Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fann gloppu í kerfinu og stofnaði glæpahóp: „Þessi piltur notar yngri krakka“

Þann 18. febrúar árið 1993 var fjallað um mál 17 ára drengs sem átti sér langan sakaferil þrátt fyrir ungan aldur. Hann hafði alls komið um 60 sinnum við sögu lögreglu vegna ýmissa afbrota, meðal annars fíkniefna­sölu, ölvunar­akstur, líkams­árásir, skemmda­verk og innbrot. Aldur sakhæfis á Íslandi er 15 ára og myndaði umræddur drengur sér glæpahóp með yngri strákum sem frömdu fyrir hann glæpi, til að sleppa við dóm:

„Þessi piltur hefur að sögn lögreglu safnað um sig hópi af ungum, ósakhæfum börnum sem hann notar til afbrota. Sakhæfi miðast við 15 ára aldur og unglingi verður ekki refsað fyrir verknað sem hann fremur fyrir þann aldur,“ sagði í DV. Lögreglan var með á borði tugi svipaðra mála ungra afbrota­manna sem ekki fengu refsingu þrátt fyrir síendurtekin brot, einfald­lega vegna þess að þeir voru ósakhæfir:

Ómar Smári Ármanns­son.

„Það vantar alla aðstöðu til að geta hlynnt að þessu unga fólki sem kemur ítrekað við sögu lögreglu og tekur ekki tali. Þangað til sitjum við í sama úrræðaleysinu. Við höfum einnig gert kröfu til þess að þeir sem eru sakhæfir og hafa ítrekað brotið af sér fái svokallaða flýtimeðferð í kerfinu þannig að þeirra mál gangi fljótt og þeir geti tekið út sinn dóm svo til í beinu framhaldi af brotinu. Þannig fá þeir ekki tækifæri til að safna upp jafnvel tugum mála áður en eitthvað er gert. Ef kerfið sýndi viðbrögð gagnvart tiltölulega fáum afkasta- miklum einstaklingum væri hægt að fækka innbrotum og þjófnuðum til mikillamuna,“ sagði Ómar Smári Ármannsson þáverandi aðstoðar­lögreglu­stjóri í samtali við DV á sínum tíma.

Rætt var við móður 14 ára drengs sem stundaði glæpi undir hand­leiðslu 17 ára drengsins:

„Þessi piltur spilar á kerfið og notar yngri krakka eins og son minn til að fremja afbrotin fyrir sig. Í yfirheyrslum segist hann svo ekki hafa komið nálægt hlutum, hinir hafi gert það.“

„Það er greinilegt að þessi piltur stjómar hópnum. Hann er fint klæddur á meðan hinir eru hálfgerðir pönkarar og mér finnst varla eðlilegt að 17 ára strákur hangi með 14 ára börnum. Ég hef heyrt að hann segi krökkunum að það sé ekkert mál fyrir þau að fremja afbrot. Þau geti í raun gert hvað sem er því þau séu undir sakhæfis­aldri.“

Á þessum tíma mátti ekki nauðungar­vista börn á meðferðar­heimilum, ef þau vildu ekki aðstoð þá var ekkert hægt að gera. Foreldrar sátu því ráðarlausir þar sem börnin þeirra héldu áfram að brjóta af sér og lögregla gat einungis gefið þeim tiltal:

„Það er eins og þetta séu gleymdu börnin hennar Evu,“ sagði móðirin sem DV ræddi við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim