bjúgs og sára, en telst ekki lífs­hættulegur. Áður en þetta var opinberað höfðu ljós­myndir af bólgnum fótum Trumps á samfélags­miðlum kveikt á vanga­veltum um heilsu hans.

Í vikunni sást svo það sem virtist vera marblettur á hendi forsetans þegar hann skrifaði undir tilskipun. Svipað sást í golf­myndbandi þar sem hann virtist einnig með mar á hendi, og í annarri mynd var eins og þykk förðun hefði verið borin á hana. Sérfræðingar telja að marblettirnir gætu tengst nýlegri innsetningu á æðalegg, sem bendi til að forsetinn hafi fengið lyfja­meðferð í æð vegna ótilgreinds kvilla.

Í júlí var Matt Groening, höfundur The Simpsons, spurður hvenær áætlað væri að þátturinn, sem hefur verið á dagskrá í 36 ár, myndi ljúka. Hann sagði við Variety að „engin endalok væru í sjónmáli“, en tengdi þó lok þáttanna við andlát Bandaríkja­forseta.

„Nei, engin endalok sjást. Við ætlum að halda áfram. Við förum þar til einhver deyr,“ sagði Groening.

Hann bætti svo við: „Þegar þú veist hver deyr, þá spáir The Simpsons því að fólk muni dansa á götum úti. Nema að forsetinn (J.D.) Vance muni banna dans.“

Athugasemdirnar vöktu mikla athygli á samfélags­miðlum, þar sem margir telja að þættirnir hafi ítrekað spáð fyrir um raun­verulega atburði. Sumir aðdáendur eru jafnvel sann­færðir um að þátturinn hafi spáð fyrir um uppgang Trumps til valda strax árið 2000.

Mirror fjallaði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu