Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Vilja hækka samræðisaldur: „Nauðsynlegt að veita börnum vernd gegn kynferðislegu ofbeldi“

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir.
Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir.

Píratar hafa nú lagt fram frumvarp á Alþingi sem miðar að því að hækka samræðis­aldur úr 15 ára í 18 ára.

Steinunn Gyðu- og Guðjóns­dóttir, talskona Stígamóta segir í samtali við RÚV að þetta sé mikilvægt skref til að verja börn gegn kynferðis­ofbeldi; að margar glufur séu í löggjöfinni sem gerendur nýti til að sleppa við refsingu:

„Ég held að það sé nauðsynlegt að veita öllum börnum vernd gegn kynferðis­legu ofbeldi og við lítum svo á að börn séu fólk undir 18 ára og þá ætti löggjöfin okkar varðandi kynferðis­ofbeldi að taka tillit til þess líka.“

Að mati Stein­unnar hefur tilkoma samfélags­miðla gert það að verkum að nú hafi ókunnugt fólk greiðara aðgengi að börnum og unglingum:

„Fólk sem leitar til Stígamóta er í 70 prósent tilvika beitt kynferðis­ofbeldi í fyrsta skipti fyrir 18 ára aldur. Þannig kynferðis­brot gegn börnum og unglingum er sérstakt vandamál. Eins og þetta er núna þá geta mun eldri einstaklingar nýtt sér þessa löggjöf til að níðast á börnum sem hafa ekki náð 18 ára aldri.“

Það var árið 2007 þegar samræðis­aldur var hækkaður úr 14 árum í 15.

Þingmaður Pírata, Gísli Rafn Ólafsson, er flutnings­maður frum­varpsins, og hann var gestur Morgun­útvarps Rásar 2 í morgun:

Gísli Rafn Ólafsson þing­maður Pírata.

„Þegar það var verið að ræða þetta árið 2007 þá var mikið rætt um það í hvaða aldur ætti að hækka. Á þeim tíma var ákveðið að hækka þetta bara upp í 15 ár vegna þess að þá sýndu gögn að börn frá 15 ára aldri væru farin að stunda kynlíf og menn voru hræddir um að það kæmi holskefla af málum þar sem foreldrar sextán ára barna væru að kæra.“

En kynlíf milli aðila yngri en 18 ára er þó ekki refsivert; ef þau eru á svipuðu aldurs- og þroska­stigi:

„Þar sem þarna hefur oftast verið miðað við er að það sé tveggja til þriggja ára aldurs­munur, það er misjafnt eftir löndum. En það þýðir að 17 ára og 19 ára einstaklingar mega stunda kynlíf en aftur á móti þegar um er að ræða 17 ára og 26 ára einstakling til dæmis gildi aðrar reglur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“