Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Trúbadorinn sem Pinochet lét myrða

Victor Jara
Victor Jara

Einn frægasti tónlistar­maður sem Chile hefur alið, Victor Jara, fékk að þola einhvern þann ömurlegasta dauðdaga sem hægt er að hugsa sér. Fyrst voru mölvaðir á honum fingurnir, hann látinn hafa gítar og hlæjandi lögreglu­menn sögðu honum að syngja nú og spila. Sagt er að þrátt fyrir þjáningarnar hafi hann sungið að hætti vinstri­manna „Venceremos“ eða „Við munum vinna.“

Victor Jara

Það var þó ekkert útlit fyrir það á þessari stundu en Augusto Pinochet hafði gert valdarán í Chile og Salvador Allende, fráfar­andi forseti, hafði fallið fyrir eigin hendi í forseta­höllinni í Santiago áður en herinn náði henni á sitt vald. Og nú vitum við að Pinochet var við völd, frá þessum hræðilegu dögum árið 1973, til ársins 1990 þegar hann flúði í frið­helgina sem Margrét Thacher hélt honum í Bretlandi. Þegar þetta nýja yfirvald var búið að yfirheyra Victors og skemmta sér með þjáningar hans tók hers­höfðinginn José Adolfo Paredes Márquez málin í sínar hendur og lék rússneska rúllettu á söngva­skáldinu. Það er að segja, setti eina kúli í hylkið, lagði byssu­hlaupið við gagnauga Victors og tók svo nokkrum sinnum í gikkinn uns kúlan hljóp loksins af.

Þó yfirvöld í Chile hafi tekið af lífi um fjögur þúsund manns í valdatíð Pinochets telja sumir að hann hafi verið góður forseti og kalla hann frelsara landsins þar sem efna­hagurinn komst í gott lag í valdatíð hans. Spænski lögmaðurinn Baltazar Garzón reyndi hinsvegar ítrekað að fá hann fram­seldan og fann smugu í alþjóð­legum lögum sem gætu heimilað að láta rétta yfir honum en honum varð ekki kápan úr klæðinu svo Pinochet dó frjáls maður árið 2006. Böðullinn José Adolfo Paredes Márquez komst þó ekki undan en það var ekki fyrr en 2009 að hann var dæmdur fyrir ódæði sitt. Við rannsókn málsins var lík söngva­skáldsins grafið upp.

Í valda­ráninu árið 1973 breytti einræðis­stjórnin íþrótta­leikvangi í fangelsi þar sem þeir yfir­heyrðu, pyntuðu og myrtu andstæðinga sína. Það var þar sem Victor Jara var tekinn af lífi. En nú eru aðrir tímar í Chile, til allrar hamingju, og í dag ber þessi íþrótta­leikvangur nafn hans.

Í þættinum Rúntað á Rucio fer Jón Sigurður Eyjólfsson yfir þessa atburðarás og fylgir söngva­skáldinu Victori Jara og forsetanum Salvador Allende í rauðan dauðan en einnig kemur Julian Assange við sögu. Hægt er að hlusta á þáttinn hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim