Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Verkbann myndi lama höfuðborgarsvæðið – Niðurstöðu að vænta á morgun

Kjara­deila Eflingar og Samtaka atvinnu­lífsins er nú í algjörum hnút en verkfall bílstjóra og hótel­starfsmanna sem eru í Eflingu er hafið. SA hefur boðað til atkvæða­greiðslu um það hvort leggja eigi verkbann á alla meðlimi Eflingar. Niður­staða er að vænta á morgun.

Verkbann er verkfæri atvinnu­rekanda í kjara­deilum og er oft litið á það sem vopn þeirra gegn verk­föllum. Verði verk­bannið nú samþykkt getur SA bannað öllu félags­fólki Eflingar að mæta til vinnu og mun það ekki fá greidd laun. Verði það samþykkt mun það hefjast þann 28. febrúar. En hvað þýðir verk­bannið fyrir almenning?

Í stuttu máli myndi höfuð­borgar­svæðið lamast. Félags­fólk Eflingar starfar víða á sviðum atvinnu­lífsins, bæði hjá opinberum stofnunum og í einka­geiranum. Þá er verið að tala um mötuneyti, ræstingar, ummönnunar­störf á borð við leikskóla, heima­þjónustu og á sjúkra­stofnunum. Þá sinnir Eflingar­fólk einnig almennum stöfum verka­fólks í iðnaði, fram­leiðslu, flutningum, bygginga­vinnum, við vega og hafnar­vinnu, land­búnaðar­störf og þá annast þau aukreitis ýmsa vélavinnu í tengslum við verklegar framkvæmdir. Enn fremur eru almenn störf á veitinga- og gistihúsum unnin af fólki innan Eflingar, sem og öryggis­varsla, bensín­afgreiðsla og dekkja­verkstæða­þjónusta.

Stærstu vinnu­veitendur innan Eflingar eru fjármála- og efnahags­ráðuneytið, Reykja­víkurborg, Land­spítalinn, Kópa­vogsbær, ýmis ræstinga­fyrirtæki, olíu- og skipa­félögin.

Sem sagt, verkbann myndi hafa gríðarleg áhrif á höfuð­borgar­svæðinu, þar sem langflestir félags­menn Eflingar starfa. Gististöðum yrði lokað, veitinga­stöðum, mötu­neytum og erfitt myndi reynast að halda leik­skólum opnum. Þá myndu framkvæmdir liggja niðri og sjúkra­stofnanir vera í lamasessi. Þá myndi bensín- og dísel­skortur gera vart við sig því enginn væri til að flytja það. Aukreitis gætu matvöru­verslanir ekki geta haldið opnu. Listinn yfir áhrifin er ekki tæmandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim