Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Þerapisti braut traust og trúnað: „Geðsjúkdómar gera þolanda ekki ótrúverðugan“

Bryndís Ásmundsdóttir
Bryndís Ásmunds­dóttir Mynd: Thormar V Gunnarsson

Mannlíf fjallað í vikunni um þjóð­þekktan mann sem var dæmt forræði yfir einu barna sinna. Barns­mæður mannsins hafa stigið fram og sagt frá grófu andlegu og líkamlegu ofbeldi auk hótana af hans hálfu.

Söng- og leikkonan Bryndís Ásmunds­dóttir var gestur Eddu Falak í hlaðvarps­þættinum Eigin Konur í vikunni. Í þættinum ræddi hún um ofbeldis­samband sem hún var í við barns­föður sinn um þriggja ára skeið fyrir um áratug síðan.

Samkvæmt heimildum Mannlífs er maðurinn sem um ræðir Fjölnir Þorgeirsson athafna­maður.

Í kjölfar þáttarins spruttu upp ýmsar umræður. Eins og svo oft áður hafa þolendur sem stíga fram iðulega þurft að heyra um þá sagt; hvort að þeir séu nú ekki örugglega bara „geðveikir eða alltaf með eitthvað vesen.“

Bryndís hefur komið opinber­lega fram með sína sjúkra­sögu. Bryndís er greind með geðhvarfa­sýki, bipolar 1, sem hún segir að hafi verið notað gegn sér í forræðis­deilu milli hennar og barnsföðursins. Þá kemur fram að Bryndís hafi kært manninn fyrir ofbeldi en þrátt fyrir það er hinum meinta geranda falin full forsjá yfir barninu.

Í þætti Eigin Kvenna ræðir Bryndís um sambandið en einnig hvernig þerapisti, sem Bryndís leitaði til fyrst til að hjálpa syni sínum, hafi að hennar mati brotið traust og trúnað við sig. Hún segir þerapistann hafa lokað á öll samskipti við hana, fært sig yfir á aðra stofu og haldið áfram að taka viðtal við son hennar, án hennar leyfis og vitundar.

Athygli vekur að Edda fullyrðir að áður en hún tók viðtalið við Bryndísi hafði umræddur þerapisti samband við hana og nokkrum dögum síðar barns­faðir hennar, og reynt að sannfæra hana um að Bryndís væri „geðsjúkur ofbeldis­maður“ og „veik á geði.“

Aðgerða­hópurinn Öfgar tvítaði um þetta mál í vikunni og höfðu þetta að segja:

„Geðsjúk­dómar þurrka ekki út ofbeldi.

Geðsjúk­dómar gera þolanda ekki ótrú­verðugan.“

Þetta er gömul og ný saga, þar sem allt er reynt til að draga úr trúverðug­leika þolanda með því að telja honum trú um að hann sé ekki í lagi, sé að ímynda sér eitthvað og þurfi jafnvel að leita sér hjálpar. Þessi aðferð hefur verið kölluð gaslýsing.

Burtséð frá því hvort að þolandi glími við andlegar áskoranir eða ekki, þá er óskiljanlegt að þessar aðferðir og umræður skulu enn þykja vera í lagi.

Undir færslu Öfga hafa skapast umræður og kemur þar einn með athugasemd á tvítið:

„Geðsjúk­dómur þurrkar ekki út rétt þinn á grundvallar­mann­réttindum. Gerir einstaklinga ekki óhæfa. Þetta stigma er þreytt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki