Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þórhildi fannst spennandi þegar hann var fyrst með annarri konu

Þórhildur Magnúsdóttir, verk­fræðingur, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Þórhildur, sem hefur vakið athygli fyrir að tala opinskátt um opið samband sitt og eigin­manns síns, segir í þættinum frá upphafinu að þeirri ákvörðun að opna hjóna­bandið:

„Fyrst fannst mér þetta bara áhugavert, en ég var ekki komin á þann stað að biðja hann um það eða vera viss um að ég vildi þetta. En þetta vakti mikinn áhuga hjá mér og þaðan byrjaði ég að ræða þetta við manninn minn. Svo leið talsverður tími þar til að við tókum skrefið. Ein af ástæðunum fyrir því að ég fann að ég vildi gera þetta var að ég veit að ég er tvíkynhneigð, en hafði aldrei prófað það af neinu viti. Ég vissi að ég vildi prófa að vera með konum, en mig langaði samt ekkert að hætta með manninum mínum. En það tók svo auðvitað tíma að ákveða endanlega að opna sambandið og taka skrefið alla leið.”

Þórhildur man vel eftir fyrsta skiptinu sem maðurinn hennar var með annarri konu eftir að þau opnuðu sambandið:

„Ég var mjög spennt og man ekki eftir að hafa fundið fyrir mikilli afbrýðissemi beint. Þetta var eins og að horfa á spennu­mynd, bara vitandi að hann væri að fara að hitta hana og svo að heyra í honum á eftir. Ég hef alltaf verið mjög örugg með tenginguna mína við manninn minn, af því að við höfum alltaf verið heiðarleg og hann er bara gull af manni. Það áhuga­verða við afbrýðissemi þegar maður fer að kafa ofan í hana er að oft eru það bara hlutir eins og að maður sé ekki að fá næga athygli sem kveikja hana mest. Þó að birtingar­myndin á afbrýðissemi snúist oft um annað fólk, er oft stærsta ástæðan eitthvað innra með manni sjálfum. Það endar oft þannig þegar ég er að fræða fólk um sambönd að athyglin endar hjá manni sjálfum. Heil­brigður og heiðar­legur einstaklingur er miklu líklegri til að eiga í góðu sambandi, alveg sama hvernig samband það er.“

Þórhildur segist fyrst hafa verið hikandi um að opna á þessa umræðu opinber­lega:

„Þegar ég byrjaði með Instagram-síðuna ætlaði ég fyrst bara að tala um sambönd og veigraði mér við því að fara alla leið. Er ég að fara að vera manneskjan sem opnar þessa umræðu fyrir alla þjóðina?,” segir Þórhildur og heldur áfram

„Við vorum búin að vera í opnu sambandi í nokkur ár áður en það fór í opinbera umræðu. Ég og maðurinn minn sammælumst yfirleitt um alla umfjöllun og viðtöl sem ég fer í, en pandóru­boxið er opið núna og ég sný ekki til baka úr þessu. Ég er örugglega að triggera mjög marga og biðst bara afsökunar á því. En við hljótum að eiga að geta rætt þessa hluti. Margir eru með mjög sterkar skoðanir á þessu og sumir eiginlega bara brjálaðir. En ég hef verið mjög góð alveg frá byrjun í að láta það ekki hafa áhrif á mig þó að einhverjir séu brjálaðir út í mig á samfélags­miðlum eða í kommenta­kerfum. Ég næ að taka meira mark á öllum jákvæðu skila­boðunum sem ég fæ. Minn ótti er meira hvort ég megi vera að bjóða upp á ráðgjöf í samböndum, menntuð í hagfræði og verkfræði. Þannig að neikvæð skilaboð um það hafa haft meiri áhrif á mig heldur en fólk sem er með sterkar skoðanir á því að ég sé í opnu sambandi.”

Þórhildur vill eiga þátt í því að við ræðum heiðar­lega um hluti opið og opinber­lega sem mjög margir eru að hugsa:

„Ég held að við séum árið 2022 komin á stað þar sem allir vilja vera heiðar­legir og hafa hlutina uppi á borðum. Við erum í grunninn dýr og megum ekki gleyma því. Ég vil ekki láta festa mig í einhverjum hlekkjum þegar kemur að kynlífi og þegar allt er uppi á borðum og heiðarlegt getur þetta gengið mjög vel. Lykil­atriði í öllum samböndum, sama hvort þau eru opin eða ekki, er að fólk sé heiðarlegt og þori að berskjalda sig. Mjög margir kaupa sig inn í hefbundið samfélags­munstur, án þess að vilja það og það endar bara á að springa. Fólk er að halda framhjá og skilja úti um allan bæ og það er ekki eins og hefð­bundna munstrið sé að virka fullkomlega hjá öllum. Það er frábært þar sem það virkar, en hver og einn verður að fá að finna hvað hentar og hvað viðkomandi vill í sínu lífi. En aðal­atriðið er að þora að sýna það hver maður raun­verulega er.”

Þáttinn með Þórhildi og alla aðra þætti Sölva Tryggva­sonar má nálgast á heima­síðunni: solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“