Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Karl konungur sagður vilja sættast við Harrý

Fyrr­verandi heimili Andrews gæti orðið heimili Harrýs og Meghan.

Karl konungur og Harrý
Karl kon­ungur og Harrý Feðgarnir á leið í serimóníu árið 2022 Mynd: DAVID ROSE / POOL / AFP

Talið er að Karl III Breta­konungur vilji grafa stríðs­öxina við son sinn, Harrý prins, og í því skyni hyggist hann bjóða honum og Meghan Markle að flytja í Royal Lodge, fyrr­verandi heimili Andrews Mountbatten-Windsor.

Greint er frá því að konungurinn vilji bæta samskiptin við hinn 41 árs Harrý, eftir þann klofning sem talinn er hafa myndast frá því hann og Meghan yfirgáfu konungs­fjöl­skylduna árið 2020 og hófu nýtt líf í Kaliforníu. Royal Lodge stendur nú autt eftir að Karl vísaði bróður sínum, Andrew, úr húsinu seint á síðasta ári, og heimildar­menn segja konunginn líta á eignina sem tækifæri fyrir son sinn og tengda­dóttur.

Einn heimildar­maður sagði: „Þetta væri hin fullkomna friðar­gjöf. Karl vill einingu. Að bjóða Harry glæsilega eign í Windsor myndi senda skýr skilaboð um að dyrnar séu enn opnar.“

Talið er þó að slíkt myndi ekki falla Andrew vel í geð, en hann bjó í Royal Lodge í um 20 ár. Hann hefur samkvæmt fréttum átt erfitt með að flytja í bráðabirgða­húsnæði sitt, Wood Farm, sem hann á að hafa lýst sem „fyrir neðan sig“.

Í pistli sínum á Substack segir konungs­fjölskyldu­sérfræðingurinn Rob Shuter að hann hafi rætt við ýmsa heimildar­menn sem telja að hinn 77 ára Karl sé tilbúinn að láta fortíð vera fortíð og sættast við Harry. Heimildir lýsa Royal Lodge, sem stendur í Windsor Great Park, sem „dýru í rekstri, í þörf fyrir umfangs­miklar viðgerðir og þjökuðu af áralangri neikvæðri umræðu.“

Royal Lodge hafði verið heimili Andrews og Söruh Ferguson frá árinu 2004, en umræðan í kjölfar Epstein-skjalanna hefur leitt til þess að Andrew flutti í Wood Farm og Sarah annars staðar. Myndir sem Daily Mirror birti í fyrra sýndu jafnframt umfang mikilla viðgerða sem 30 herbergja húsið þarfnast.

Óvíst er þó hvort Harry og hin 44 ára Meghan hyggist snúa aftur til konunglegra starfa. Í fyrra virtist sem þau hefðu íhugað að flytja frá Banda­ríkjunum aftur til Bretlands, meðal annars þegar vegabréfs­umsóknir barna þeirra, Boga prins og Lísabetu prinsessu, innihéldu titilinn HRH (Hans/Hennar Konunglega Hátign) ásamt eftir­nafninu Sussex. Talið er að Harry og Meghan vilji að börnin geti síðar sjálf ákveðið hvort þau vilji sinna opinberum skyldum eða halda sig utan sviðs­ljóssins.

Í Substack-pistli sem birtist í vikunni sagði þó einn heimildar­maður: „Ímyndin er flókin. Að flytja Harry og Meghan í gamla húsið hans Andrews tengir þau við eign sem hefur orðið samofin hneykslis­málum.“

Í síðasta mánuði var einnig greint frá því að konungurinn hefði boðið Sussex-hjónunum gistingu í Highgrove House á meðan Invictus-leikarnir fara fram árið 2027 í Birmingham. Borgin hlaut réttinn til að halda leikana vegna sterkrar áherslu á velferð og endur­hæfingu hermanna og fyrr­verandi hermanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu