Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Flugslysið við Arnarnes: „Flaug véĺin lágt yfir bátnum og hvarf svo í élin“

Flugslys varð við Arnarnes árið 1987 er farþegavél frá Flug­félaginu Erni fórst og með henni flugmaður vélarinnar.

Það var þann 11. janúar árið 1987 að farþega­flugvél frá Flug­félaginu Erni, með einkennistafina TF-ORN, lenti í sjónum út af Arnarnesi, sem er í minni Skutuls­fjarðar í Ísafjarðar­djúpi.

Flug­maðurinn, sem var einn um borð, lést.

Var vélin af gerðinni Piper Chieftain; var nýkomin úr skoðun á Akureyri.

Vélin sem fórst.

Atburða­rásin var þannig að klukkan 19:48 um kvöldið örlaga­ríka hafði flug­maðurinn samband við Ísafjarðar­flugvöll; lét vita að hann væri yfir Reykja­nesskóla; væri að hefja aðflug.

Aðeins átta mínútum síðar hafði hann aftur samband við flug­völlinn, flugvallar­starfs­maðurinn staðfesti sambandið, en heyrði ekkert frekar frá flug­vélinni.

Á sama tíma sáu fiskimenn á rækjubát flug­vélina út af Arnarnesi; flaug veĺin lágt yfir bátnum og hvarf svo í élin.

Varð­skipið Óðinn var við Æðey á þessum tíma; heyrðist í neyðar­sendi rétt fyrir klukkan 20:00 – nam skipið sendinguna í um það bil 20 mínútur.

Í kjölfarið hófst umfangs­mikil leit þar sem flugvélar Varnar­liðsins og Flugmála­stjórnar, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunar héldu af stað vestur með hraði.

Það var svo rétt fyrir klukkan 22:00 um kvöldið að varð­skipið Óðinn nam á nýjan leik veikar sendingar frá neyðar­sendi flug­vélarinnar.

Tæplega klukku­stund síðar fundu leitar­menn brak úr flug­vélinni á floti utan við Arnarnes; sást olíubrák í sjónum. Ekki löngu síðar, eða rétt fyrir miðnætti, fannst svo hálfur vængur á floti; norðaustan við svonefnda togara­bauju.

Er leitar­menn í bátnum hugðust ná vængnum og koma honum um borð í Óðin fundu þeir lík flug­mannsins. Maðurinn hét Stefán Páll Stef­ánsson og var einungis 38 ára gamall; lét hann eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

Vélin er fórst var önnur flugvélin sem Flug­félagið Ernir missti á innan við tveimur árum; en vélin sem fórst við Arnarnes hafði verið keypt í stað þeirrar er fórst í Ljósu­fjöllum 5. apríl árið 1986.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim