Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Valdimar varaði þingheim ítrekað við sjókvíeldinu árið 2019 – Fékk ekki eitt svar til baka

Valdimar Ingi Gunnarsson sendi þingheimi beiðni um opinbera rannsókn vegna alvarlegra vankanta á vinnu­brögðum er snéru að fiskeldi, árið 2019. Ekki einn þingmaður svaraði.

Fyrir viku birti ríkis­endur­skoðandi kolsvarta skýrslu um sjókví­eldi hér á landi en þar kom meðal annars fram að stjórn­sýslan og eftirlit hafi verið  „veikburða og brota­kennd og vart í stakk búin til að takast á við aukin umsvif greinarinnar á síðustu árum. Breytingum á lögum um fiskeldi sem var ætlað að stuðla að vexti og viðgangi greinarinnar í sátt við bæði samfélag og umhverfi var ekki fylgt eftir með því að styrkja stjórn­sýslu og eftirlit þeirra stofnana sem mæðir mest á.“

Hver þing­maðurinn á fætur öðrum kom í kjölfar opinberunar skýrslunar, fram og talaði um hversu svört skýrslan hafi verið og að hér þurfi að gera betur. En nú er komið á daginn að þetta átti ekki að koma neinum á óvart því Valdimar Ingi Gunnarsson sem vinnur við það sem heitir Samfélags­verkefni gegn spillingu, sendi beiðni um opinbera rannsókn á málinu til stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar en hann sendi afrit af beiðninni á alla þingmenn Alþingis. Ekki eitt svar fékkst við beiðninni, þrátt fyrir nokkrar ítrekanir.

Mannlíf er með bréf í höndunum sem Valdimar Ingi skrifaði og sendi á Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra í morgun. Þar fer Valdimar yfir málið og ítrekar enn og aftur þá beiðni sína um opinbera og óháða rannsókn á fiskeldi við landið.

Bréfið má lesa í heild hér fyrir neðan:

Katrín Jakobs­dóttir 

Forsætis­ráðherra 

Alþingi 

101 Reykjavík 

Kópavogur, 13. febrúar 2023 

Þann 20. maí 2019 sendi undir­ritaður tölvupóst með beiðni um opinbera rannsókn til  stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis og allir alþingis­menn fengu afrit. Þar var  óskað eftir að gerð væri opinbera rannsókn vegna alvarlegra annmarka á vinnu­brögðum  starfs­hóps sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra um stefnu­mótun í fiskeldi. Það var  síðan í fjórgang, þ.e. 15. ágúst, 11. september, 24. september og 8. október 2019 send  ítrekun til stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar en á þessum tíma var Helga Vala  Helga­dóttir formaður. Það var einnig auglýst í blöðum haustið 2019 og óskað eftir  viðbrögðum. Beiðnin var síðan ítrekuð við stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd þann 26.  mars 2021 en þá var Jón Þór Ólafsson formaður nefndarinnar. Þrátt fyrir allar þessar  tilraunir hafa engin viðbrögð eða svör fengist. Greinilegt að flestir hafa ekki áttað sig á  alvarleika málsins, frekar en að þeir hafi viljað hylma yfir verknaðinn. Það er einnig ljóst  að hagsmuna­aðilar höfðu grafið um sig í kerfinu, rekið mikinn áróður um mikilvægi  þessa fyrir atvinnulíf á viðkomandi svæðum.  

Undir­ritaður gerði alvarlegar athuga­semdir við vinnu­brögð áður­nefnds starfs­hóps  sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra og telur að þau samræmist ekki á nokkurn hátt  góðum stjórnsýslu­háttum og kunni í ákveðnum tilvikum að fara gegn ákvæðum  stjórnsýslu­laga. Það sem engin viðbrögð voru við minni beiðni um opinbera rannsókn var farið af stað með verkefnið „Samfélags­verkefni gegn spillingu“ í byrjun ársins 2022  til að vinna að framgangi. Í þessu samhengi hefur m.a. verið birt rannsókna­skýrslan „Stefnu­mótun í fiskeldi: Umræðan, tillögurnar og staðan“ en þessi skýrsla og fleiri gögn  sem undir­ritaður hefur tekið saman ætti að geta nýst við umbeðna rannsókn.  

Vegna þeirra alvarlegu annmarka á þeim gögnum sem breytingar á lögum um fiskeldi á  árinu 2019 byggði á, telur undir­ritaður að forsætis­ráðherra og stjórn­skipunar- og  eftirlits­nefnd Alþingis beri að taka málið upp og rannsaka og eftir atvikum að skipa óháða rann­sóknaraðila til að yfirfara þau vinnu­brögð sem hafa verið viðhöfð. 

Virðingar­fyllst, 

_____________________________ 

Valdimar Ingi Gunnarsson, 

Sjávar­útvegs­þjónustan ehf. 

Afrit: 

Stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd og Alþingis­menn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim