Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Samfélagið brást Heiðrúnu: „Ég er fucked, mamma er bipolar og stjúppabbi minn var barnaníðingur“

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Niður­staða rann­sóknar Kolbrúnar Kolbeins­dóttur kynja­fræðings sem tók viðtöl við átta konur sem eru heimilis­lausar og halda til í Konukoti, er ekki upplífgandi: Samfélagið brást konunum þá og bregst þeim aftur núna.

Fimm af þessum átta viðmælendum urðu fyrir sifjaspelli eða barnaníði feðra sinna eða stjúpfeðra.

Kolbrún kemur fram í þætti Ásdísar Olsen, Undir yfir­borðinu, sem er á dagskrá Hringbrautar og verður sendur út í kvöld kl. 20.

Ásdís Olsen.

Í þættinum ræðir Ásdísi Olsen við Kolbrúnu, sem segir að það sé til háborandi skammar hvernig búið sé að þessum hópi kvenna í samfélagi okkar; þjónusta við þær er ekki í samræmi við ofbeldis- og áfalla­sögu þeirra; og þá er Konukot óviðunandi húsnæði.

Konurnar áður­nefndu eru á aldrinum 25 til 60 ára; dvöldust þær í Konukoti á þeim tíma er rann­sóknin fór fram.

Allar konurnar nema ein, áttu börn, og samtals áttu þær 16 börn.

Kemur fram að af átta viðmælendum höfðu sjö glímt við vímuefna­vanda. Þá einkenndust uppeldis­aðstæður kvennanna af alvarlegri vanrækslu, afskipta­leysi sem og ástleysi. Allar glíma þær við skaðlegan heilsufars­vanda á fullorðins­árum; fíkn­sjúkdóma, geðsjúk­dóma, líkamleg veikindi og útilokun frá fjöl­skyldum sínum.

Heiðrún tjáir sig um æsku sína í rannsóknar­viðtalinu:

„Ég bara fucked sko. Það var alveg þannig. Það var mikill alkóhólismi, mamma mín er bipolar, stjúppabbi minn var bara fáviti sko. Hann var barnaníðingur, þegar ég lít yfir æskuna mína, þá sé ég bara svart. …. æskan var bara ömurleg sko, þannig séð, ég fór í þrjá skóla, einelti í tveimur, og svona, síðasti skólinn fínn. Svo náttúrulega einhvern veginn byrjaði ég í neyslu beint eftir grunnskóla og verð svo bara ólétt 16 ára sko. Svo er svolítið búið að vera downhill from there. …. þegar ég er, svona horfi til baka, þú veist, eins og þegar ég lít yfir æskuna mína, þá sé ég bara svart. Þú veist, þetta er bara svona, þessi tími var bara hræðilegur.“

María ólst upp hjá föður sínum sem misnotar hana kynferðis­lega frá 9 ára aldri. Þegar hún er beðin að meta hvað var erfiðast í rannsóknar­viðtalinu, flæða tárin og hún tekur sér hlé til að jafna sig. Hún segir misnotkunina erfiðasta en það sé ekki lengur vont „bara hér í hausnum“ og bendir á höfuðið, því þaðan hverfa ekki minningarnar.

Ásdís lýsir veikindum móður sinnar, vanrækslu og óeðlilegri ábyrgð sem lögð var á hana sem barn:

„Mamma mín er rosa veik á geði. Ég vakna með litla bróður mínum, klæddi hann og labbaði með hann í leik­skólann, labbaði í skólann. Og svo var allur dagurinn í skólanum, þá var ég að hugsa hvernig ég ætti, hvort mamma myndi hleypa okkur inn klukkan fimm. Eða hvernig ég ætti þá að gefa honum að borða. Þetta var bara stans­laust, einhver ábyrgð sem ég kunni ekki að taka.“

Vert er að hvetja fólk til að horfa á þáttinn, en hann er sem fyrr segir á dagskrá Hringbrautar klukkan 20 í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim